Fjölmiðlar

Rof á útsendingu RÚV í nótt
Bilun varð í kerfi Ríkisútvarpsins sem olli því að tímabundið rof varð á útsendingu Rásar 1 og Rásar 2 á fimmta tímanum í nótt. Unnið er að því að endurræsa öll kerfi að nýju.

Don Lemon rekinn frá CNN
Fréttaþulurinn Don Lemon var rekinn frá CNN í dag. Brottreksturinn kemur í kjölfar greinar sem kom út fyrr í mánuðinum sem afhjúpaði ásakanir í garð Lemon nokkur ár aftur í tímann þar sem hann er sakaður um kvenfyrirlitningu og slæma hegðun. Í febrúar var hann gagnrýndur fyrir kvenfyrirlitin ummæli.

Þetta er kynþokkafyllsta kona heims
Fyrirsætan Ashley Graham er kynþokkafyllsta kona heims samkvæmt tímaritinu Maxim. Tímaritið gefur árlega út lista yfir hundrað kynþokkafyllstu konur heims en sú kona sem vermir fyrsta sæti listans prýðir forsíðu tímaritsins.

Tucker Carlson hættur hjá Fox News
Sjónvarpsmaðurinn Tucker Carlson, einn sá vinsælasti í sínu fagi í Bandaríkjunum, hefur lokið störfum hjá Fox News. BBC greinir frá og vísar til stuttrar tilkynningar frá Fox sjónvarpsstöðinni.

Dreymdi systur sína nóttina áður en hún lést: „Hún kemur og kveður mig“
„Þegar ég hitti fólk sem er fætt sama ár og hún byrja ég að spegla hana í þeim. Ef allt hefði farið vel, hvar væri hún þá núna? Hún var bara 25 ára þegar hún lést og það var svo mikið framundan,“ segir dagskrárgerðakonan Þórdís Valsdóttir.

Ritstjóri rekinn vegna „gervigreindarviðtalsins“ við Schumacher
Útgefandi þýsks tímarits sem birti uppdiktað viðtal við Michael Schumacher rak ritstjóra sinn og bað fjölskyldu margfalda Formúlu 1-meistarans afsökunar. Fjölskyldan sagðist ætla að stefna tímaritinu vegna greinarinnar í síðustu viku.

Ætla að skoða veru RÚV á auglýsingamarkaði
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar-og viðskiptaráðherra hyggjast setja á laggirnar þriggja manna starfshóp um málefni Ríkisútvarpsins. Hópnum er ætlað að ljúka vinnu sinni eigi síðar en 1. júlí næstkomandi.

Fox greiðir Dominion 107 milljarða vegna lyga um kosningasvindl
Fyrirtækið Dominion, sem framleiðir kosningavélar sem notaðar eru víða í Bandaríkjunum, hefur komist að samkomulagi við sjónvarpsstöðina Fox um greiðslu skaðabóta vegna ósanninda sem haldið var fram á sjónvarpsstöðinni um búnað fyrirtækisins eftir forsetakosningarnar 2020. Fox féllst á að greiða Dominion 787 milljónir bandaríkjadala í skaðabætur, sem nemur um 107 milljörðum íslenskra króna.

Halda bandarískum blaðamanni áfram bak við lás og slá
Rússneskur dómari úrskurðaði að Evan Gershkovich, bandarísku blaðamaður Wall Street Journal, verði áfram í varðhaldi eftir að hann var sakaður um njósnir í Rússlandi. Gershkovich og bandarísk stjórnvöld vísa ásökunum á bug.

Máli Dominion gegn Fox frestað vegna sáttaumleitana
Dómarinn í máli Dominion Voting Systems gegn Fox News hefur frestað fyrirtöku málsins um sólahring. Til stóð að málflutningur hæfist í dag en honum hefur verið frestað fram á morgun.

Segir hiklaust að hann sé búinn með 28 ár í háskóla
„Ég segi alveg hiklaust að ég sé með 28 ára háskólanám að baki. Því til viðbótar við háskólanámið á Bifröst get ég með góðri samvisku sagt að þessi 25 ár sem ég hef verið með Skessuhornið jafnist á við háskólanám í atvinnulífi og menningu. Þetta starf er endalaus skóli og ég fyrir löngu orðinn sérfræðingur í Vesturlandi,“ segir Magnús Magnússon, ritstjóri Skessuhornsins, héraðsfréttablaðs Vesturlands.

Allir styrkirnir í RÚV-verkefni
Kvikmyndasjóður hefur verið tæmdur til Ríkisútvarpsins þetta árið en engin verkefni hjá öðrum miðlum virðast fá styrk. Framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum segir jafnræðis ekki gætt og að þetta sé enn eitt dæmið um slæma samkeppnisstöðu, en Ríkisútvarpið hafi þegar gríðarlegt forskot. Ríkið leiti lausna en það sé í raun vandinn.

Skiptastjóri Torgs býður prentvél Fréttablaðsins til sölu
Skiptastjóri Torgs, sem gaf út Fréttablaðið og DV, býður blaðaprentvél fallna fjölmiðlafyrirtækisins til sölu.

Kaupa allan búnað N4 og veðja á dagskrárgerð á Húsavík
Framleiðslufyrirtækið Film Húsavík hefur fest kaup á öllum tækjabúnaði þrotabús norðlensku sjónvarpsstöðvarinnar N4. Einn forvarsmanna fyrirtækisins segir það ætla að veðja á innlenda dagskrárgerð á Húsavík en ekki standi til að endurvekja sjónvarpsstöðina.

Ómar segist ekki skulda skattinum krónu
Ómar R. Valdimarsson lögmaður segir nýlega frétt sem birtist á mannlif.is vera ranga í öllum meginatriðum. Hann vandar Reyni Traustasyni ritstjóra ekki kveðjurnar.

Fjölmiðlar og framtíðin
Mörg fjölmiðlafyrirtæki um allan heim eiga við ramman reip að draga um þessar mundir. Ör tækniþróun, samfélagsmiðlar og breytt neysluhegðun hefur óumdeilanlega áhrif á reksturinn. Fyrirtækin hafa sum hver þurft undirgangast uppskurð til að aðlaga sig breyttum veruleika.

Torgið hans Helga úrskurðað gjaldþrota
Torg ehf., útgáfufélag Fréttablaðsins, Hringbrautar og DV, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp þann 4. apríl og birtur í Lögbirtingarblaðinu í dag.

Segist hafa einfaldað frásögnina til að hlífa sér og öðrum
Fjölmiðlakonan Edda Falak segir að hún hafi „einfaldað“ frásögn sína af viðhorfum sem hún kynntist í fjármálalífinu í Danmörku til að hlífa bæði sjálfri sér og fólki sem sýndi henni vanvirðingu. Hún segist hafa fengið hótanir um ofbeldi vegna starfa sinna.

Æsispennandi átta liða úrslit en einstefna í úrslitunum
Þótt að Fréttablaðið hafi verið lýst gjaldþrota þann 31. mars síðastliðinn þá stóðu fulltrúar fjölmiðilsins sig með miklum sóma í árlegri spurningakeppni fjölmiðlanna um páskana. Frammistaðan dugði ekki til sigurs í keppninni en fulltrúar hins fallna risa fóru alla leið í undanúrslit.

1,2 milljón krónur safnast í söfnun Eddu á Karolina Fund
Alls hafa nú safnast 1,2 milljón krónur í söfnun sem hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak stendur fyrir á Karolina Fund en markið er sett á 1,5 milljón krónur.

„Óformlegar viðræður“ um endurreisn Hringbrautar
Sigmundur Ernir Rúnarsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, segir að áhugi sé fyrir því meðal fjárfesta að endurreisa sjónvarpsstöðina Hringbraut. Greinilegur söknuður sé af stöðinni.

„Síðasta fréttin hefur verið birt
Ekki er hægt að heimsækja vef Fréttablaðsins, frettabladid.is, lengur. Reyni notendur að fara þar inn kemur texti þar sem stendur að síðasta frétt blaðsins hafi verið birt og fólki beint á vefi DV og Hringbrautar.

Ósátt með fréttaflutning af meintum tengslum við hælisleitendur
Arndís Anna K. Gunnarsdóttir þingmaður Pírata er ósátt með fréttaflutning Morgunblaðsins af meintum tengslum hennar við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Hún sakar blaðamann um að vera ófaglegan.

Fjölmiðlar þurfa áskriftartekjur, ekki ríkisstyrki
Margir hafa dregið rangan lærdóm af gjaldþroti Fréttablaðsins. Lausnin er einföld og margreynd. Það mun hvorki bjarga fjölmiðlum að ríkisstyrkja þá í meira mæli né taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Rekstrarvandi fjölmiðla verður einungis leystur með vitundarvakningu á meðal landsmanna. Fólk þarf að borga fyrir fréttir. Sú leið er þrautreynd. Á blómaskeiði fjölmiðla var greitt fyrir þjónustuna.

Myndaveisla: Skálað fyrir 25 árum af fréttum og fjöri
Mikil tímamót voru á laugardaginn þegar Vísir fagnaði 25 ára afmæli sínu. Á þeim aldarfjórðungi hafa fjölmargir starfað á miðlinum og átt sinn þátt í þeim árangri sem miðillinn hefur náð. Það var því vel við hæfi að bjóða Vísismönnum, gömlum sem nýjum, að fagna þessum merkilegu tímamótum saman.

Safnaðist fyrir tveimur þriðjuhlutum dómssektarinnar
Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, segir að um hundrað manns hafi lagt til samtals tvo þriðjuhluta þeirrar upphæðar sem hann var dæmdur til að greiða blaðamönnum vegna ummæla sem hann viðhafði á blogginu sínu.

Rekum RUV ohf „að heiman“
Mikil umræða um fjölmiðla hefur skapast í kjölfar þess að Fréttablaðið/Hringbraut lagði upp laupana með alvarlegum afleiðingum. Undanfarin ár hefur rekstrarumhverfi fjölmiðla versnað ár frá ári vegna breytinga á neysluhegðun og tækniframfara.

DV selt á 420 milljónir og Björn áfram ritstjóri
Félag í eigu Helga Magnússonar, Fjölmiðlatorg, hefur keypt DV á 420 milljónir króna. Björn Þorfinnsson, sem sagði upp sem ritstjóri blaðsins á síðasta ári, hefur dregið uppsögnina til baka og verður áfram ritstjóri.

Eitt stykki RÚV er horfið af auglýsingamarkaði
Fall Fréttablaðsins er stórviðburður á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Ekki bara því þar hverfur sögufrægur miðill sem um tíma var ekki aðeins útbreiddasti fjölmiðill landsins, heldur sá langsamlega arðbærasti í þokkabót.

Edda hætt á Heimildinni
Edda Falak lét af störfum á fjölmiðlinum Heimildinni í síðustu viku. Nýlega tilkynnti hún stjórnendum miðilsins að hún hefði ekki sagt rétt frá starfsferli sínum erlendis.