Fótbolti

Nökkvi Þeyr lagði upp í eins marks sigri St. Louis

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Nökkvi Þeyr fagnar hér með liðsfélögum sínum.
Nökkvi Þeyr fagnar hér með liðsfélögum sínum. St. Louis City

Nökkvi Þeyr Þórisson lagði upp fyrra mark St. Louis City á 2-1 sigri liðsins á FC Dallas í bandaríska deildarbikarnum í knattspyrnu.

Nökkvi Þeyr var í byrjunarliði St. Louis og lagði upp jöfnunarmark liðsins þegar hann gaf fyrir frá hægri og Cedric Teuchert skilaði boltanum í netið. Staðan 1-1 í hálfleik.

Skömmu eftir að St. Louis hafði jafnað fékk FC Dallas vítaspyrnu sem fór forgörðum en það gerði spyrna St. Louis ekki í síðari hálfleik. Lokatölur 2-1 Nökkva Þey og félögum í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×