Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leikrit um einelti „Þetta er unglingaleikrit fyrir alla aldurshópa,“ segir Kári Viðarsson leikari í leikhópnum The Fiasco Division. Hann setur upp leikritið Devotion í Leikfélagi Hafnarfjarðar ásamt Aldísi Davíðsdóttur leiklistarnema og Árna Grétari Jóhannssyni leikstjóranema. Bæði nema þau við Rose Bruford College í London en Kári er útskrifaður frá skólanum. 5.12.2009 04:45
Sól, sandur og fimm stjörnu hótel Ferðamálaráð Kanaríeyja fór í haust af stað með verkefnið No Winter Blues. Þeir fyrstu sem boðið var til eyjanna voru eitt hundrað Íslendingar. Hópurinn gisti á fimm stjörnu hótelum og borðaði kvöldverð á 268 rétta hlaðborðum þar sem vínið flaut eins og bjór. Atli Fannar Bjarkason slóst í för með hópnum á fjórða degi og fylgdi honum þangað til eyjarnar voru kvaddar. 5.12.2009 04:15
Jólamarkaður í Kjós „Við hættum að kalla þetta jólamarkað og ákváðum að kalla þetta frekar Aðfangamarkað, þar sem fólk kemur og kaupir aðföng fyrir jólin,“ segir Sigurbjörn Hjaltason, oddviti Kjósarhrepps. Aðfangamarkaðurinn fer fram í Félagsgarði í Kjós í milli klukkan 12 og 17, en þar munu heimamenn hafa framleiðsluvörur sínar á boðstólum og kvenfélagið sjá um veitingasölu. Þá verður einnig hægt að ná sér í jólatré inni í Hvalfirði. 5.12.2009 04:15
Vill líkjast Leo Leikarinn Zac Efron ætlar að taka sér Leonardo DiCaprio til fyrirmyndar þegar kemur að kvikmyndaferlinum. Ástæðan er sú að DiCaprio hefur leikið í mjög fjölbreyttum myndum, sem er einmitt það sem Efron langar að gera. 5.12.2009 04:00
Clooney bestur Nýjasta mynd George Clooney, Up in the Air, var kjörin besta kvikmyndin af hinum virtu bandarísku samtökunum National Board of Review. Litið er á verðlaunin sem þau fyrstu stóru af þeirri verðlaunabylgju sem er fram undan. Þau þykja gefa góða vísbendingu um það sem koma skal því síðustu tvær myndir sem hafa verið valdar bestar af samtökunum, No Country for Old Men og Slumdog Millionaire, voru báðar kjörnar bestu myndirnar á Óskarsverðlaununum. 5.12.2009 04:00
Kimono í Havarí Nóg verður í gangi í versluninni Havarí í Austurstræti í dag. Nýjasta plata Kimono er komin út og ætlar sveitin að halda tónleika í búðinni kl. 17. Myndlistarmaðurinn Harry Jóhannsson hefur bæst í hóp þeirra listamanna sem eiga verk í Havarí. Þá hefur bókverkaverslunin Útúrdúr flutt inn í verslunina. Útúrdúr var áður með bækistöð í Nýló og er algjör fjársjóðskista fagurra bóka. 5.12.2009 04:00
Helgi sjarmatröll heillar dömurnar - myndir „ Helgi Björns sjarmatröll söng nokkur vel valin lög og heillaði dömurnar upp úr skónum," útskýrir Svanhildur. „Ingveldur Ýr söngkona söng nokkur ljúf lög af nýjum diski sínum, Kristján Hreinsson skáld las frábær ástarljóð úr ljóðabók sinni Orðayndi og Sigrún Huld Þorgrímsdóttir las upp úr bók sinni „Þegar amma var ung" og sýndi okkur gamla hluti sem notaðir voru hér á árum áður." „Stemningin var einstaklega afslöppuð og þægileg, allir í jólaskapi og brosandi." Sjá má myndir sem Spessi tók í Blómaval í gær. 4.12.2009 17:15
Er þessi flegni kjóll grín? - myndir Breska söngkonan Katy Perry stillti sér upp á rauða dreglinum í fyrradag þegar tilnefningar Grammy verðlaunanna voru kynntar en verðlaunin verða veitt í byrjun næsa árs. Eins og myndirnar sýna vakti söngkonan athygli enda var kjóllinn hennar vægast sagt fleginn. Katy má skoða betur á myndunum. 4.12.2009 14:45
Bo eldar jólasteikina „Það er hefðbundið," svarar Björgvin Halldórsson þegar Jól.is spyr út í aðfangadagskvöldið hjá honum og fjölskyldunni. „Ég tek að mér eldamennskuna með dyggri hjálp fjölskyldunnar. Kalkúnn er eldaður. Eftir matinn er slappað vel af og opnaðar gjafir, horft á sjónvarpið og vakað fram eftir." Viðtalið við Björgvin má lesa í heild sinni hér. 4.12.2009 13:00
Þór og Danni í heilsuræktina „Það er lagt upp með að þeir séu komnir á fullt í heilsugeiranum og ætli að hasla sér völl í heilsurækt,“ segir leikarinn og bókaútgefandinn Karl Ágúst Úlfsson. Á teikniborðinu er nú loks kominn vísir að handriti fyrir næstu Líf-mynd og hefur því verið gefið vinnuheitið Heilbrigt líf. 4.12.2009 08:30
Svíar elska Skip Stefáns Mána Skipið eftir rithöfundinn Stefán Mána er spennusaga ársins að mati gagnrýnanda Kristianstadsbladet í Svíþjóð. 4.12.2009 07:00
Friðrik með barnamynd um leiðtogafundinn Friðrik Þór Friðriksson hyggst gera kvikmynd um leiðtogafundinn sem þeir Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjov sóttu í Höfða árið 1986 og kom Íslandi á heimskortið. Friðrik ætlar að vera á undan Hollywood. 4.12.2009 06:00
Sögur með útgáfuhóf Fyrirtækið Sögur útgáfa kynnti útgáfu sína í ár á Café Rosenberg á miðvikudag. Höfundar lásu upp úr verkum sínum og hljómsveitin Buff spilaði ásamt Magga Eiríks lög af nýrri plötu með lögum Magnúsar, Reyndu aftur. 4.12.2009 06:00
Krummi í staðinn fyrir Svölu „Þetta er alltaf jafnskemmtilegt og spennandi,“ segir Björgvin Halldórsson. Árlegir jólatónleikar hans í Laugardalshöll verða haldnir á morgun. Á meðal þeirra sem koma fram auk Björgvins verða Borgardætur, Diddú, Egill 4.12.2009 05:00
Hituðu upp fyrir Peaches Íslenska hljómsveitin Steed Lord hitaði upp fyrir tónlistarkonuna Peaches á tónleikum hennar í Los Angeles fyrir stuttu. Þrír meðlimir Steed Lord fluttu búferlum til borgar englanna fyrr í sumar og vinna nú ötullega að tónlist sinni. 4.12.2009 05:00
Kalli Berndsen farðar á rússnesku „Ég er ekkert hættur. Þetta er bara byrjunin,“ segir hárgreiðslu- og förðunarmeistarinn Karl Berndsen um nýjan mynddisk sinn þar sem hann kennir íslenskum konum að farða sig. Hann ætlar að láta þýða diskinn yfir á rússnesku og gefa hann út þar í landi á næsta ári. „Þetta var fjöldaframleitt í Litháen og við erum að fara þangað út í janúar. Konan þar er með dreifingarfyrirtæki og hún vill þýða þetta yfir á rússnesku. Rússland er náttúrlega massamarkaður,“ segir Karl. 4.12.2009 04:00
Jólatónleikar NFFG í Vídalínskirkju Það hefur margsannað sig að til þess að komast í gegnum hinn erfiða próftíma, þarf að hafa eitthvað að hlakka til. Þannig telja t.d. busarnir niður í 12.desember, en þá kemur Stekkjastaur til byggða, fyrstu jólasveinanna. 3.12.2009 23:21
Bókaútgefandinn á bak við linsuna Fréttablaðið hefur að undanförnu greint frá því að bókaútgefandinn Jóhann Páll Valdimarsson sé maðurinn á bak við fjölmargar ljósmyndir sem prýða bækur Forlagsins. Og þótti því rétt að heyra í Jóhanni sjálfum. 3.12.2009 07:00
Gestir orðnir tíu þúsund Tíu þúsundasti gestur leikritsins Harry og Heimir var leystur út með gjöfum í miðri sýningu í Borgarleikhúsinu á þriðjudagskvöld. Jón Torfason var sá heppni og fékk hann í sinn hlut veglegan blómvönd, gjafakort í 3.12.2009 06:30
Woods biðst afsökunar Lögreglan í Flórída tilkynnti í gær að kylfingurinn Tiger Woods yrði ekki ákærður fyrir að sýna gáleysi undir stýri, en eins og kunnugt er orðið ók hann bíl sínum á brunahana og inn í garð nágranna sinna. Honum var þó gert að greiða 164 dali í sekt. 3.12.2009 06:00
Andri fær peninga í verðlaun Tilkynnt var á fullveldisdaginn að Andri Snær Magnason væri þess heiðurs aðnjótandi að fá Kairos-verðlaunin þýsku sem stofnun Alfreds Toepfer í Hamborg veitir listamönnum sem hafa mótandi áhrif á samtíð sína. 3.12.2009 06:00
Ævisögur poppara fljúga út Aldrei áður í útgáfusögunni hafa ævisögur poppara verið jafn margar og í ár. Áður var hending ef ein ævisaga um tónlistarmann datt í hús á ári. Og allar þessar bækur virðast ganga mjög vel. 3.12.2009 06:00
Poppstjarna í ninjubúning Fjórar kvikmyndir verða frumsýndar um helgina. Extract er ný gamanmynd frá höfundum Office Space með Jason Bateman í aðalhlutverki. Batman leikur Joel sem verður að bjarga fyrirtækinu sínu frá undirförlum starfsmönnum sem vilja komast yfir það. Einnig þarf hann að bjarga hjónabandi sínu sem er í bráðri hættu. Myndin fær 7 af 10 mögulegum á kvikmyndasíðunni Imdb.com. 3.12.2009 06:00
Íslenskir hönnuðir til Færeyja Líkt og Fréttablaðið hefur greint frá mun skemmtistaðurinn Sirkús verða opnaður 11. desember í Færeyjum. Á jarðhæð hússins verður að auki starfrækt tískuverslun sem hefur hlotið nafnið Zoo, en þar verður til sölu hönnun eftir íslenska og færeyska hönnuði. 3.12.2009 06:00
Spyrja einu sinni í viku Pöbba-spurningakeppni fótboltasíðunnar Sammarinn.com sem hefur verið haldin á Enska barnum er orðin að vikulegum viðburði. Spurningakeppnin hófst í sumar og var þá haldin mánaðarlega. „Við erum dottnir í þennan vikulega pakka því aðsóknin er að aukast. Fyrst var þetta mikið til sama 3.12.2009 06:00
Lög handa mömmu og pabba Fjórða sólóplata Fabúlu, Margrétar Kristínar Sigurðardóttur, kemur út á föstudaginn. Platan heitir In Your Skin og inniheldur tólf lög sem eru flest sungin á ensku. 3.12.2009 06:00
Spenntur fyrir Glastonbury Bono, söngvari U2, segist vera himinlifandi og auðmjúkur yfir því að hljómsveitin verði eitt af þremur aðalnúmerunum á Glastonbury-hátíðinni næsta sumar. Þá verða fjörutíu ár liðin síðan hún var haldin í fyrsta sinn á Englandi. „Allir í hljómsveitinni eru mjög spenntir fyrir þessu,“ sagði Bono. 3.12.2009 06:00
Samkynhneigðir spila bingó Jólabingó Samtakanna 78 verður haldið í kvöld klukkan 20. „Þetta er ein helsta einstaka fjáröflun samtakanna,“ segir Lárus Ari Knútsson, formaður samtakanna. „Bingóið hefur stækkað ár frá ári og nú er svo komið að ekki dugar annað en sjálft mekka bingósins í Vinabæ í Skipholti. 3.12.2009 06:00
Vinsælt þjálfunarkerfi „Þetta er bara búið að slá algjörlega í gegn,“ segir Íris Huld Guðmundsdóttir. rekstrarstjóri og yfirleiðbeinandi Heilsuakademíunnar, um nýtt þjálfunarkerfi sem kallast TRX Suspension training. Þjálfunarkerfið er upprunnið í Navy Seals í Bandaríkjunum, en TRX-æfingar byggja upp jafnvægis- og djúpvöðvakerfi líkamans. 3.12.2009 06:00
Stofnuðu Framkvæmdafélag listamanna „Það má segja að þetta sé alhliða aðstoð við myndlistarmenn," segir Margrét Áskelsdóttir listfræðingur, en hún hefur stofnað Framkvæmdafélag listamanna, eða Frafl, ásamt vinkonu sinni Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur lögfræðingi. Félagið stofnuðu þær í nóvember og er markmið þess að skapa ný tækifæri fyrir myndlistarmenn, sjá um kynningu og sölu á verkum og gæta réttinda þeirra. 3.12.2009 06:00
Bermuda vekur athygli á Twitter „Twitter er alveg málið í dag,“ segir Íris Hólm, söngkona í Bermuda. Íris er tónlistarmaður mánaðarins á bandarísku vefsíðunni Studio Noize og er þar farið fögrum orðum um söng hennar, lagasmíðarnar og hljómsveitina. 3.12.2009 06:00
MAC styður HIV-Ísland alnæmissamtök „Efnahagsástandið hefur sett strik í reikninginn hjá HIV-Ísland alnæmissamtökunum þar sem mikið hefur dregið úr fjárframlögum til samtakanna. Því má segja að ekki hefði orðið af árlegri fræðslu til unglinga ef MAC Aids fund hefði ekki notið við,“ segir Lísa Einarsdóttir, vörumerkjastjóri MAC á Íslandi. Á laugardaginn fer fram árleg Viva Glam-fjáröflun 3.12.2009 05:30
Hrá Rihanna Á fjórðu plötunni sinni vill söngkonan Rihanna vera klúrari og meira töff en á poppsmellum eins og „Umbrella“. Platan heitir Rated R og kemur með viðvörunarmiða vegna sóðaorðbragðs. 3.12.2009 05:00
Meryl hin fullkomna Bandaríska leikkonan Meryl Streep er lifandi goðsögn í Hollwyood og er á sama stalli í huga bandarískra leikkvenna og Marlon Brando og Robert De Niro hjá körlunum. 3.12.2009 05:00
Putti á mús og pönk í hjarta Belafonte nefnist plata með samnefndum dúett Styrmis Sigurðssonar og Söru Marti Guðmundsdóttur. Sara söng með hljómsveitinni LHOOQ áður en hún sneri sér að leiklistinni, en Styrmir spilaði með í Pax Vobis og Grafík á 9. áratugnum áður en hann sneri sér að kvikmyndagerð. Á Belafonte plötunni mætast gamlir og nýir straumar með nokkuð nýstárlegri niðurstöðu. 3.12.2009 04:00
Tónlistarmenn súpa á jólaglöggi Útón hélt árlegt jólaglögg sitt á Café Rosenberg fyrir skömmu. Þar söfnuðust saman félög tónlistarmanna og útgefenda og báru saman bækur sínar. Helstu hagsmunafélög tónlistarmanna og útgefenda kynntu starfsemi sína á markaðstorgi og tónlistarmaðurinn Svavar Knútur sá um að koma gestum í jólaskap. Í boði var Rosenberg-glögg og piparkökur sem runnu ljúft ofan í gestina. 3.12.2009 04:00
Tiger sagður glaumgosi Blettur er fallinn á nánast flekklaust líf Tiger Woods en nú er því haldið fram að þessi besti kylfingur heims sé ekki allur þar sem hann er séður. 2.12.2009 06:30
Frímann seldur til DR 2 Sjónvarpsþáttaröð um ólíkindatólið og sjónvarpsmanninn Frímann Gunnarsson hefur verið seld til danska ríkissjónvarpsins og verður væntanlega sýnd á DR 2 þegar fram líða stundir 2.12.2009 06:00
Varð að svæfa Sólmund Hólm „Við vorum mjög góð við hann en það endaði með því að við urðum að láta svæfa greyið,“ segir tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson. 2.12.2009 06:00
Ekki dónalegur Dónadúett „Við höfum oft sagt að við syngjum ekki um dónaskap heldur um sannleikann. Það er bara hann sem er á tíðum dónalegur. Ekki við. Það er til dæmis staðreynd að til er fólk sem hefur bæði kynfæri karlmanns og 2.12.2009 06:00
Unnur Birna: Hugsar til ömmu á jólunum „Jólin þegar amma heitin, Jórunn, var hjá okkur og kenndi öllum við borðhaldið að skála rétt og almennilega," svarar Unnur Birna Vilhjálmsdóttir aðspurð um eftirminnileg jól. „En að hennar mati gerðum við hin þetta ekki alveg nógu „vel"," segir hún brosandi og heldur áfram: „Við höfum skálað henni til heiðurs á hverju aðfangadagskvöldi síðan." Sjá viðtalið í heild sinni við Unni Birnu á Jól.is. 1.12.2009 13:00
Valin versta fyrirmyndin Victoria Beckham hefur verið valin óheilbrigðasta fyrirmynd síðustu 50 ára. 1.12.2009 07:30
Vinkonur búa til Heilaspuna Vinkonurnar Sesselja G. Vilhjálmsdóttir og Valgerður Halldórsdóttir senda í vikunni frá sér borðspilið Heilaspuni. Spilið er byggt á íslenskri, tungu, þjóðlífi, menningu og sögu. „Þetta er keppni í hver er bestur í að bulla og vera skapandi,“ segja þær. „Ef þú ert í skemmtilegum hópi getur þetta verið mjög fyndið spil.“ 1.12.2009 07:30
Tiger Woods vill fá næði Kylfingurinn Tiger Woods slasaðist illa í andliti eftir að hafa ekið bíl sínum úr heimreið sinni á nálægan brunahana og á tré í garði nágrannans. Miklar vangaveltur hafa verið uppi um tildrög slysins, en sumir halda að Woods hafi ætlað að keyra burt eftir hávaðasamt rifrildi við eiginkonu sína, sænsku 1.12.2009 07:00
Spice Girls-söngleikur í vinnslu Undirbúningur fyrir Spice Girls-söngleik er nú í fullum gangi. Samkvæmt heimildum breska dagblaðsins The Sun er búið að ákveða frumsýningardag og er nú verið að skrifa handritið, en söngleikurinn mun heita Viva Forever eftir lagi sveitarinnar sem kom út árið 1998. 1.12.2009 06:00