Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nilli sýnir í Smáralind Listamaðurinn Jóhannes Níels, eða Nilli eins og hann er betur þekktur, opnaði listasýningu á Kaffi Energiu í Smáralind á þriðjudaginn var. Jóhannes Níels hefur unnið að leikmyndagerð um nokkurt skeið og hefur mikið unnið með leikhópnum Vesturport. Sýningin var vel sótt og lét Gísli Örn, leikari í Vesturporti, sig að sjálfsögðu ekki vanta. - sm 8.10.2009 01:00
Showgirls 2?! Handritshöfundurinn Marc Vorlander vinnur nú að framhaldi á hinni æðislega lélegu Showgirls, sem gladdi drengi á öllum aldri árið 1995 með slæmum söguþræði, afleitri fléttu og nóg af beru holdi. 8.10.2009 01:00
Nóg að gera hjá Mark Wahlberg Eins og kom fram í fjölmiðlum er gert ráð fyrir að Mark Wahlberg leiki aðalhlutverkið í endurgerðri og staðfærðri útgáfu af Reykjavík-Rotterdam. Baltasar Kormákur mun leikstýra en Working Title framleiðir myndina. Áður en að því kemur hefur Wahlberg í nógu að snúast en ferill þessa geðþekka leikara hefur ekki alltaf verið dans á rósum. 8.10.2009 00:30
Guð blessi Ísland Heimildarmyndin Guð blessi Ísland var frumsýnd í í Háskólabíói í gær. Heimildarmyndarinnar, sem er eftir Helga Felixson, hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Mikill fjöldi fólks var viðstaddur frumsýninguna og þrátt fyrir að Björgólfur Thor Björgólfsson hafi átt frátekið sæti í salnum var hann hvergi sjáanlegur. Myndin virtist fara vel ofan í sýningargesti, enda um sögulega viðburði að ræða. - sm 8.10.2009 00:30
Bíómyndin staðfest Sá orðrómur hefur lengi verið á kreiki að til stæði að gera bíómynd eftir sjónvarpsþáttunum Arrested Development. Kvikmyndavefsíða Empire greinir frá því í gær að nú sé þetta endanlega komið á hreint; kvikmyndin verði að veruleika. 8.10.2009 00:30
Dalandi vinsældir Sjónvarpsstöðin Spike TV, sem er sérstaklega ætluð ungum karlmönnum, tók sig til og bjó til lista yfir leikkonur sem þykja hafa dalað hvað mest í vinsældum síðustu ár. 8.10.2009 00:00
Kvennó: Erum tilbúin að sanna að við séum betri en MH „Það er alveg fáránlega góð stemning, sérstaklega hérna í Kvennó. Okkur hefur alltaf líkað illa við MH og við erum nú tilbúin til að sanna að við séum betri skóli. Það verður staðfest á morgun í fyrsta skipti,“ segir Sindri Már Hjartarson, gjaldkeri nemendafélagsins Keðjunnar. 7.10.2009 23:15
Stebbi trommari hættur í Fræbbblunum Stefán Karl Guðjónsson, „Stebbi í Fræbbblunum“, hefur sagt skilið við bandið. Hann og Valgarður Guðjónsson, „Valli í Fræbbblunum“, voru einu upprunalegu meðlimirnir bandsins. 7.10.2009 05:00
Lærðu lingóið á Hrauninu „Þetta er Hraunslingó, sem sagt lúxusrassgat,“ segir Ragnar Bragason, leikstjóri Fangavaktarinnar. 7.10.2009 04:00
Hannaði bók fyrir Al Gore „Það er skrítið að vinna með svona karakter. Í byrjun pældum við mikið í hvernig það væri og ég var hálfhræddur við að hitta hann, en hann var rosa næs,“ segir hönnuðurinn Hjalti Karlsson um Al Gore. 7.10.2009 03:00
FS sigrar Paintball-mót framhaldsskólanna Fjölbrautaskóli Suðurnesja sigraði Paintball-mót framhaldsskólanna þetta árið. Úrslitin fóru fram síðasta sunnudag og áttust þar við Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Verkmenntaskólinn á Akureyri. Úrslitin réðust ekki fyrr en í lokaleiknum þar sem spennan var í hámarki. 6.10.2009 09:27
Hálfnaktir folar og kreppuræður í Bláa sal - myndir Eins og Skólalíf hefur fjallað um undanfarna daga fór MR-VÍ dagurinn fram í síðustu viku og lauk honum með sannfærandi sigri MR-inga. Nú hefur Skólalíf komist yfir myndir frá ræðukeppni sem fram fór um kvöldið, en hægt er að skoða þær í albúminu hér að neðan. Þar gefur meðal annars að líta hálfnakta Verzló-fola í dúndrandi gír, og auðvitað ræðumennina sem tókust á af miklum móð um kreppuna. Ljósmyndari er Daníel Pétursson. 6.10.2009 20:11
„Bjart ár framundan hjá FG í ræðumennskunni" „Keppnin gekk frábærlega vel fyrir sig, allir ræðumenn komu vel undirbúnir til leiks og ljóst að mikil vinna lá þarna að baki. Við þjálfararnir vorum reglulega ánægðir með þetta. Það er bjart ár framundan hjá FG í ræðumennskunni,“ segir Viktor Hrafn Hólmgeirsson, einn þjálfara ræðuliðs Fjölbrautarskólans í Garðabæ. 6.10.2009 19:39
Reikningur frá brúðkaupi aldarinnar fyrir dóm Viðburðafyrirtækið Élan productions hefur höfðað skuldamál á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ingibjörgu Pálmadóttur vegna brúðkaups þeirra sem fyrirtækið skipulagði. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudaginn. Einar Þór Sverrisson, lögmaður þeirra hjóna, sagði í samtali við Fréttablaðið að málið snerist um lokagreiðslu og það væri ágreiningur um uppgjör. 6.10.2009 07:00
Missti af fluginu til London „Hann var mjög svekktur og ég auðvitað líka,“ segir fyrirsætan og neminn Kristrún Ösp Barkardóttir. 6.10.2009 06:00
Jói Fel og Jóhanna elda á sama tíma „Mér finnst Jói flottur og gera vel. Ég kemst ekki í sporin hans,“ segir fréttakonan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir um keppinaut sinn í matreiðsluþáttabransanum. 6.10.2009 05:00
Fjallabræður í kreppumynd „Þetta var klikkað, en dálítið kalt. Manni leist ekkert á þetta á tímabili og hélt að kórinn myndi steypast ofan í gjána“ segir Halldór Gunnar Pálsson, leiðtogi Fjallabræðra, en karlakórinn kemur fram í væntanlegri kreppukvikmynd Gunnars Sigurðssonar. Tökurnar fóru fram á Þingvöllum á laugardaginn. „Þetta voru rosa flottar tökur,“ segir leikstjórinn Gunnar ánægður, „flott veður og myndrænt.“ 6.10.2009 04:00
Dorrit sat kvöldverð með Naomi og Nicole Kidman Forsetafrúin Dorrit Moussaeiff sótti glæsilegan kvöldverð í New York þegar forsetahjónin voru þar í lok september. Varla varð þverfótað fyrir stórstjörnum í teitinu. 6.10.2009 03:30
Ekki neitt af fellingum og hellingur af kellingum - myndband Strákarnir í Verzló-skemmtiþættinum 12:00 hafa enn vakið athygli, og nú fyrir tónlistarmyndband sem þeir sérgerðu fyrir VÍ-MR daginn sem fram fór á föstudaginn síðasta. Þar eru þeir búnir að poppa ærlega upp Víva Verzló stefið, sem stuðningslið skólans syngur jafnan hástöfum þegar skólinn keppir á opinberum vetvangi. 6.10.2009 01:30
Mark Wahlberg leikur í Reykjavík-Rotterdam Hollywoodstjarnan Mark Wahlberg mun leika í endurgerð á myndinni Reykjavík-Rotterdam, að því er fullyrt er á vefnum Hollywood Reporter. Þar kemur fram að handritshöfundurinn Aaron Guzikowski muni skrifa handritið að enskri útgáfu myndarinnar en Baltasar Kormákur muni leikstýra. 6.10.2009 00:25
Októberfest að hefjast í Háskóla Íslands Dagana 8. - 10. október mun Stúdentaráð Háskóla Íslands í samstarfi við AM-Events halda árlegt Októberfest fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands. 5.10.2009 21:43
Frestar plötu vegna náms Leikkonan Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir hefur nóg á sinni könnu þessa dagana því auk þess að stunda nám við Háskóla Íslands vinnur hún að nýrri barnaplötu og er á leið til Argentínu sem þátttakandi í hinum vinsæla þætti Wipeout. 5.10.2009 06:00
Heppin að eiga góða mömmu Sigrún Halla Unnarsdóttir lauk nýverið BA-námi í fatahönnun við Designskolen Kolding í Danmörku og leggur nú stund á meistaranám við sama skóla. Útskriftarverkefni hennar vakti nokkra athygli, en Sigrún Halla valdi að hanna skrautlegar flíkur á karlmenn. Innblásturinn sótti hún til þriggja vinkvenna sinna með það að markmiði að skapa hinn fullkomna mann fyrir hverja og eina. 5.10.2009 06:00
Magnús Eiríksson: Þetta var eitthvað annað en hassið „Karlinn leyfði mér að lesa hana yfir og hún er mjög fín. Það eru sko engin leiðindi þarna í gangi enda er Magnús mikill sögumaður,“ segir Pálmi Gunnarsson, aðalsamstarfsmaður Magnúsar Eiríkssonar um ævisögu þess síðarnefnda, Reyndu aftur. Bókin er væntanleg 10. október. Tómas Hermannsson skráði söguna og er óhætt að segja að þetta sé berorðari ævisaga en gengur og gerist hjá íslenskum poppurum, meira „djúsí“. Magnús dregur hvergi undan í sögum af sukki, rokki og rugli. Ein allra furðulegasta sagan er um það þegar þeir Pálmi voru brottnumdir af geimverum úti á Snæfellsnesi. „Ég er sannfærður um að geimverur tóku okkur í smáferðalag,“ segir Magnús og Pálmi er á sama máli. „Ég bakka þessa sögu 100 prósent upp,“ segir hann. 5.10.2009 05:00
Glæsilegur Gunnar Lagasafn Gunnars Þórðarsonar er svo veglegt að hægur leikur yrði að fylla tveggja eða þriggja kvölda tónleikadagskrá með eintómum risasmellum. Sú varð ekki raunin á frábærum tónleikum fyrir fullu Borgarleikhúsi á föstudagskvöldið, heldur var dagskránni skipt smekklega milli hittara, minna þekktra laga og glænýrra. Þessi blanda virkaði þrælvel. 5.10.2009 04:30
Serðir Monster syngur um kreppuna „Það eru sirka tvær vikur í hana," segir Sverrir Stormsker um nýjustu plötuna sína, Tekið stærst upp í sig. Platan er lokahluti trílógíu, sem hófst árið 1995 með plötunni Tekið stórt upp í sig. Ári síðar kom Tekið stærra upp í sig og nú er sem sé síðasti hlutinn að koma út. „Ég gæti svo sem gert Tekið langstærst upp í sig, en þá væri ég að blóðmjólka hugmyndina," segir Sverrir, eða Serðir Monster eins og hann kallar sig á þessum plötum. „Þetta átti að vera groddaleg plata, vel klámvæn eins og hinar, en þá kom þessi skemmtilega kreppa sem mér fannst ég verða að taka fyrir," segir hann. „En er þetta samt ekki sami hluturinn, þannig séð, kreppa og klám? Það er verið að taka okkur í (blíbb) í báðum tilfellum." 5.10.2009 03:00
Bíómynd um ævi Harrys Samkvæmt tímaritinu The Daily Mail stendur til að gera kvikmynd um ævi Harrys Bretaprins. Leikstjórinn Peter Kosminsky vinnur að handriti myndarinnar sem mun bera heitið The Spare og munu tökur hefjast innan árs. „Ég finn til með Harry. Foreldrar hans skilja á mjög opinberan hátt, móðir hans deyr á sérstaklega dramatískan hátt og í kringum dauða hennar er einnig mikið fjölmiðlafár. 5.10.2009 03:00
Vill yngri kærasta Poppdívan Madonna mætti í útvarpsviðtal í þátt Ryans Seacrest á dögunum og þar var rætt um allt milli himins og jarðar. Þegar Seacrest spurði hana út í ungan kærasta hennar sagði hún: „Þeir verða að vera nógu gamlir til að klæða sig sjálfir. En yngra fólk er yfirleitt ævintýragjarnara, opnara og skemmtilegra en eldra fólk. Hefurðu hitt karlmenn á mínum aldri? Karlmenn á mínum aldri eru giftir eða fráskildir, fýldir, feitir eða sköllóttir.“ 5.10.2009 03:00
Borðuðu 40 pulsur í tilefni af 40 ára afmæli Menntaskólans við Sund Menntskælingarnir Atli Örn Heiðberg, Kristófer Páll Lentz, Halldór Gunnarsson og Páll Bergþórsson tóku á honum stóra sínum síðastliðinn fimmtudag og borðuðu 10 pulsur hver á rúmum hálftíma í tilefni af 40 ára afmæli Menntaskólans við Sund. 4.10.2009 18:34
Með leirdúfur í garðinum og silung í tjörninni Breski kaupsýslumaðurinn Kevin Stanford er íslendingum að góðu kunnur en hann stofnaði Karen Millen með konu sinni, sem Baugur síðar keypti. Í umtalaðri bók Ármanns Þorvaldssonar fyrrum forstjóra Singer & Friedlander, Ævintýraeyjan - Uppgangur og endalok fjármálaveldis, lýsir hann kynnum sínum af þessum magnaða kaupsýslumanni. 4.10.2009 15:00
MR vann Versló enn og aftur! Menntaskólinn í Reykjavík bar sigurorð af Verzlunarskóla Íslands í hinni árlegu keppni MR-ví. Um daginn voru haldnar nokkrar keppnir eins og kappát, boðhlaup, reipitog, öskurkeppni og fleira. Þar leiddu Verslingar með einu stigi en það var ekkert sem stöðvaði MR-inga um kvöldið. 3.10.2009 14:03
Umfjöllun: Sannfærandi MR-sigur í Bláa sal Menntaskólinn í Reykjavík sigraði Verzlunarskólann á hinum árlega kappdegi skólanna í gær. Verzlingar voru einu stigi yfir MR-ingum eftir keppni í ýmsum greinum í Hljómskálagarðinum yfir daginn. MR-ingum tókst hins vegar að snúa gæfunni sér í hag og unnu sannfærandi sigur í ræðukeppni um kvöldið. Þar með unnu MR-ingar MR-VÍ daginn 2009. 3.10.2009 16:25
Geir Jón rakaði sig fyrir eiginkonuna „Ég var að sýna konunni hvernig ég lít út. Við áttum trúlofunarafmæli og hana langaði að sjá hvernig ég leit út þegar við trúlofuðum okkur. Ég rakaði allt af og sagði „svona var ég“. Henni leist vel á og vill að ég verði svona,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. 3.10.2009 07:00
Obama kom ekki til Frikka „Hann mætti ekki en ég bind vonir við að hann komi í desember. Hann var líka svo stuttan tíma hérna,“ segir Friðrik Weisshappel, eigandi Laundromat í Kaupmannahöfn. Hann tók sig til, keypti heilsíðuauglýsingu í danska stórblaðinu Politiken og bauð Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, í hamborgara. 3.10.2009 07:00
Russell Brand bætir Katy Perry á listann Samkvæmt nýjustu fréttum vestanhafs fór ofurdólgurinn Russell Brand með hina fagursköpuðu Katy Perry í ferðalag til Taílands á dögunum. Engum sögum fer af því hvað gekk á í ferðinni, en Brand er þekktur kvennabósi með gríðarlega langan lista af ástkonum. 3.10.2009 06:30
Fagnar með Dwight Yorke „Ég ákvað að skella mér út. Það var skyndiákvörðun, það er alltaf skemmtilegast,“ segir fyrirsætan og neminn Kristrún Ösp Barkardóttir. Kristrún flaug út til London í morgun í boði fótboltakappans Dwight Yorke. 3.10.2009 06:30
Þjóðin losnar ekki við mig Gamansketsar Steinda Jr. sem sýndir voru á Skjáeinum í sumar gerðu piltinn að einum vinsælasta grínista landsins á mjög skömmum tíma. Fréttablaðið yfirheyrði þennan dreng sem er stoltur af því að búa í Mosfellsbæ. 3.10.2009 06:15
Kvikmyndagerð slátrað Íslenskir kvikmyndagerðarmenn eru æfir yfir þeim niðurskurði sem boðaður er á framlögum ríkisins til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Slátrun, segir Ari Kristinsson, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna. Í fjárlagafrumvarpi Steingríms J. Sigfússonar kemur fram að framlög til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands verði skorin niður um 206 milljónir, sem samsvarar þrjátíu prósenta niðurskurði. 3.10.2009 06:00
Auðvaldið fær misjafna dóma Nýjasta mynd Micahels Moore, Capitalism: A Love Story (Auðvald: Ástarsaga), fær afar misjafna dóma í Bandaríkjunum þar sem hún var nýlega frumsýnd. Rolling Stone segir: „Þessi mynd gæti breytt lífi þínu. Ég grét af hlátri.“ En Salon segir: „Þetta er sannarlega ástarsaga, en hún fjallar minnst um galla auðvaldsins og því meira um dálæti Michaels á sinni eigin röddu og því sem honum finnst vera sín eigin greind.“ Myndin verður frumsýnd á Íslandi 23. október í Háskólabíói. 3.10.2009 06:00
Letterman viðurkennir framhjáhald Spjallþáttastjórnandinn David Letterman kom áhorfendum sínum í opna skjöldu nýverið þegar hann viðurkenndi, í beinni útsendingu, að hann hefði átt í kynferðislegu sambandi við fjölmargar samstarfskonur sínar á undanförnum árum. 3.10.2009 05:00
Glæsilegt afmæli Maríu Söngskóli Maríu Bjarkar fagnaði fimmtán ára afmæli á fimmtudaginn en þar hafa margar af fremstu söngkonum landsins stigið sín fyrstu skref í átt til frægðar og frama. 3.10.2009 04:45
Kippi fær sjöu Tónlistarmaðurinn Guðmundur Vignir Karlsson hefur verið að grúska í tónlist undir nafninu Kippi Kaninus um nokkurra ára skeið. Fyrir fjórum árum gaf hann út plötuna Happens Secretly sem fékk ágætis viðtökur. Í vikunni dúkkaði upp dómur um plötuna á vef Clashmusic. 3.10.2009 04:30
Flateyjargáta í sjónvarpið „Hún er allavega farin í þróun, við sjáum svo til hvernig gengur að fjármagna hana,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson kvikmyndagerðarmaður. Hann samdi nýlega við glæpasagnarithöfundinn Viktor Arnar Ingólfsson um að gera sjónvarpsseríu byggða á bók Viktors, Flateyjargátu. Þeir tveir hafa áður ruglað saman reytum því Björn Brynjúlfur leikstýrði einnig þáttaröðinni Mannaveiðum sem byggð var á bók Viktors og sýnd á RÚV. 3.10.2009 04:30
Strumparnir og Egó snúa aftur Jólin og jólaplötuflóðið nálgast. Þótt margar stórkanónur eins og Bjöggi og Hjálmar hafi nú þegar gefið út sína diska er von á mörgum athyglisverðum útgáfum á næstu vikum og mánuðum. 3.10.2009 04:15
Rauðari Fabúla á nýrri plötu Ný plata með Fabúlu, In Your Skin, kemur út í lok október. „Platan var tekin upp niðri við höfn í Hafnarfirði í hljóðveri Rafnsbræðra, Error, við vængjaþyt og fiskiilm,“ segir Margrét Kristín Sigurðardóttir, Fabúla. „Platan dvelur meira við léttu hliðar lífsins frekar en þær angurværu eins og síðasta platan, Dusk, gerði. Dusk var blá, en þessi rauðari.“ 3.10.2009 04:15