Menning

Verk um vináttuna frumsýnt í Gerðubergi

Leikbrúðuland frumsýnir Vináttu í Gerðubergi um helgina. Sýningin samanstendur af fjórum stuttum verkum um ýmsar hliðar vináttu. Það eru þau Helga Steffensen, Örn Árnason, Erna Guðmarsdóttir og Aldís Davíðsdóttir sem eiga veg og vanda af sýningunni, sem samanstendur af verkunum Vökudraumur, Regnbogafiskurinn, Risinn eigingjarni og Prinsessan og froskurinn.

Menning

Cosmosis - Cosmobile

Í dag verður Sjónlistaþing á Skólavörðustígnum þar sýna og skýra myndlistarmennirnir Bjarni H. Þórarinsson, Ómar Stefánsson og Guðmundur Oddur Magnússon samstarfsverkefnið Cosmosis - Cosmobile í Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg 5.

Menning

Söguslóðir DV

Nýtt útgáfufélag DV, Dagblaðið-Vísir ehf., efnir til göngu um söguslóðir DV á morgun, laugardaginn 10. febrúar. Hefst gangan klukkan 11:00 við Síðumúla 12 í Reykjavík, en langferðabifreið verður til staðar þar sem hluti leiðarinnar verður ekinn. Gengið verður undir leiðsögn Jónasar Kristjánssonar, fyrrverandi ritstjóra DV.

Menning

Linda Björk í DaLí gallery

Linda Björk Ólafsdóttir opnar málverkasýningu í DaLí galleryi á Akureyri laugardaginn 10. febraúar næstkomandi. Hefst sýningin klukkan 17:00. Verður sýningin opin til 25. febrúar og eru allir velkomnir.

Menning

Stúdentadansflokkurinn sýnir Sannar ástar-Sögur

Stúdentadansflokkurinn, sem saman stendur af dönsurum sem eiga það semeiginlegt að stunda háskólanám, sýnir nú dansleikhúsverkið Sannar ástar-Sögur. Verk þetta er frumraun flokksins. Verkið Sannar ástar-Sögur fjallar um ástina í hinum ýmsu myndum og sjá áhorfendur sýninguna lifna við fyrir framan þá, í bókstaflegum skilningi.

Menning

Baugur styrkir listafólk

Síðla mánudags var úthlutað í þriðja sinn úr Styrktarsjóði Baugs-grúppunnar en sjóðurinn sem stofnað var til sumarið 2005 veitti þá styrki til ýmissa líknar- og velferðarmála auk menningar og listalífs. Það er Jóhannes Jónsson sem er formaður sjóðstjórnar, en með honum sitja þau í stjórninni Ingibjörg Pálmadóttir og Hreinn Loftsson.

Menning

Dýrasta bókin

Ritverk sem kallað hefur verið dýrasta bók í heimi er nú til sýnis í Þýskalandi. Vefritið Deutsche Welle greinir frá því að bók þessi sé svo viðkvæm að almenningi gefst aðeins kostur á að sjá hana í sex vikur á ári.

Menning

Listahátíðin í Björgvin

Það verða eitt hundrað og sextíu dagskráratriði í boði á Listahátíðinni í Bergen í vor, en þar er dagskráin kynnt. Listahátíðin í Reykjavík kynnir sína dagskrá á föstudag.

Menning

Rafræn útgáfa

Félag íslenskra bókaútgefenda býður til morgunverðarfundar á föstudaginn þar sem litið verður yfir stöðu rafrænnar bókaútgáfu á Íslandi og rædd helstu úrlausnarefni og tækifæri á þeim vettvangi.

Menning

Maður sem giftist konu með skegg

Það er frumsýning í Óperunni á föstudagskvöldið og leikstjórinn og hans lið eru að komast á lygnan sjó: tæknin er að komast í lag og söngvararnir teknir að setjast í hlutverkin sín.

Menning

Endurskapa sögulegt vistkerfi

Velgengni samvinnuverkefnisins Wikipedia hefur alið af sér annað netfyrirbrigði sem kennt er við Wiki-skáldskap. Forlagið Penguin hefur í samvinnu við De Montfort-háskólann í Leicester stofnað til verkefnis sem þau kenna við „Milljón mörgæsir“ og er einhvers konar opin ritæfing fyrir áhugasama netverja sem vilja taka þátt í því að skrifa skáldsögu.

Menning

Miðvikudagserindi Orkugarðs

Stefanía G. Halldórsdóttir, sérfræðingur á Vatnamælingum Orkustofnunar, mun flytja miðvikudagserindi Orkustofnunar næstkomandi miðvikudag. Ber erindi hennar heitið Vatnafarsleg flokkum vatnssvæða á Íslandi - Hvernig bragðast landsvæði við úrkomu og miðla henni? Verður fræðsluerindið haldið í Víðigemli, sal Orkugarðs að Grensásvegi 9 í Reykjavík, á milli klukkan 13:00 og 14:00 miðvikudaginn 7. febrúar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomir.

Menning

Mínus hitar upp fyrir Incubus

Hljómsveitin Mínus mun hita upp fyrir tónleika Incubus í Laugardalshöll sem fram fara þann 3. mars. Hljómsveitin mun flytja efni af nýrri breiðskífu. Þetta eru fyrstu tónleikar Mínus hér á landi síðan á Iceland Airwaves-hátíðinni í fyrra. Væntanleg breiðskífa var tekin upp í Los Angeles. Incubus þykri með betri tónleikasveitum Bandaríkjanna og nýjasta plata sveitarinnar, Light Granades fór beint í fyrsta sæti Billboard listans þegar hún kom út.

Menning

Heimspekifyrirlestur

Félag áhugamanna um heimspeki verður með fyrirlestur á morgun, laugardagin 3. febrúar kl: 15:00. Fyrirlesturinn ber heitið ,,Smalakrókar - Paul Ricoeur um sjálfsvitund og samsemd”.

Menning

Leiðsla – Ný sýning í Listasafni ASÍ

Á morgun, laugardaginn 3. febrúar klukkan 15:00, opnar sýning Eyglóar Harðardóttur í Ásmundarsal og Gryfjunni í Listasfani ASÍ. Ber sýningin heitið Leiðsla. Á sýningunni má sjá skjáverk, málverk á pappír, teikningar og þrívíð verk sem öll eru unnin með Ásmundarsal og Gryfjuna í huga.

Menning

Útgáfu- og upplestrarkvöld Nykurs

Út eru komnar þrjár ljóðabækur hjá útgáfu- og skáldafélaginu Nykri, og Því efnir Nykurinn til upplestrarkvölds á veitingastaðnum Litli ljóti Andarunginn við Lækjargötu n.k föstudagskvöld, 2. feb, kl. 21:00

Menning

Fjölbreytt sóknarfæri

Dr. Halldór Björn Runólfsson var nýlega skipaður í embætti forstöðumanns Listasafns Íslands af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Halldór Björn lauk doktorsprófi frá sjónlista- og fagurfræðideild við Sorbonne-háskóla í París á síðasta ári og starfar sem lektor og yfirmaður listfræða við Listaháskóla Íslands. Hann mun taka við starfinu, sem veitt er til fimm ára, þann 1. mars næstkomandi.

Menning

Ingibjörg Sólrún til sölu fyrir rétt verð

„Ingibjörg er verðugt viðfangsefni fyrir málara,“ segir Björn T. Hauksson, ljósmyndari og málari, en hann hefur stillt olíumálverki sem hann málaði af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, upp í glugga á ljósmyndastofu sinni á Óðinsgötu.

Menning

Þrælar þorrans

Skáldafélagsskapurinn Nýhil stendur fyrir upplestrarkvöldi í Stúdentakjallaranum við Hringbraut í kvöld.

Menning

Boðið í vettlinga Bjarts í Sumarhúsum

„Þetta er auðvitað tilbúningur og í gamni gert en það hafa margir tekið þessu alvarlega og boðið í vettlingana,“ segir Bragi Kristjónsson fornbókasali. Glöggir vegfarendur hafa rekið augun í forláta ullarvettlinga í glugga Bókarinnar, fornbókaverslun Braga við Klapparstíg, sem merktir eru sjálfum Bjarti úr Sumarhúsi, úr Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness. Tekið er skýrt fram að vettlingarnir séu ekki falir.

Menning

Faust í þýðingu Coleridge?

Stefnt er að því að þýðing enska skáldsins Samuel Taylor Coleridge á Faust, höfuðverki þýska starfsbróður hans Goethes, komi út hjá Oxford University Press í september. Þýðing þessi ku hafa legið í gleymsku í næstum tvær aldir en rómantíkerinn er talinn hafa tekið að sér að þýða verkið í kringum árið 1814. Vefmiðill breska dagblaðsins Independent greindi frá þessu nýlega.

Menning

Grasrótarstarf í galleriBOXi

GalleriBOX er gamall kontór í mjólkurvinnslu norður á Akureyri. Listalífið iðar í Gilinu en fjórar metnaðarfullar konur fara með lyklavöldin í Boxinu, sem hýsir fjölmargar sýningar á hverju ári.

Menning

Strætóbílstjóri opnar myndlistarsýningu

Strætóbílstjórinn Þórhallur Sigurðsson opnaði sína fyrstu opinberu málverkasýningu á sextíu ára afmælisdegi alnafna síns Ladda síðastliðinn laugardag. „Ég hef málað síðustu fjögur árin en ekki nógu mikið samt. Núna er ég að gefa þessu sjéns almennilega en ég hef alltaf hugsað mér að leggja myndlistina fyrir mig,“ segir Þórhallur, sem hefur starfað sem strætóbílstjóri í fjögur ár.

Menning

Nýsmíðar í Listasafni Íslands

Tónlistarhópurinn Aton heldur tónleika í Listasafni Íslands kl. 20 í kvöld – á fjórða degi Myrkra músíkdaga. Aton-hópurinn er skipaður ungu tónlistarfólki sem sérhæfir sig í nýrri íslenskri tónlist og hefur leikið á hátíðinni undanfarin ár.

Menning

Hið þekkta og óþekkta

Myndlistarmennirnir Hlaðgerður Íris Björnsdóttir og Aron Reyr Sverrisson opna sýninu á verkum sínum í Listasafni Reykjanesbæjar á morgun kl. 14. Sýningin ber yfirskriftina "Tvísýna“ og er haldin í Duushúsum.

Menning

Áttleysur og útþráin

Í hinu snyrtilega húsnæði gallerís i8 á Klapparstíg stendur frakkaklæddur gestur og heldur myndlistarmanni á snakki. Myndlistarmaðurinn er búinn að koma fyrir tveimur stórum stálplötulaga verkum á gólfinu en umhverfis eru 32 ferhyrnd en aflöng verk í römmum: öll sýna það sama - fleyg úr áttunum 32 á áttavitanum.

Menning

Hvað leynist í skúffunum?

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka efnir árlega til verðlaunasamkeppni og auglýsir eftir handritum að skáldsögum fyrir börn og unglinga. Sagan skal vera að lágmarki fimmtíu blaðsíður að lengd eða um tuttugu þúsund orð. Ekki er gert ráð fyrir því að verðlaunasagan verði myndskreytt.

Menning

Öðruvísi saga - Fjórar stjörnur

Bókin hentar vel ungum lesendum og er ég viss um að fólk á þeim aldri hefur oft leitt hugann að svipuðum aðstæðum og Kæja hugsar um. Hugleiðingar hennar gætu þannig vakið fleiri spurningar og veitt kjörið tækifæri fyrir hina eldri að ræða við hina yngri um stríðsátök, söguna og ástandið í dag.

Menning