Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óli Palli frumsýnir Þyrlurokksmynd Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2, frumsýnir á næstunni heimildarmynd um tónleikana Þyrlurokk sem hann hélt í heimabæ sínum Akranesi fyrir tuttugu árum. 8.6.2010 03:30
Mamma Mia! til Kína Söngleikurinn Mamma Mia! verður fyrsti vestræni söngleikurinn sem settur verður í almennar sýningar í Kína. Mamma Mia! byggir sem kunnugt er á lögum sænsku hljómsveitarinnar Abba en þetta verður þrettánda tungumálið sem söngleikurinn er þýddur á. 8.6.2010 03:15
Tónleikar hjá Nammidegi Hljómsveitin Nammidagur heldur tónleika á Dillon á fimmtudag og á Karamba daginn eftir. 8.6.2010 03:00
Fjármagnar plötu á netinu „Í raun er ég að selja diskinn fyrirfram," segir djasspíanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir sem notar síðuna Kickstarter.com til að fjármagna plötu sem hún hljóðritaði í New York í fyrra. Hún ætlar einnig að nota peningana í útvarpsherferð í Bandaríkjunum. 8.6.2010 03:00
Athugasemd frá ráðherra Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur gert athugasemd vegna fréttar í menningu á laugardag um fjárveitingar á síðustu ellefu árum til ýmissa aðila vegna bókaútgáfuverkefna af ýmsu tagi. Segir Katrín að ranghermt sé í fréttinni að fjárveitingar þessar séu af ráðstöfunar-fé menntamálaráðuneytis, heldur komi þær inn í fjárlög ár hvert frá fjárveitinganefnd. 8.6.2010 03:00
22 myndir á Stuttmyndadögum Alls hafa 22 nýjar íslenskar stuttmyndir verið valdar á Stuttmyndadaga í Reykjavík sem haldnir verða í Kringlubíói á miðvikudag. Tæplega fjörutíu myndir bárust en dómnefndin valdi þær 22 bestu. 8.6.2010 02:00
Hafnaði Coke og Pepsi Breska söngkonan M.I.A hefur hafnað tilboðum frá gosdrykkjarisunum Coke og Pepsi um að gerast andlit auglýsingaherferða þeirra. 8.6.2010 01:30
Stúlknakór í Hallgrímskirkju Stúlknakór Kaupmannahafnar kemur fram á tónleikum í Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20. 8.6.2010 01:30
Willis auglýsir vodka Leikarinn Bruce Willis hefur að undanförnu birst í auglýsingum á netinu fyrir pólska vodkategund. „Ég er ekki bara fjallmyndarleg hasarmyndahetja með sönghæfileika," grínast Willis í einni auglýsingunni. Willis, sem er 55 ára, á hlut í fyrirtækinu Belvedere SA, sem framleiðir vodkann. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins Willis hafa verið valinn vegna þess að hann væri alvöru náungi 8.6.2010 00:30
Stjörnurnar fagna með MTV Kvikmyndaverðlaun MTV voru veitt um helgina og skærustu stjörnurnar mættu að sjálfsögðu á svæðið. 8.6.2010 00:01
Pacas kemur til bjargar - myndband Í stórafmæli Sigríðar Klingenberg í Nauthólsvík í gærkvöldi urðum við vitni að góðmennsku Pacas þegar hann náði að halda upp klæðskipting sem missteig sig eitthvað í miðjum dansi. Fjöldi klæðskiptinga dansaði eins og myndbandið sýnir fyrir fjölda gesta sem saman voru komnir til að fagna með Sigríði og vinum hennar og fjölskyldu. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið efst í fréttinni ef þú vilt sjá Pacas og umræddan klæðskipting sem leiðist ekki dansinn. 7.6.2010 18:08
Stórstjörnurnar vilja taka þátt í Glee-æðinu Einn vinsælasti þátturinn í heiminum í dag hefur göngu sína aftur í kvöld á Stöð 2. Nýju þættirnir verða að sjálfsögðu uppfullir af þekktum lögum og segir sagan að stærstu poppstjörnur heims sláist um að koma lögum sínum að enda slá þau undantekningarlaust í gegn og seljast í bílförmum, einkum á iTunes-vefnum. 7.6.2010 17:48
Óþekk jólasveinastelpa - myndband „Dráttasníkir!" svaraði Díana Ómel Svavars eins og ekkert væri eðlilegra í gær þegar við spurðum hana út í jólasveinabúninginn sem hún klæddist í 50 ára afmæli Sigríðar Klingenberg. „Svo vil ég endilega senda kveðju til Völu vinkonu upp á sjúkrahúsi..." bætti hún við. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt efst í fréttinni ef þú vilt sjá viðtalið við Díönu. 7.6.2010 16:30
Ástarbréfin streyma til Herra Hinsegin - myndband „Tilboðin reyndar hafa streymt inn síðan á laugardaginn í gegnum Facebook og miðasendingar. Ég hérna er búinn að fá nokkur ástarbréf,“ sagði Vilhjálmur eða Villi eins og hann er kallaður. 7.6.2010 15:15
Húðflúrin á Haffa Haff - myndband Við spurðum tónlistarmanninn Haffa Haff út í húðflúrin sem hann hefur látið setja á líkama sínn í afmælisveislu Sigríðar Klingenberg í gærkvöldi. „Ég gerði þetta í Seattle 2008. Mig langaði að hafa eitthvað jákvætt á líkamanum," sagði Haffi meðal annars í myndskeiðinu. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt efst í fréttinni ef þú vilt sjá viðtalið við Haffa. 7.6.2010 14:30
Fyrrum meðlimur Stereophonics fellur frá Fyrrverandi trommari bresku rokkhljómsveitarinnar Stereophonics, Stuart Cable, sem starfaði sem útvarpsmaður í Bretlandi, fannst látinn á heimili sínu í Wales snemma í morgun. Ekki er vitað hvað olli dauða Stuart ef marka má breska fjölmiðla. 7.6.2010 13:45
Tom Cruise slær í gegn - myndband Í myndskeiðinu hér má sjá leikarann Tom Cruise í hlutverki Les Grossman, ofsafengna Hollywood-framleiðandans úr grínmyndinni Tropic Thunder. Um helgina fór fram árleg MTV kvikmyndaverðlaunahátíð í Bandaríkjunum þar sem Tom Cruise var fenginn til þess að fara aftur í gervi Grossman þar sem hann dansaði af innilfun við Jennifer Lopez. Eiginkona Tom, Katie Holmes, fylgdist kát með atriðinu af fremsta bekk. 7.6.2010 10:30
Hommablað segir Heru hafa verið rænda sigrinum Blaðamaður eins stærsta hommablaðs heims, Gay Times, fullyrðir á bloggi blaðsins að Hera Björk hafi verið rænd sigrinum í Eurovision. Íslenska söngkona sé það besta sem hafi komið fyrir samkynhneigða menningu og tónlist í langan tíma. Íslenska lagið, Je nei se Quai, hafi verið besta lagið í keppninni og það sé næstum óskiljanlegt af hverju hún hafi ekki verið ofar. 7.6.2010 09:30
Pétur Jóhann vill Jón Gnarr í Fjörðinn „Mér líst bara vel á þetta, ég bý náttúrlega í Hafnarfirði þannig að þetta kemur mér í sjálfu sér ekkert við,“ segir Pétur Jóhann Sigfússon. Hann sá það fyrir að Besta flokknum myndi ganga jafnvel og raun bar vitni því það sé einfaldlega í eðli Jóns að gera hlutina af fullum krafti, alltaf. 7.6.2010 08:30
Þetta lið kann sko að skemmta sér - myndir Sigríður Klingenberg spákona hélt hátíðlega upp á 50 ára afmælið sitt í Nauthólsvík í gærkvöldi. Vísir var á staðnum og fylgdist með grímuklæddum vinum Sigríðar fagna með henni með söng og dans fram á rauða nótt. Guðbergur Garðarsson, betur þekktur sem Beggi, veislustjóri sá til þess að allir skemmtu sér konunglega. 7.6.2010 06:15
Systur framleiða stjörnuspil „Fræga fólkinu finnst þetta svakalega sniðugt og við gefum öllum eintak af sínu spili,“ segir Halldóra Jónsdóttir. 7.6.2010 06:00
Fjölbreytt ástarlíf Cheryl Breska söngkonan Cheryl Cole virðist hafa í nógu að snúast. Foreldrar tveggja karlmanna hafa nú lýst því yfir opinberlega að synir þeirra og hún eigi í eldheitu ástarsambandi. 7.6.2010 00:01
Beckham, Snoop og fleiri stjörnur í Star Wars-auglýsingu fyrir HM Beckham, Snoop, Daft Punk, Franz Beckenbauer, Noel Gallagher, Ian Brown, Ciara, grínistinn Jay Baruchel og plötusnúðurinn Neil Armstrong. Adidas sparar ekki stóru nöfnin í nýrri auglýsingu sem gerð var fyrir Heimsmeistaramótið í fótbolta. 6.6.2010 19:00
Eyddi tveimur milljónum í fjögurra ára afmæli sonarins Söngkonan Gwen Stefani telst ekki vera sú ýktasta í eyðslunni í Los Angeles þannig að verðmiðinn á fjögurra ára ára afmæli sonar hennar gefur vísbendingu um hvernig kaupin gerast þar á eyrinni. 6.6.2010 18:00
Sandra Bullock kemur fram í fyrsta skipti eftir skandalinn Leikkonan Sandra Bullock sást í fyrsta skipti opinberlega í gærkvöldi síðan upp komst um framhjáhald eiginmanns hennar. 6.6.2010 17:00
Vilhjálmur valinn Herra Hinsegin Vilhjálmur Þór Davíðsson frá Ólafsfirði var valinn Herra Hinsegin þegar keppnin var í fyrsta skipti haldin í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi. 6.6.2010 16:00
Harrison Ford málaði flugvélarnar sínar fimm grænar - og þyrluna líka Leikarinn Harrison Ford Harrison vill ekki vera eins og allir hinir og málaði þess vegna allar flugvélarnar sínar og þyrluna í uppáhaldslitnum sínum. 6.6.2010 15:00
Gunnar og Sölvi elda fyrir Jónínu „Strákarnir í eldhúsinu :-) Góð tilfinning,“ skrifaði athafnakonan Jónína Benediktsdóttir á Facebooksíðuna sína í dag. Hún er stödd í Flórída í brúðkaupsferð en líkt og væntanlega flestir vita gengu hún og Gunnar í Krossinum í það heillaga fyrr á þessu ári. 6.6.2010 13:04
Vala Grand: Á morgun verð ég endurfædd sem kona Á morgun, sunnudag, fær Vala Grand kyn sitt loksins leiðrétt í átta klukkustunda aðgerð sem sænski læknirinn Gunnar Krantz framkvæmir á Landspítalanum í Fossvogi en hann er einn færasta sérfræðingur Norðurlanda á þessu sviði. Aðgerðin sem Vala gengst undir er mun erfiðari og viðameiri en aðrar aðgerðir sem falla undir lýtaaðgerðir. Vala, sem er stödd á Landspítalanum þar sem aðgerðin fer fram, skrifaði eftirfarandi til vina sinna á Facebook síðuna sína fyrir tæpri stundu: „OK svo á morgun verð ég endurfædd sem kona og verður leiðrétt kynið sem ég átti að fæðast i byrjun og mig langar til að óska vinkonu minni Sigríði Klingenberg til hamingu með afmælið. Sorry að eg komst ekki love og ég vill þakka ykkur öllum fyrir stuðning ykkar og skilning um það sem ég er að ganga i gegnum ef ég eitthvað gerist rangt í aðgerðinni þá vil ég bara segja við ykkur öll nice to known u all." 5.6.2010 23:30
Ekkjan vill bætur Ekkja leikarans Davids Carradine hefur krafið franskt kvikmyndafyrirtæki um skaðabætur vegna dauða hans. Fyrirtækið MS2 SA stóð á bak við síðustu mynd Carradines sem var tekin upp í Bangkok í Taílandi. Ekkjan, Anne Carradine, segir að fyrirtækið hafi ekki verndað eiginmann sinn sem skyldi. Hann fannst látinn í fataskáp, nakinn og hangandi í snúru, 72 ára gamall. 5.6.2010 18:15
Sigrún Ósk eignaðist dreng Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fjölmiðlakona eignaðist dreng í gærkvöldi. Um er að ræða fyrsta barn Sigrúnar og unnusta hennar Jóns Þórs. Öllum heilsast vel. Vísir óskar Sigrúnu og Jóni innilega til hamingju með frumburðinn. 5.6.2010 13:15
Varar við svikurum Hótelerfinginn Paris Hilton er vinsæl þegar kemur að því að bjóða í veislur. Sumir skemmtanastjórar eru reiðubúnir til að reiða fram ansi háar fjárhæðir fyrir nærveru hennar, enda dregur Paris að sér her ljósmyndara. En nú hefur Hilton varað við svikurum á egypskum næturklúbbi í höfuðborginni Kairó en þeir auglýsa nú glæsilegt skemmtikvöld með Paris Hilton innanborðs. Sem væri kannski ekkert alvarlegt mál ef ekki væri fyrir þá staðreynd að eigendur klúbbsins selja miðann á þúsund dollara. 5.6.2010 13:00
Bond verður Blomkvist Línur eru smám saman að skýrast með bandarísku endurgerðina af Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson. Brad Pitt virðist ekki ætla að leika rannsóknarblaðamanninn Mikael Blomkvist. 5.6.2010 11:30
Jackson-safn byggt í Gary Safn sem verður tileinkað popparanum sáluga Michael Jackson verður byggt í fæðingarbæ hans Gary í Indiana-fylki á næsta ári. Bæjarstjórinn í Gary telur að safnið muni laða að sér um 750 þúsund gesti á hverju ári og tryggja bænum tugi milljarða í tekjur. 5.6.2010 09:00
Mezzoforte með The Animals í Búdapest Hljómsveitin Mezzoforte spilaði í gær á tónlistarhátíð í Búdapest í Ungverjalandi ásamt þekktum sveitum á borð við Deep Purple, The Animals og Kool & The Gang. 5.6.2010 08:30
Hálfvitar í mikla pílagrímsför „Þetta er algjör snilld. Þetta er „history in the making“, klárlega,“ segir Snæbjörn Ragnarsson úr hljómsveitinni Ljótu hálfvitunum. 5.6.2010 08:00
Penn leggur hönd á plóg Leikarinn Sean Penn hefur dvalið í Haítí frá því að jarðskjálftarnir skóku landið og starfar þar við hjálparstarf og endurbyggingu borga. Í viðtali við tímaritið Vanity Fair segir Penn að þetta sé í fyrsta sinn sem hann hafi haft tíma til að sinna hjálparstarfi sem þessu. „Ég var giftur í tuttugu ár og hef sinnt börnum mínum síðustu átján árin. Ég hafði ekki tíma til að sinna starfi sem þessu þá. En nú er ég einhleypur og get rétt hjálparhönd.“ 5.6.2010 06:00
Beðmál í Reykjavíkurborg Mikill kvennafans var samankominn á Hótel Borg á fimmtudagskvöld í tilefni frumsýningar myndarinnar Sex and the City 2, eða Beðmál í borginni. 5.6.2010 06:00
Jones sjötugur og mjög vel kvæntur Söngvarinn Tom Jones frá Wales verður sjötugur á mánudag. Hann segir að eiginkona sín, Linda, sé hans harðasti gagnrýnandi. Þau hafa verið gift í 53 ár. 5.6.2010 06:00
Brand ekki nógu svalur Breski uppistandsgrínistinn og leikarinn, Russell Brand, segist ekki geta orðið rokkstjarna. Brand leikur einmitt slíka stjörnu, sem þykir fátt jafn gaman og að skemmta sér með hjálp löglegra og ólöglegra vímuefna, í gamanmyndinni Get him to the Greek. Brand segist á hinn bóginn ekki vera nærri nógu svalur til að geta orðið rokkstjarna. 5.6.2010 06:00
Marie Claire áhugasamt um hag íslenskra kvenna „Blaðakonan hafði samband við mig og sagðist vera að skrifa grein út frá könnun sem gerð var á vegum Sameinuðu þjóðanna og sýnir að Ísland sé besta land í heimi fyrir konur. Hún vildi spjalla við mig um hvað mér fyndist um niðurstöðuna og líf íslenskra kvenna,“ segir rithöfundurinn Gerður Kristný. 5.6.2010 06:00
Ölstofan með eigin Bríó-bjór „Hann er algjör snilld. Hann er strax orðinn söluhæsti bjórinn á Ölstofunni,“ segir Kormákur Geirharðsson, veitingamaður hjá Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Fyrsti bjórinn frá Borg, nýju brugghúsi Ölgerðarinnar, nefnist Bríó og er sérstaklega bruggaður fyrir Ölstofu Kormáks og Skjaldar. „Það er mikið humlabragð af þessum bjór. Hann er afskaplega svalandi og ekki of rammur,“ segir Kormákur, hæstánægður með nýja mjöðinn. 5.6.2010 06:00
Eldfjallaveisla í Top Shop Íslenska hönnunarmerkið E-Label hélt teiti í versluninni Top Shop á fimmtudaginn var til að fagna nýju samstarfi, en vörur E-Label eru nú fáanlegar í Top Shop. 5.6.2010 06:00
Mættu í bíó á skriðdreka Leikararnir Bradley Cooper og Sharlto Copley mættu í skriðdreka á frumsýningu sinnar nýjustu myndar, The A-Team, í Hollywood á dögunum. Veifuðu þeir áhorfendum á leið sinni og vöktu að vonum mikla athygli. 5.6.2010 06:00
Fyrsti Herra hinsegin krýndur Keppnin Herra hinsegin verður haldin í fyrsta skipti í kvöld. Keppendurnir sex eru eins ólíkir og þeir eru margir en eiga það flestir sameiginlegt að hafa áhuga á ferðalögum og líkamsrækt. Sigurvegarinn í Herra Hinsegin fer fyrir Íslands hönd í keppnina Mr. Gay Europe 2010 og sigur í þeirri keppni veitir þátttökurétt í Mr. Gay World 2010. Linda Sæberg kynnti sér keppendurna sex. Miðasala á keppnina fer fram á Barböru. 5.6.2010 06:00