Fleiri fréttir

„Kikk Off” partý Airwaves - myndir

Ellefta Iceland Airwaves hátíðin hófst í gærkvöldi með látum með dúndrandi „Kikk Off" partý sem haldið var á Hressó. Listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár sem og íslenskir og erlendir blaðamenn mættu.

Blanda af heimsku og dirfsku

Íslenska kvikmyndin Jóhannes verður frumsýnd í dag en þetta er fyrsta kvikmynd leikstjórans, Þorsteins Gunnars Jónssonar. Kvikmyndin fékk enga styrki úr kvikmyndasjóði Kvikmyndamiðstöðvar en náði engu að síður á leiðarenda.

Eldri borgarar sauma út Helvítis fokking fokk

Helvítis fokking fokk er fyrir löngu orðið sígilt slagorð. Fátt þykir táknrænna fyrir það sem á okkur hefur dunið síðustu misserin. Slag­orðið er eitt af þeim sem Arndís Sigurbjörnsdóttir, sem sér um félagsstarfið í þjónustuíbúðum eldri borgara á Dalbraut 27, hvetur þátttakendurna til að sauma út.

Fólkið sem skapar sýndarheim Spaugstofunnar

Spaugstofan er vinsælasti sjónvarpsþáttur landsins eins og undanfarin ár. Þátturinn hefur smám saman tekið breytingum; gömlu grínararnir eru farnir að notast við nýjustu tækni til að fríska upp á sjóið. Að baki sýndarheimi Spaugstofunnar eru þau Ólöf Erla Einarsdóttir og Sigurður Bragason.

Fyrsta einkasýning Harðar Sveinssonar

„Þetta er fyrsta einkasýningin mín – það hefur alltaf blundað í mér að halda sýningu,“ segir ljósmyndarinn Hörður Sveinsson.

Ótrúlegar vinsældir Stiegs Larsson

Fjórtán þúsund manns hafa séð kvikmyndina Stúlkan sem lék sér að eldinum síðan hún var frumsýnd 2. október. Að auki hafa um sex þúsund eintök selst af samnefndri bók sem var gefin út í íslenskri þýðingu 18. september.

Raimi kvikmyndar Warcraft

Sam Raimi er í óða önn að undirbúa fjórðu myndina um Köngulóarmanninn Peter Parker. En leikstjórinn hefur fleiri járn í eldinum því hann hyggst gera kvikmynd eftir hinum ofurvinsæla tölvuleik, Warcraft, sem tölvu­nördar hafa stundað af miklum móð.

Sækir innblástur í kreppuna

Guðmundur Atlason tók aftur upp pensilinn í vor eftir langt hlé. Hann málar í popplistarstíl og hefur fengið innblástur eftir innreið kreppunnar hér á landi. Listamaðurinn Guðmundur Atlason málar verk í anda popplistarinnar og sækir

Vel heppnuð tónleikaferð

Þungarokkssveitin Sólstafir er að ljúka mánaðarlangri tónleikaferð sinni um Evrópu, sem hefur gengið vonum framar. Þeir félagar hafa lent í ýmsum ævintýrum og meðal annars hittu þeir stúlku í Stuttgart í Þýskalandi sem var með nafn hljómsveitarinnar húðflúrað á handlegginn á sér.

Svínaflensa hindrar Hoffman

„Maður var brosandi út að eyrum þangað til í gær, þá bara búmm!“ segir Sæþór Ágústsson, bassaleikari hljómsveitarinnar Hoffman.

Spænski risinn og framtíðartryllir

Pedro Almódovar hefur gnæft yfir spænska kvikmyndagerð undanfarna tvo áratugi. Og nýjasta mynd hans, Broken Embraces, er í ætt við önnur verk leikstjórans þar sem heitar ástríður og svik koma töluvert við sögu.

Tími hinna dönsku dýrlinga

Einhver efnilegasta hljómsveit Dana, When Saints Go Machine, spilar í Hafnarhúsinu á Airwaves í kvöld. Sóley Kaldal hitti þrjá af fjórum meðlimum bandsins í æfingahúsnæði þeirra undir Rigshospitalet á Norðurbrú í Kaupmannahöfn.

Nærmynd af Dorrit Moussaief

„Það hafa kannski fáir heyrt um hana, en á heimi hinna forríku og valdamiklu er Dorrit Moussaief afskaplega fræg. Hún er glæsilegur og smart milljarðamæringur og jafn vel á heimavelli í Hvíta húsinu, á Óskarsverðlaununum, Wall Street og Downingstræti 10.“ Svona lýsir blaðamaður Times forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaief.

Gettu betur lið FS-inga skipað

Eftir langt og strangt ferli í að finna næsta Gettu betur-lið Fjölbrautaskóla Suðurnesja, hafa þjálfarar liðsins, Ari Guðjónsson og Davíð Örn Jónsson, komist að niðurstöðu.

Westlife á leið til Íslands

„Þeir ætla að hafa svona snjó-áherslur í myndbandinu, jökla og ísjaka,“ segir Leifur B. Dagfinnsson hjá framleiðslufyrirtækinu True North. Írska strákasveitin Westlife er væntanleg til landsins um helgina í þeim erindagjörðum að taka upp myndband við nýtt lag.

Is it True? kosið besta lag áratugarins

„Ég fékk þessar fréttir í gær, þær komur skemmtilega á óvart,“ segir Óskar Páll Sveinsson, silfur-lagahöfundur með meiru. Íslenska Eurovision-lagið Is it True? heldur áfram sigurför sinni um Eurovision-heiminn því það var kosið lag

Breskir popparar Kynnast Íslandi

Breskir popparar og poppdívur kunna vel að meta Ísland og íslenskt landslag. Mel C nýtti sér hið íslenska „góðan daginn“ í myndbandi sínu við lagið Never be the Same Again. Nokkrar senur voru teknar upp hér á landi en söngkonan kom aldrei sjálf. Strákahljómsveitargoðin í Take That voru við Reykjanesvita fyrir þremur árum og gerðu myndband við lagið Patience.

Hálfnakinn Yoko hristir sig við Víva Verzló - myndband

Lagið Víva Verzló sem strákarnir í skemmtiþættinum 12:00 útbjuggu hefur vakið mikla athygli undanfarnar tvær vikur og náði líklegast hápunkti þegar lagið vann Ljótulagakeppni á útvarpsstöðinni X-inu í síðustu viku.

Morfís á bak við tjöldin: Afdrifaríkar breytingar á aðalfundi

Þriðjudaginn 29. September var aðalfundur Morfís haldinn í Verzlunarskóla Íslands. Fulltrúar aðildaskóla Morfís gerðu þar heiðarlega tilraun til að sætta deiluefni, ræða lagabreytingatillögur og kjósa í nýja stjórn Morfís. Má segja að eftir tveggja klukkustunda langan fund hafi þessum markmiðum verið náð í meginatriðum.

Lenti í árekstri á 50 kílómetra hraða og stórslasaðist

Björgvin Sverrir Loftsson var á aðeins 50 kílómetra hraða þegar hann lenti í árekstri með þeim afleiðingum að hann er í dag 75% öryrki. Hefði hann verið í belti, hefði hann líklega sloppið vel líkt og ökumaður hins bílsins sem var í belti. Við heyrum sorglega sögu Björgvins í Íslandi í dag í kvöld og sjáum óhugnalegar myndir af bílunum sem gjöreyðilögðust í árekstrinum. Fylgist með Íslandi í dag klukkan 18:55 eða strax eftir fréttir Stöðvar 2.

Fox fær ekki að vera með

Innanbúðarmenn sem vinna að þriðju kvikmyndinni um Transformers-vélmennin segja að leikstjórinn Michael Bay ætli hugsan­lega að láta persónu Megan Fox deyja í næstu mynd.

Víkingur vígir flygil

Á morgun og fimmtudag verður tekinn í notkun nýr flygill í Selinu á Stokkalæk á Rangárvöllum. Þetta er nýr Steinway flygill og verður hljóðfærið vígt með tvennum tónleikum Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara. Flygilinn valdi Víkingur Heiðar á liðnu sumri eftir langa leit í London og Hamborg.

Ítrekun frá Mugison

„Mér fannst þetta sniðugt því maður er alltaf að fá ítrekanir inn um lúguna hjá sér – þar sem er verið að biðja mann um eitthvað aftur. Þetta er náttúrlega allt gamalt efni á plötunni – þannig séð. Maður er að reyna að vera svona Baggalúts-sniðugur,“ segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson – Mugison.

Kreppan heftir íslenska listamenn

Íslenskum myndlistarmönnum hefur reynst erfitt að fá styrki í kjölfar bankakreppunnar. Christian Schoen, forstöðumaður Kynningarmiðstöðvar íslenskra myndlistarmanna, segist hafa miklar áhyggjur af framvindu mála. „Ég held að þetta muni hafa slæm áhrif á íslenska listasenu. Þó kreppan sjálf hafi ekki bein áhrif á listsköpun íslenskra listamanna þá er mikilvægt að halda áfram að að kynna íslenska list á erlendum vettvangi,“ segir Christian.

Minnist hrunsins og Lennons

Grafíski hönnuðurinn Oscar Bjarnason hefur í frístundum sínum búið til afmælismerki fyrir vini og kunningja á Facebook. Núna eru merkin orðin 42 talsins og hafa John Lennon og íslenska hrunið fengið sitt merkið hvort.

30 Rock nýtir sér Ísland í nýrri seríu

Ein vinsælasta gamanþáttaröð Bandaríkjanna og þótt víðar væri leitað, 30 Rock, er komin í góðan hóp með Simpson-fjölskyldunni og Sopranos því þátturinn tekur Ísland upp á sína arma í fjórðu og nýjustu seríunni. 30 Rock, sem skartar Alec Baldwin og Tinu Fey í aðalhlutverkum, er margverðlaunaður þáttur og hlaut nánast öll Emmy-verðlaunin sem hann gat fengið á nýliðinni hátíð.

Hagkvæmt Áramótaskaup í smíðum

„Við munum reyna að vera eins hagsýn og mögulegt er. Endanlegur kostnaður liggur ekki fyrir og það er enn verið að skrifa handritið en við vinnum eftir ákveðinni áætlun,“ segir Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV. Hljótt hefur farið fyrir vinnslu Skaupsins þetta árið en leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Ekki hafa verið ráðnir neinir leikarar en handritshöfundarnir eru þau Ari Eldjárn, Anna Svava Knútsdóttir, Ottó Geir Borg, leikstjórinn Gunnar og Sævar Sigurgeirsson.

Pönksöngleikur frá Green Day

Ameríska pönkrokktríóið Green Day hefur löngum verið undir miklum áhrif frá The Who. Það er því ekkert skrítið að nú hefur bandið gert söngleik upp úr plötunni American Idiot frá 2004 á sama hátt og The Who setti Tommy á fjalirnar í kringum 1970.

Hamingjusamur Heff

Verið er að reyna að fá handritshöfundinn Diablo Cody, sem skrifaði handritið að kvikmyndinni Juno, til að taka að sér að semja handrit að kvikmynd um ævi Hugh Hefner. Auk þess eru í bígerð tveir sjónvarpsþættir um líf Hefners; annar mun fjalla um kanínur sjöunda áratugarins en hinn verður byggður á ævisögu Hefners sem kom út fyrir stuttu.

Kynslóðaskipti í núðlunum

Veitingastaðurinn Noodle Station sem var opnaður nýlega við Skólavörðustíg 21a er í eigu hins þrítuga Charin Thaiprasert sem hefur staðið vaktina á staðnum alla daga síðan. „Mamma mín er kokkur og rekur taílenska veitingastaðinn Gullna hliðið á Álftanesi. Hún aðstoðaði mig mikið við að koma þessu af stað og lét mig meðal annars fá uppskriftina að súpunum sem seldar eru á Noodle Station,“ segir Charin. Móðir hans, Nok, hefur lengi starfað við veitingarekstur og sem barn aðstoðaði hún meðal annars móður sína við súpusöluvagn hennar í Taílandi. Charin flutti ásamt móður sinni og yngri bróður hingað til lands árið 1989. Fjölskyldan hefur reynt að heimsækja Taíland reglulega en Charin segir kreppuna þó hafa sett strik í reikninginn. „Við heimsækjum Taíland reglulega en eftir að kreppan skall á er flugið orðið of dýrt, þannig að það er einhver bið í næstu heimsókn.“

Rappari hitti Dalai Lama

Tónlistarmaðurinn Adam Yauch úr hljómsveitinni Beastie Boys tilkynnti fyrir nokkru að hann hefði greinst með krabbamein í kirtli. Hann er nú á batavegi og ferðaðist til Indlands og Tíbet í þeim tilgangi að kynna sér óhefðbundnar lækningar. Yauch átti meðal annars fund með trúarleiðtoga Tíbeta, Dalai Lama, og segir hann þá reynslu hafa styrkt sig mikið andlega.

Ver sig með bláu höndinni

„Þetta er vígaleg hönd, en hún er bara hjólabrettatengd hjá mér. Maður er búinn að vera að skeita í tuttugu ár,“ segir tónlistarmaðurinn Steinar Fjeldsted.

Gleymir ekki Valentínusi

Leikarinn Vince Vaughn segist hafa beðið unnustu sinnar Kylu Weber á Valentínusardeginum í febrúar síðastliðnum. Weber, sem er kanadískur fasteignasali, sagði umsvifalaust já. Hjálpaði það vafalítið til að þau höfðu áður rætt saman um hjónaband og komist að þeirri niðurstöðu að þau vildu gjarnan prófa það. Vince segir að aðeins Valentínusar­dagurinn hafi komið til greina fyrir bónorðið. „Ég vildi ekki missa af þessu tækifæri því það er ekki hægt að gleyma þessari dagsetningu,“ segir Vince, sem átti áður í ástar­sambandi með Jennifer Aniston.

Söngvaseiður í 50. sinn

Mikið var um dýrðir í hléinu á Söngvaseið á fimmtudagskvöld þegar leikarar og söngvarar héldu upp á fimmtugustu sýninguna í Borgarleikhúsinu.

Fögnuðu Falskri nótu

Lögfræðingurinn Ragnar Jónasson hefur gefið út sína fyrstu glæpasögu, sem nefnist Fölsk nóta. Útgáfuhóf var haldið í Eymundsson við Skólavörðustíg til að fagna áfanganum.

Skilur ryksuguna eftir heima

Iceland Airwaves hefst eftir tvo daga. Nokkrir góðir gestir koma að utan til að skemmta íslenskum tónlistaráhugamönnum. Þar á meðal er hið ágæta band Micachu & The Shapes.

Geimtrúðurinn kom til jarðar í dag

Guy Laliberte, sem kallaður hefur verið geimtrúðurinn, kom aftur til jarðar í dag eftir hálfsmánaðarferð til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Laliberte stofnaði Cirque de Soleil

Heidi Klum og Seal eignuðust dóttur

Þýska fyrirsætan og þáttastjórnandinn Heidi Klum eignaðist sitt fjórða barn í fyrradag. Þetta er þriðja barn hennar og söngvarans Seal en þau eiga tvo drengi sem eru tveggja og þriggja ára. Fyrir átti Heidi fimm ára gamla dóttur með Flavio Briatore.

Jolie sættist við föður sinn

Það bendir til þess að feðginin og stórstjörnurnar Angelina Jolie og Jon Voigh hafi náð sáttum en þau hafa ekki talast við síðan Jolie og Billy Bob Thornton skildu árið 2002. Jolie greindi nýverið frá því að hún og faðir hennar hafi rætt nokkrum saman að undanförnu.

Söngvari Boyzone lést á Mallorca

Stephen Gately, einn af söngvurum írska strákabandsins Boyzone, lést á Mallorca í gær. Hann var 33 ára. Dánarorsök eru ókunn en spænska lögreglan segir að andlátið virðist ekki tengjast saknæmu athæfi. Gately var staddur í frí á eyjunni með unnusta sínum, Andy Cowles.

Whitney Houston í X Factor

Bandaríska söngkonan Whitney Houston kemur fram í bresku útgáfu X Factor þáttaraðarinnar síðar í október. Þetta verður í fyrsta sinn í 12 ár sem hún treður upp í Bretlandi.

Sjá næstu 50 fréttir