Fleiri fréttir

Skrifar bók um ævi og baráttu Rafns Jónssonar

„Ég er búinn að vera með þessa hugmynd í kollinum mjög lengi og það má eiginlega segja að ég sé í startholunum,“ segir Jón Ólafsson tónlistarmaður en hann er með ævisögu trommarans Rafns Jónssonar í bígerð.

Fólkið í kjallaranum á fjalirnar í haust

Leikritið Fólkið í kjallaranum, sem er byggt á vinsælli skáldsögu Auðar Jónsdóttur, verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í byrjun október. „Ég er einn af þeim sem hreifst af bókinni eins og svo margir aðrir,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri, sem hlakkar til að sjá sýninguna. „Þetta er frábær leikgerð og með svona sterkum leikhópi getur maður ekki annað en iðað í skinninu að sjá þetta fara á svið.“

Annað barn á leiðinni

65 ára rokkarinn Rod Stewart og eiginkona hans, Penny Lancaster, 39 ára, eiga von á öðru barni. Penny á von á sér í mars án næsta ári en hjónin, sem eiga saman soninn Alastair, 4 ára, eru í skýjunum þessa dagana. „Við vorum svo þakklát og glöð að fá að tilkynna Alastair að hann er um það bil að verða stóri bróðir. Systkinið hans er væntanlegt í heiminn rétt áður en mamma hans verður fertug," stóð í fréttatilkynningu sem hjónin sendu frá sér. Rod og Penny giftu sig í Portofino á Ítalíu árið 2007. Ekki hefur verið gefið upp hvort Penny gengur með stúlku eða dreng.

Kynlíf eyðileggur vináttuna

Leikkonan Drew Barrymore, 35 ára, deyr ekki ráðalaus þegar hún þarf að vera lengi í burtu frá elskhugum sínum. Hún er sátt ef hún fær að hafa lykt þeirra með sér. Drew heldur því fram að hún sé á lausu í dag en sagan segir að hún er aftur byrjuð með fyrrverandi kærastanum sínum, leikaranum Justin Long. Ástin lyktar vel og þegar ég verð ástfangin er lyktin mjög mikilvæg," sagði Drew. Ef ég yfirgef þann sem á hjarta mitt þá stundina bið ég hann að klæðast bol í fimm daga án þess að þvo hann og síðan tek ég bolinn og lyktina með mér." Leikkonan heldur því fram að kynlíf eyðileggi góð vináttusambönd. Sömu sekúntu og þú stundar kynlíf með góðum vini breytist allt. Ekki segja mér að það hafi ekki hent þig? Vináttan hverfur samstundis og kynlíf flækist inn í sambandið." Drew segist halda vinskapinn við bareigandann Jeremy Thomas og leikarann Tom Green en hún var gift þeim hérna áður fyrr.

Hleypur fyrir fjölskyldur sem berjast í bökkum

„Ég á strák sem er einstakur fæddur með klofinn hrygg og kom hann í heiminn þegar ég var 18 ára eða fyrir 28 árum síðan. Þá vorum við hjónin að læra og áttum lítinn sem engan pening. Við bjuggum út á landi og vorum við í Reykjavík á spítala að minnsta kosti hálft ár fyrstu árin hans. Þá var enginn stuðningur eða félag til sem gat hjálpað okkur og það var oft erfitt fjárhagslega en félagið Einstök börn er einmitt að hjálpa í svona tilvikum. Oft er þörf en nú er nauðsyn því margar fjölskyldur berjast í bökkum fyrir lyfjum uppihaldi og fleira,“ útskýrir Helena.

Angelina er algjörlega óttalaus

„Angelina Jolie er ennþá sama konan og ég kynntist fyrir tíu árum," sagði Phillip Noyce leikstjóri kvikmyndarinnar Salt sem verður frumsýnd hér á landi á morgun þegar hann kynnti myndina í Syndey í Ástralíu.

Kærastinn vill hold og mýkri línur

Söngkonan Geri Halliwell, 37 ára, leggur sig fram við að slaka á þegar kemur að stífum æfingum og hollu mataræði. Söngkona hefur átt í erfiðleikum með líkamsþyngdina þegar hún tókst á við ástarsambönd sem gengu ekki upp. Geri annað hvort léttist gríðarlega eða blés út að eigin sögn þegar henni leið illa tilfinningalega. Í dag er Geri í kjólastærð númer 6 en kærastanum hennar, Henry, er ekkert sérstaklega vel við þessa stærð. Hann vill mýkri línur og meira kjöt utan á kryddið. „Hún hefur áttað sig á því að það að vera grindhoruð er ekki endilega málið. Allavegana ekki í augum Henry, sem þráir að hún bæti örlítið meira á sig. Hann segir Geri allt of horaða," er haft eftir nánum vini parsins í breska tímaritinu Closer. Geri er þekkt fyrir aga þegar kemur að hreyfingu og hollu mataræði. Hún mætir í jóga nánast daglega, skokkar á hverjum degi langar velgalengdir en hefur loksins ákveðið að slaka aðeins á í mataraæðinu til að fá mýkri línur. „Geri veit að núna er komið að því að slaka á í öfgunum," sagði umræddur vinur.

Bangsi vill komast heim

Þessi krúttlegi litli bangsi er nú í góðu yfirlæti á skrifstofu Samtakanna '78. Hann er víst farinn að sakna eiganda síns og þætti vænt um að komast aftur í heim, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Samtökunum 78.

Ragnhildur fékk námsstyrk í Los Angeles

„Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið styrkinn því annars hefði ég ekki möguleika á að fara í námið. Löngunin í framhaldsnám hefur blundað í mér lengi og með þessum styrk verður þetta að veruleika,“ segir Ragnhildur Magnúsdóttir, kvikmyndagerðarkona.

Handtekin fyrir vændi

Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu er væntanleg klámmynd með Montana Fishburne, dóttur leikarans Laurence Fishburne, í aðalhlutverki. Ekki nóg með það, þá greindi fréttavefur E!-sjónvarpsstöðvarinnar frá því um helgina að hún hafi verið dæmd í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi í mars fyrir að stunda vændi.

Besta mynd Ferrell síðan Anchorman

Nýjasta mynd Will Ferrell, gamanmyndin The Other Guys, var frumysýnd um helgina og fór beint á topp lista yfir aðsóknarmestu myndirnar vestanhafs.

Hætt við tónleikaferð vegna brotinnar höfuðkúpu

Ekkert varð af stuttri tónleikaferð rokksveitarinnar Endless Dark með bandarísku sveitinni Madina Lake um Bretland. Ástæðan er veikindi bassaleikara Madina Lake sem höfuðkúpubrotnaði eftir að hafa orðið fyrir fólskulegri líkamsárás.

Saknar að ganga um óáreitt

Angelina Jolie, 35 ára, saknar daganna þegar hún gat gengið um New York borg án þess að nokkur tæki eftir henni. Í dag getur leikkonan hvergi látið sig án þess að fjöldi ljósmyndara elti hana eða aðdáendur biðji hana um eiginhandaráritun. „Ég sakna þess að vera ein af fjöldanum. Ég hef búið í New York síðan ég var ung. Stundum gekk ég um og mældi út göturnar. Ég elskaði það," sagði Angelina en hún kynnir um þessar mundir nýju mynd sína Salt sem frumsýnd verður hér á landi eftir þrjá daga.

Maskari er nauðsynlegur

„Þegar ég nota sólarpúður passa ég mig að setja það ekki nálægt nefinu eða augunum því þá lítur Jennifer út fyrir að vera miklu eldri en hún er."

Kvörtunum rignir yfir FM 957 vegna mellulags Erps

Útvarpsstöðin FM 957 hefur dregið úr spilun á laginu Elskum þessar mellur með röppurunum Erpi og Emmsjé Gauta vegna fjölda kvartana að undanförnu. Eins og titillinn gefur til kynna er lagið opinskátt og hefur það helst farið fyrir brjóstið á fjölskyldufólki.

Hver er þessi Paul Allen?

Bandaríski milljarðamæringurinn Paul Allen er staddur á landinu. Heimsókn hans hefur vakið gríðarlega athygli, enda fer lúxussnekkja hans, sem er ein sú stærsta í heimi, ekki framhjá neinum. Paul stofnaði Microsoft á sínum tíma ásamt Bill Gates og er í 37. sæti yfir ríkustu menn heims samkvæmt tímaritinu Forbes.

Robin Wright sem Erika Berger

Robin Wright hefur verið ráðin í hlutverk Eriku Berger í bandarísku útgáfunni af Karlar sem hata konur. Persónan Berger er ritstjóri tímaritsins Millenium og ástkona blaðamannsins Mikaels Blomkvist, sem Daniel Craig mun leika. Enn á eftir að ráða í hlutverk Lisbeth Salander. Wright hefur á ferilsskránni myndir á borð við Forrest Gump, Unbreakable og State of Play.

Miri fagnar nýrri plötu

Hljómsveitin Miri heldur útgáfutónleika í félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði í kvöld í tilefni af plötu sinni Okkar sem kom út í júní. Ásamt Miri koma hljómsveitirnar Sudden Weather Change og hin seyðfirska Broken Sound fram á tónleikunum. Unnsteinn úr Retro Stefson þeytir skífum að þeim loknum. Platan Okkar var unnin í samstarfi við upptökustjórann Curver Thoroddsen og er hún prýdd ýmsum gestaleikurum. Aðrir útgáfutónleikar verða haldnir í Reykjavík 28. ágúst.

Söngleikur um klámleikkonu

„Hann er ekkert klámfenginn eða neitt svoleiðis, segir Óskar Eiríksson, leikhúsframleiðandi.

Segir Tyson hafa stolið gælunafninu

Boxarinn óhugnarlegi, Mike Tyson á nú yfir höfði sér kæru frá fyrrverandi boxara sem vill meina að Tyson hafi stolið gælunafni „Iron Mike“ af honum fyrir 25 árum síðan.

Nýja Weezer-platan heitir Hurley

Næsta plata hljómsveitarinnar Weezer nefnist Hurley og kemur út um miðjan september. Þetta verður áttunda plata sveitarinnar og fylgir hún í kjölfar Raditude sem kom út í fyrra. Weezer yfirgaf útgáfurisann Geffen á síðasta ári og kemur nýja platan út hjá fyrirtækinu Epitaph Records.

Vinir Fishburne reyndu að stöðva klám dótturinnar

Klámmynd með dóttur leikarans Laurence Fishburne er farin í dreifingu. Hann ku vera eyðilagður maður yfir uppátækinu, en vinir hans reyndu að kaupa upp lagerinn af myndinni til að stöðva dreifingu hennar.

Kardashian veldið í fatabisness

Kim Kardashian og systur hennar Kourtney og Khloé eru harðákveðnar að demba sér í fatabransann. Sjónvarpsstjörnurnar hafa tekið sig saman með hönnuðinum Bruno Schiavi og ástralska fataframleiðandanum Jupi Corporation við að útfæra fatalínu og fylgihluti til handa ungum konum. Framleiðsla systranna kemur í verslanir árið 2011.

Fegurðin kemur innan frá

Jessica Simpson, 30 ára, segir að lykillinn að sannri fegurð sé að vera sátt við líkama sinn og sálina ekki síður. Jessica viðurkennir að hafa verið í tilvistarkreppu meira og minna undanfarinn áratug af því að hún hafði stöðugar áhyggjur af því hvaða skoðun aðrir höfðu á líkama hennar. Þess vegna reyndi Jessica allt hvað hún gat til að líkjast Barbie. „Við konur erum allt of oft með útlitið á heilanum. Að líta út eins og fullkomna Barbie-dúkkan er ekki alltaf það besta í stöðunni. Fegurð gengur út að á vera fullkomlega sátt við sjálfa sig burtséð frá fatastærð eða kílóafjölda," lét Jessica hafa eftir sér í tímaritinu Lucky.

Keypti grafreit við hlið Monroe

Hugh Hefner, 84 ára, keypti grafreitinn við hlið gröf Marilyn Monroe. Þar vill hann láta grafa sig þegar hann fellur frá. Hugh, sem minntist ljóskunnar á Twitter síðunni sinni, var góðvinur Marilyn sem lést 5. ágúst árið 1962 aðeins 36 ára gömul en hún birtist á fyrstu forsíðu Playboy tímaritsins árið 1953. Hugh segir tölublaðið með Marilyn á forsíðunni enn vera í uppáhaldi hjá honum. Sagan segir að Hugh hafi átt í ástarsambandi við Marilyn en hann hefur aldrei staðfest þá sögu.

Notar andlitskrem í miklum mæli

Leikkonan Jennifer Aniston hugsar vel um andlitið á sér. „Ég þvæ andlitið á mér á hverjum morgni og á kvöldin. Ég hef alltaf notað sama kremið alveg síðan ég var í framhaldsskóla. Það heitir Neutrogena. Vörurnar sem ég nota á andlitið eru Dr. Hauschka rakakremið og þá nota ég það yfir daginn. Ég nota augnkremið SK-II," svaraði Jennifer aðspurð hvaða krem hún setur á andlitið. Við gerðum könnun á Facebooksíðunni okkar og spurðum: Notar þú augnkrem (ef já, hvaða krem)? „NouriFusion augngel á morgnana og augnkrem á kvöldin." „Hef notað stundum augnkrem frá gamla apótekinu finnst það mjög gott. Er í smá vandræðum núna með að finna nýtt því ég er flutt erlendis." „Sensai frá Kanebo." „Nota Nourifusion, kostar ekki augun úr og er allgjör snilld. Það virkar þvílíkt vel, það er bæði til augnkrem og augngel. Augngelið er aðeins kælandi og vinnur vel á þreytt og þrútin augu..... get ekki verið án kremana frá þeim." „Bláalóns augnkremið er æði." „Nota alltaf augnkrem og sé mikin mun ef ég sleppi t.d viku eða svo. Besta augnkremið er frá Helena Rubinstein sem heitir Prodigy það er æði." „EGF húðdropana..alveg frábær vara. Fann minna fyrir ofnæmi í sumar vegna þeirra." Við þökkum frábæra þátttöku.

Mamma Jerry Hall vissi betur

„Mamma sagði eitt sinn við mig að auðvelt væri að halda í eiginmann," sagði Jerry Hall fyrrverandi eiginkona Mick Jagger. „Þú þarft að vera þjónn í stofunni, kokkur í eldhúsinu og hóra í svefnherberginu. Þá sagði ég við mömmu að ég myndi ráða manneskjur í fyrstu tvö hlutverkin sem hún nefndi en sjá sjálf um svefnherbergið." Meðfylgjandi myndir voru teknar af Jerry í gær í Ástralílu þar sem verslunarkeðjan Myer kynnti haustlínuna í ár.

Skrifar þriðju bókina um Bubba

„Vinnuferlið við bókina er nýfarið af stað og við Bubbi búnir að hittast nokkrum sinnum,“ segir Árni Árnason markaðsfræðingur en hann er með samtalsbók við tónlistarmanninn Bubba Morthens í bígerð og stefnir á að demba henni í næsta jólabókaflóð.

Skrifa saman ævisögu Miðbaugsmaddömunnar

„Við höfum fylgst með gangi og málaferlum Catalinu í þónokkurn tíma og það er ljóst að þarna er alveg ofboðslega mögnuð saga. Þetta er 49 kílóa, þeldökk kona sem gjörsamlega snýr þjóðfélaginu á haus,“ segir Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður.

Neverland komið á sölu

Neverland býli hins sáluga konungs poppsins Michaels Jackson er komið á sölu og ekki lítill verðmiði á húsinu sem er metið á rúma 3 milljarða íslenskra króna.

Lily Allen ólétt

Söngkonan og vandræðagemlingurinn Lily Allen á von á barni. Allen sagði fjölskyldu og vinum góðu fréttirnar um síðustu helgi og breska dagblaðið The Sun birti forsíðufrétt um málið í gær.

Beckham og Ramsay opna bar

David Beckham hyggst fara út í barrekstur á næstunni og skoðar nú að opna barinn The Queen Vic í Los Angeles. Barinn á að vera í breskum stíl og nafnið er vísun í eiginkonu Beckams, hina snoppufríðu Victoriu.

Barrymore hatar símakynlíf

Drew Barrymore hefur greint frá því að hún sé enginn aðdáandi fjarsambands og ástæðan sé sú að hún hati kynferðisleg símtöl.

Myndi rappa með Bieber

Leikarinn Mark Wahlberg var nýlega spurður hvort einhver tónlistarmaður gæti fengið hann til að rappa á ný. Wahlberg var sem kunnugt er fyrst þekktur sem rappari hljómsveitarinnar New Kids on the Block og kallaði sig þá Marky Mark.

Naomi Campell vitnar gegn stríðsherra í Haag

Naomi Campbell var í óvenjulegum aðstæðum í gær þegar hún sat í dómsal Stríðsdómstólsins í Haag. Fyrirsætan þurfti að bera vitni gegn meinta stríðsherranum og demantakónginum Charles Taylor en hún á að hafa fengið blóðdemanta að gjöf frá Taylor árið 1997.

Ný andlit á svið í Þjóðleikhúsið í vor

„Ég heyrði það einu sinni frá reyndum leikara að það væri frábært að geta planað líf sitt hálft ár fram í tímann í þessu starfi og nú get ég planað næstum eitt ár svo ég er gríðarlega sáttur,“ segir Ævar Þór Benediktsson, nýútskrifaður leikari.

Sigga Beinteins syngur með Páli Óskari

Á morgun fer fram hið árlega Gay Pride ball Páls Óskars í tilefni af Hinsegin dögum. Palli hefur haldið ball á Gay Pride frá því að hátíðin hófst 1999 og troðfyllt húsið í hvert einasta sinn. Síðustu ár hafa húsin stækkað með hátíðinni og hefur ballið verið í þónokkurn tíma á Nasa. Þar þeytir Palli skífum ásamt því að syngja öll sín bestu lög og virðist ekkert lát vera á vinsældum ballsins.

Lily Allen ólétt

Breska söngkonan Lily Allen, 25 ára, er ófrísk af fyrsta barni sínu. Lily Allen og kærasti hennar undanfarið ár, Sam Cooper, tilkynntu í dag að þau eiga von á sínu fyrsta barni. Fjölmiðlafulltrúi parsins send frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: Lily Allen og Sam Cooper tilkynna með ánægju að Lily gengur meðfyrsta barnið þeirra. Dagskrá söngkonunnar mun ekki breytast næstu vikur og mun hún skemmta næstu helgi eins og ákveðið hafði verið.

Undirbjó sig alla ævi fyrir hlutverkið

„Þetta var draumur fyir mig því ég hef alltaf viljað leika töframann. Mér finnst eins ég hafi verið að undibúa mig alla ævi fyrir þetta hlutverk," sagði Nicolas Cage leikari spurður út í ævintýramyndina The Sorcerer´s Apprentice sem sýnd er i Sambíóunum og hlutverk hans í myndinni en hann fer með hlutverk galdramannsins Balthazar Blake. „Pabbi reyndi alltaf að opna huga minn gagnvart því sem þig langar að skapa," sagði Nicolas.

Paris Hilton söluvænlegt vörumerki

Paris Hilton, 29 ára, á í samningaviðræðum við Macy´s verslanakeðjuna um að setja á markað nýjan ilm sérstaklega hannaðan fyrir ungar konur. Nú þegar hefur Paris markaðssett tíu ilmvötn en ilmurinn hennar Tease er mest selda ilmvatnið í umræddri verslunarkeðju í Bandaríkjunum. Macy´s var að tilkynna mér að Tease ilmvatnið mitt er mest seldi ilmurinn hjá þeim og núna er ég byrjuð að vinna í því að setja ellefta ilmvatnið í mínu nafni á markað," skrifaði Paris á Twitter síðuna sína.

Leið eins og apaketti

Mary-Kate Olsen, 24 ára, óskar engum að alast upp eins og hún og tvíburarsystir hennar, Ashley, gerðu þegar frægðarsól þeirra byrjaði að skína þegar þær birtust aðeins níu mánaða gamlar í bandaríska sjónvarpsþættinum Full House árið 1987. „Þegar við unnum vorum við eins og litlir apar að leika. Þegar ég horfi á þessa þætti tengi ég mig alls ekki við sjálfa mig. Ég myndi aldrei óska neinu barni að alast upp við sömu aðstæður eins og við gerðum en á sama tíma myndi ég aldrei vilja breyta neinu. Þetta var súrsætt líf," sagði Mary-Kate Olsen í tímaritinu Marie Claire.

Vaknar 04:30 til að æfa

Michelle Obama segist ekki getað verið án líkamsræktar en hún fer á fætur klukkan 04:30 á hverjum einasta morgni því það er eini tíminn sem hún á aflögu til að hreyfa sig. Stæltir handleggir Michelle hafa verið lofaðir viða um heim en hún er þekkt fyrir að hugsa sérstaklega vel um líkama sinn og svo er hún óhrædd við að ræða opinskátt hvernig hún heldur sér í formi. Michelle hugar líka vel að mataræðinu en leyfir sér líka að borða óhollustu. Ef henni finnst hún hafa farið yfir strikið þegar kemur að mataræðinu þá borðar hún eingöngu grænmeti í einn til tvo daga til að hreinsa eða afeitra (detoxa) líkama sinn. „Fyrir stuttu þurfti ég að hreinsa mig aðeins og borðaði eingöngu grænmeti. Það er í lagi að gera það í nokkra daga en ekki lengur. Ég trúi því að það sé gott að hreinsa líkamann með vissu millibili," sagði Michelle. „Þegar ég borða sykur langar mig alltaf í meiri sykur. Því meira sem þú innbyrðir af óhollustu því meiri óhollustu langar þig í. Ég er ein af þeim sem elska að borða og verð því að fara gætilega."

Daglega hraðgöngu með kvikindið

Söngkona Jessica Simpson æfir Crossfit þegar hún vill komast í gott form á stuttum tíma. Ég legg áherslu á hollt mataræði þegar ég æfi. Ég elska brún hrisgrjón og kjúkling en ég sneyði algjörlega hjá sælgæti ef ég get. Þegar ég er að farast af því að mig langar í sætindi þá fæ ég mér sykurlaust Jell-O," sagði Jessica. Við gerðum könnun á meðal lesenda Lífsins á Facebooksíðunni okkar og spurðum stundar þú líkamsrækt?

Sjá næstu 50 fréttir