Innlent

Fréttamynd

Jarðboranir kaupa Sæþór

Jarðboranir hf., dótturfélag Atorku Group, hefur keypt allt hlutafé í verktakafyrirtækinu Sæþór ehf., ásamt tækjakosti og búnaði. Kaupverð nemur 130 milljónum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stofna á sérstakan Byggðasjóð

Stofnaður verður sérstakur Byggðasjóður ef nýtt frumvarp um Nýsköpunarmiðstöð fær fram að ganga. Ríkisstjórnin hefur samþykkt frumvarp iðnaðar- og viðskiparáðherra um stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar. Hún verður til við sameiningu Iðntæknistofnunar, Byggðastofnunar og Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins.

Innlent
Fréttamynd

Allt á fullt í vegamálum

Hringvegurinn upp úr Jökuldal á Austurlandi og Uxahryggjavegur á milli Þingvalla og Borgarfjarðar verða líklega boðnir út í byrjun næstu viku. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, tilkynnti í gær að skapast hefði svigrúm til að hefja samgöngubætur á ný en í júní voru öll útboð á vegum Vegagerðar stöðvuð.

Innlent
Fréttamynd

Bætt við stöðugildi hjá umboðsmanni barna

Bætt verður við einu stöðugildi hjá umboðsmanni barna. Í fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir að fjárveiting til umboðsmannsins hækki um 5,5 milljónir króna en með hækkuninni á að vera hægt að bæta við einu stöðugildi sérfræðings hjá embættinu.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir varnarsamninginn

Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt samninginn við Bandaríkin harðlega á Alþingi í dag eftir að forsætisráðherra gerði grein fyrir varnarmálunum upp úr klukkan hálf tvö. Samfylkingin krafðist þess að leynd yrði tafarlaust létt af varnarþætti samningsins.

Innlent
Fréttamynd

Nýr fjárfestingarbanki á Akureyri

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hefur yfirgefið herbúðir Kaupþings, en hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra eigin viðskipta bankans. Með honum hverfur á braut hópur starfsmanna úr stöðutöku bankans. Þorvaldur segir hópinn taka þátt í stofnun fyrirtækis í fjármálaþjónustu með höfuðstöðvar á Akureyri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hundrað ökumenn stungu af frá árekstri

Lögreglunni í Reykjavík bárust tilkynningar um 544 árekstra í septembermánuði. Í nítíu og sjö tilvikum stungu ökumenn af vettvangi, en ef tjónvaldur finnst ekki getur sá sem fyrir tjóninu varð ekki sótt um bætur frá tryggingarfélögunum. Á hverju ári koma á borð lögreglunnar á bilinu sjö til átta hundruð mál þar sem stungið hefur verið af af vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Síldin gefur minna í aðra hönd

Íslenskir og norskir útvegsmenn og sjómenn gjalda þess nú að hafa yfirfyllt markaði fyrir frysta síld í fyrra, þannig að megnið af aflanum núna fer í bræðslu, sem gefur minna í aðra hönd.

Innlent
Fréttamynd

Samgöngubætur hafnar á ný

Ríkisstjórnin segir svigrúm til að hefja samböngubætur á ný en í júní voru öll útboð vegna Vegagerðar stöðvuð. Formaður Frjálslynda flokksins segir ríkið hafa fundið stórmerkilega leið til að slá á þennslu.

Innlent
Fréttamynd

Vilja banna botnvörpuveiðar

Umhverfisverndarsinnar leggja nú hart að allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að banna botnvörpuveiðar. Umræður um bann við slíkum veiðum á alþjóðlegum hafsvæðum fara fram á þinginu í vikunni.

Erlent
Fréttamynd

Kreditkortavelta heimilanna eykst

Kreditkortavelta heimilanna jókst um 22% á fyrstu átta mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Debetkortavelta jókst um 7,7% á þessu tímabili.

Innlent
Fréttamynd

Farþegum til landsins fjölgar

Farþegum sem komu til landsins um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 14,6% á fyrstu átta mánuðum ársins, samanborið við saman tíma í fyrra. Samtals komu 612 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll fyrstu átta mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra komu 534 þúsund farþegar.

Innlent
Fréttamynd

Á stuttaermabol í kuldann

Hundrað og fimmtíu manna hópur, sem kom til Akureyrar með leiguflugi í nótt, var tekinn niður á jörðina í orðsins fyllstu merkingu. Fólkið hafði stigið upp í flugvélina í fjörutíu stiga hita á Mallorca, en hiti var við frostmark á Akureyri þegar það gekk út úr vélinni í stuttermabolum

Innlent
Fréttamynd

Síldin brædd í mjöl

Lang mest af síldinni, sem veiðst hefur á þessari vertíð, hefur verið brætt í mjöl til skepnufóðurs, en ekki til menneldis eins og í fyrra. Ástæðan er að að bæði Íslendingar og Norðmenn frystu allt of mikið af síld í fyrra þannig að markaðurinn yfirfylltist og birgðir hlóðust upp.

Innlent
Fréttamynd

Stöð 2 verði efld

Efling ljósvakamiðla 365 er meðal þess sem stjórnendur Dagsbrúnar horfa til nú þegar unnið er að uppskiptingu félagsins í tvo hluta, 365 hf. og Teymis hf. Er þar aðallega horft til Stöðvar 2 þar sem stjórnendur félagsins sjá aukna vaxtarmöguleika en alls mun einn þriðji hluti eigna Dagsbrúnar falla í fjölmiðlahlutann.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samdráttur hjá 3i Group

Breski fjárfestingasjóðurinn 3i, sem sérhæfir sig í yfirtökum á skráðum félögum, greindi frá því að fjárfestingatekjur hans hefðu fallið um þriðjung frá því í apríl til loka ágúst miðað við sama tímabil í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Í Alþjóðahús vegna ofbeldis

Í hverri viku koma ein eða fleiri konur af erlendu bergi brotnar, sem búsettar eru hér, í Alþjóðahúsið vegna ofbeldis sem þær hafa orðið fyrir. Þessar konur eru ýmist giftar eða í sambúð með íslenskum eða erlendum mönnum, að sögn Margrétar Steinarsdóttur, lögfræðings Alþjóðahúss. Eiginmenn tveggja þessara kvenna höfðu selt þær í vændi.

Innlent
Fréttamynd

Mótmælt á lokuðu vinnusvæði

Fimmtán mótmælendur hafa verið ákærðir fyrir að halda til inni á lokuðu vinnusvæði við Kárahnjúka og neita að hlýða skipunum lögreglu. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Austurlands í gær. Þrír Íslendingar eru meðal ákærðu en tólf útlendingar.

Innlent
Fréttamynd

707 milljóna halli á rekstri Landspítala

Enn eykst rekstrarhalli Landspítala - háskólasjúkrahúss. Eftir fyrstu sex mánuði ársins var hann 4,2 milljónir en er nú 707 milljónir tveimur mánuðum síðar. Þar vega þyngst aukin starfsemi, þensla á vinnumarkaði og óhagstæð gengisþróun.

Innlent
Fréttamynd

Var ótvírætt í forystusveit flokksins

Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segist ekki muna til þess að nokkur framkvæmdastjóri í íslenskum stjórnmálaflokki hafi haft jafn afgerandi völd og áhrif innan flokksins sem hann starfar fyrir og Kjartan.

Innlent
Fréttamynd

Yfirheyrslum ekki lokið enn

Lögreglan í Reykjavíkur hefur enn til rannsóknar meint kynferðisbrot gegn fleiri en einni stúlku. Rúmlega fimmtugum karlmanni hefur verið sleppt úr haldi en hann neitaði sök í málinu. Yfirheyrslum yfir stúlkunum, sem maðurinn er grunaður um að hafa beitt kynferðislegu ofbeldi, er ekki lokið og sögn Bjarnþórs Aðalsteinssonar, hjá Lögreglunni í Reykjavík, liggur ekki fyrir hvenær rannsókninni lýkur.

Innlent
Fréttamynd

Kenningar sem notaðar eru eiga ekki við

Sigríður Finsen, formaður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og forseti bæjarstjórnar í Grundarfirði, segir að sú mynd sem dregin hafi verið upp af Vesturlandi í grein Fréttablaðsins í gær lýsi því ekki sem raunverulega sé að gerast í landshlutanum.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið sparar í lyfjakaupum

Lækka á kostnað ríkisins vegna lyfjakaupa um hálfan milljarð króna á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Þremur föngum var ráðinn bani

Rhuhel Ahmed og Asif Iqbal, sem sátu í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu í tvö ár, fullyrða að ekki færri en þrír menn hafi verið myrtir þar, þótt bandarísk yfirvöld hafi haldið fram að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Nær útilokað hafi verið að fremja sjálfsvíg vegna mikillar öryggisgæslu. Þá segjast þeir vita til þess að vörður hafi gengið í skrokk á geðsjúkum manni. Ahmed og Iqbal eru hér á landi í tengslum við sýningu kvikmyndarinnar Leiðin til Guantanamo, og kom þetta fram í pallborðsumræðum um fangabúðirnar í Iðnó í gær.

Innlent