Sport

Anton Sveinn vann riðilinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Anton Sveinn Mckee var 0,41 sekúndu frá Íslandsmeti sínu.
Anton Sveinn Mckee var 0,41 sekúndu frá Íslandsmeti sínu. Clive Rose/Getty Images

Sundamaðurinn Anton Sveinn McKee kom fyrstur í mark í öðrum undanriðli Ólympíuleikana í 100 metra bringusundi í dag.

Anton kom í mark á tímanum 1:00,62, sem er aðeins 0,41 sekúndu frá Íslandsmeti hans sem er 1:00,21.

Hann hóf sundið vel og var með forystuna þegar keppendur snéru við. Hann hélt forystunni út allt sundið og fagnaði því að lokum sigri í undanriðlinum.

Tími Antons dugar þó ekki til að koma honum inn í undanúrslitin og endar hann í 25. sæti, en aðeins 16 keppendur komast áfram úr undanriðlinum. Anton hefur þó ekki lokið keppni því hann keppir einnig í 200 metra bringusundi næstkomandi þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×