Borgunarbikarinn: Rakel Logadóttir
„Mér líst bara mjög vel á að fá KR,“ sagði Rakel Logadóttir leikmaður Vals í dag þegar ljóst var að bikarmeistaralið Vals fékk útileik gegn KR í undanúrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu kvenna. Dregið var í hádeginu í dag. Þessi lið áttust við í úrslitum keppninnar í fyrra.