Fleiri fréttir

Handteknir vegna gruns um hryðjuverk

Tólf menn voru handteknir í Bretlandi snemma morguns í gær. Mennirnir eru grunaðir um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásir í landinu.

Búa sig undir afvopnunarátök

Barack Obama Bandaríkjaforseti reyndi ákaft að afla stuðnings meðal þingmanna við nýjan afvopnunarsamning við Rússa, sem á að taka við af START-samningnum frá 1991.

Malmömaðurinn grunaður um fleiri morð

Byssumaðurinn sem hefur verið ákærður fyrir eitt morð og fimm morðtilræði í Malmö í Svíþjóð er nú grunaður um tvö morð og fimm morðtilræði til viðbótar.

Geðlæknar skila mati á sakhæfi Gunnars Rúnars morgun

Á morgun kemur í ljós hvort þinghaldi verði lokað í máli Gunnars Rúnars Sigurþórssonar sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Helgasyni að bana í ágúst síðasliðnum. Tveir geðlæknar munu einnig skila inn yfirmati á geðrannsókn, þar sem Gunnar Rúnar er metinn ósakhæfur.

Enginn hvati til þess að fara út á vinnumarkað

Enginn hvati er fyrir einstæða móður á örorkubótum með langveik börn að fara út á vinnumarkaðinn, samkvæmt útreikningum fréttastofu. Hún er ívið betur sett fjárhagslega en móðir langveikra barna á meðallaunum á vinnumarkaði. Öryrkjum hefur fjölgað um hátt í sextíu prósent á síðustu 10 árum, langt umfram fjölgun þjóðarinnar.

Leggja til strangar hömlur á skógrækt

Strangar takmarkanir verða settar á skógrækt og jafnvel bann, samkvæmt drögum að nýjum náttúruverndarlögum sem umhverfisráðherra hefur kynnt. Skógræktarmenn bregðast hart við og segja öfgasjónarmið ráða för.

Leikskólagjöld hækka um áramótin

Breytingar verða á gjaldskrá leikskóla Reykjavíkur frá og með 1. janúar 2011. Við breytinguna hækkar fæðis- og námsgjald í 4-8 stundir um 5,35%. Gjöld umfram átta stunda vistun hækka ekki.

Stemma stigu við misnotkun ofvirknislyfja

Frumgreining ADHD (ofvirkni og athyglisbrests) hjá fullorðnum verður undir yfirumsjón geðsviðs Landspítala, hert verður á tilkynningarskyldu til landlæknis og teknar upp breyttar reglur um lyfjaskírteini samkvæmt tillögum vinnuhóps um leiðir til að sporna við misnotkun metýlfenidatslyfja.

Tæp 9% ekki með jólatré á heimilinu

Fleiri verða með gervijólatré á heimilinu þessi jólin en lifandi jólatré, þó munurinn sé ekki mikill. Samkvæmt nýrri könnun MMR 48,6% verða landsmanna með gervitré en 41,6% með lifandi tré. Alls verða því 91,2 prósent með jólatré þessi jólin en 8,8 verða ekki með neitt jólatré á heimilinu.

350 ökumenn stöðvaðir - fjórir ölvaðir

Um þrjú hundruð og fimmtíu ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu.

Júlíus Vífill safnaði mestu fyrir prófkjörið

Júlíus Vífill Ingvarsson, fékk tæpar tvær milljónir króna í styrki frá einstaklingum og fyrirtækjum fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar. Júlíus Vífill fékk 300 þúsund krónur frá Lýsi, 250 þúsund frá Mjólkurfélagi Reykjavíkur og 200 þúsund frá Iceland Excursions Allrahanda. Þá fékk hann styrki frá Steypustáli, Mata, John Lindsay, Gómi, Lindberg, HB Granda, Olíuverslun Íslands og Brimi. Hann fékk einnig bein fjárframlög frá tveimur einstaklingum.

Fengu ljósaperur til að lýsa bágstöddum

Fjölskylduhjálpin fékk á dögunum afhentar ljósaperur að verðmæti um hálf milljón króna. Það var Jón Árni Jóhannsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sem afhenti Ásgerði Jónu Flosadóttur forstöðukonu Fjölskylduhjálparinnar perurnar.

Íhugar að náða Billy the Kid

Ríkisstjórinn í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum hefur til skoðunar að náða útlagann Billy the Kid fyrir einhver af þeim óhæfuverkum sem hann framdi. Hann var útlagi og nautgripaþjófur sem sagt er að hafi skotið 21 mann til bana.

Ellefu hengdir í einu í Íran

Ellefu súnní múslimar sem voru sakaðir um hryðjuverk voru hengdir í Íran í morgun. Mennirnir tilheyrðu samtökunum Jundallah (Hermenn guðs).

Fann stolnu dekkin á Barnalandi

Fjórum hjólbörðum var stolið á Selfossi á dögunum. Eigandinn sá þá síðan auglýsta á Barnalandi og lét lögreglu undir eins vita. Í tilkynningu segir að þegar í stað hafi verðið gerðar ráðstafanir til að komast að því hver væri með hjólbarðana. „Leitað var til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um aðstoð við það verk sem leiddi til þess að hjólbarðarnir fundust,“ segir einnig en einn maður var handtekinn í tengslum við málið. Sá gaf þá skýringu að hann hefði fundið hjólbarðana á víðavangi.

Ribbaldar á Selfossi höfðu framið annað rán nokkru áður

Lögreglan á Selfossi hefur lagt mikla vinnu í rannsókn á ránsmálinu frá þarsíðustu helgi þegar þrír menn réðust inn á heimili í bænum og ógnuðu íbúum með hnífum. Við rannsókn málsins hefur komið fram að tveir þeirra höfðu framið annað rán í bænum nokkrum dögum áður, en sá sem fyrir því varð þorði ekki að kæra málið til lögreglu. Vonir standa til að rannsókn ljúki á næstu dögum og málið þá sent ákæruvaldi til frekari ákvörðunar.

Meirihluti frambjóðenda á eftir að skila kostnaðarupplýsingum

Ríkisendurskoðun hefur birt yfirlit um skil frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjöri vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor á kostnaðarupplýsingum til stofnunarinnar. Af samtals 442 frambjóðendum sem tóku þátt í prófkjöri eða forvali innan stjórnmálasamtaka í aðdraganda kosninganna hafa aðeins 215 skilað upplýsingum um kostnað sinn til Ríkisendurskoðunar.

Hin skelfilega ófærð í Bretlandi

Bretland er nánast óstarfhæft vegna snjóa. Flugvellir eru lokaðir, lestar ganga ekki og bílar eru fastir út um allar trissur. Eins og sjá má á skelfilegri myndinni sem fylgir þessari frétt, er þetta ekki að ástæðulausu.

Húshitun mun ódýrari á Íslandi en á Norðurlöndunum

Íslendingar búa að miklum mun ódýrari húshitun en nágrannar okkar á hinum Norðurlöndunum. Ef miðað er við meðaltals orkuþörf fyrir 135 fermetra einbýlishús í Reykjavík greiðir slíkt heimili rúmlega 85 þúsund krónur á ári fyrir húshitun og heitt kranavatn. Í höfuðborgum hinna Norðurlandanna væri reikningurinn fyrir sömu orkunotkun á bilinu 260 til 530 þúsund krónur, eða 306-623% hærri en í Reykjavík.

Sendibíll fór nokkrar veltur

Bílvelta varð í Skagafirði um klukkan tíu í morgun þegar sendibíll valt nokkrar veltur skammt frá brúnni yfir Vesturós. Á fréttavefnum Feyki segir að ökumaður hafi verið einn í bílnum og slapp hann án teljandi meiðsla en var engu að síður fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Feykir hefur eftir lögreglu að á svæðinu sé mikil hálka og því brýnt að keyra varlega.

Ísbjarnarhrekkur veldur uppnámi í Skagafirði

Vinnustaðahrekkur um borð í togaranum Málmey varð til þess að í Skagafirðinum fóru menn að svipast eftir ísbjörnum. Á Facebook síðu skipstjórans sagði í nótt að þeir hefðu siglt fram á ísbjarnafjölskyldu, þrjú dýr, sem stefndu beint á Skagann.

„Börnum undir tíu ára aldri er hættara við drukknun“

Á hverju ári lenda um fimm til sex börn í lífshættu þar sem þau eru næstum því drukknuð. Þar er átt við börn sem eru það hætt komin að þau þurfa að fara á sjúkrahús eftir nærdrukknun, eru hætt að anda eða þau hafa fengið hjarta- og öndunarstopp. Hingað til hafa börn átta ára og eldri mátt fara ein í sund en um áramótin verða aldurstakmörkin hækkuð í tíu ár.

Bilun hjá Mílu á Suð-austurlandi

Bilun hefur komið upp í stofnkerfi Mílu á Suð-austurlandi nánar tiltekið við Smyrarbjargará, á leiðinni milli Fagurhólsmýrar og Hafnar. Í tilkynningu frá Mílu segir að um slit á ljósleiðara sé að ræða og að viðgerðamenn séu á leiðinni á staðinn.

Ásatrúarmenn halda jólin á morgun

Á morgun halda ásatrúarmenn jól og fagna því að sól fer hækkandi á lofti. Af þessu tilefni verður sólstöðuhátíð haldin í Reykjavík á lóð ásatrúarfélagsins við Nauthólsvík í Öskjuhlíð kl. 18 og ætla menn að safnast saman á bílastæðinu korteri fyrr.

Varaþingmaður Þráins hefði kosið gegn fjárlagafrumvarpinu

Varaþingmaður Þráins Bertelssonar segist hafa greitt atkvæði gegn fjárlagafrumvarpinu ef hún hefði átt sæti á þingi, en frumvarpið var samþykkt með einum þingmanni í síðustu viku. Hún segist ekki styðja ríkisstjórnina.

Lést í umferðarslysi á Snorrabraut

Karlmaðurinn sem lést þegar ekið var á hann á horni Bergþórugötu og Snorrabrautar á laugardag, hét Hörður Ingvaldsson, fæddur 12.október árið 1960. Hörður lætur eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn.

Tugur heimila uppvís að tryggingasvindli

Um tugur heimila á suðvesturhorninu hafa á þessu hausti orðið uppvís að því að svíkja bætur út úr Tryggingastofnun. Svikin komust upp eftir að lögregla mætti heim til fólks.

Sérfræðingar rannsaka brunann hjá Alcoa

Aðilar frá Brunamálastofnun er á leið austur til þess að rannsaka hvað olli sprengingu í spennistöð álvers Alcoa á Reyðarfirði á laugardag. Einnig er von á erlendum sérfræðingum í dag eða á morgun. Ljóst er að rannsókn mun taka nokkra mánuði.

Varaforsetinn vill klófesta Assange

Joe Biden varaforseti Bandaríkjanna hefur staðfest að dómsmálaráðuneytið sé að leita leiða til þess að kæra Julian Assange stofnanda WikiLeaks.

Slegist á Akranesi um helgina

Talsverðar róstur fylgdu skemmtanahaldi á Akranesi um síðustu helgi að sögn lögreglu og þurfti að hafa afskipti af mönnum sem var orðið heitt í hamsi.

Heilaspunaleikur á Facebook

Höfundar borðspilsins Heilaspuni, sem sló í gegn fyrir síðustu jól, eru að undirbúa Facebook-leikjaútgáfu af spilinu. Leikurinn verður til að byrja með aðeins á ensku og er ætlaður fyrir hinn gríðarstóra Facebook-markað.

Addi Fannar í ráðinn í Hörpu

Arngrímur Fannar Haraldsson, betur þekktur sem Addi Fannar í Skítamóral, hefur verið ráðinn verkefnastjóri tónlistarviðburða í Hörpu með rafmagnaða tónlist sem sérsvið.

Vinaleikur Vísis: Nokia N8 dreginn út síðdegis

Nú er komið að lokum í vinaleik Vísis á Facebook. Fjölmargir hafa unnið glæsilega vinninga síðustu viku og nú síðdegis verður lokavinningurinn, glæsilegur Nokia N8 sími dreginn út.

Var hann að friða Kínverja?

Trond Giske viðskiptaráðherra Noregs var ekki viðstaddur þegar friðarverðlaun Nóbels voru afhent íOsló á föstudaginn.

HÍ: Hærri skrásetningargjöld og aðgangstakmarkanir

Háskóli Íslands hefur óskað eftir því að fá heimild til að hækka 45 þúsund króna skrásetningargjald við skólann sem hefur verið óbreytt frá árinu 2005. Miðað við verðlagsforsendur fjárlaga frá 2005 væri gjaldið nú 70.000 krónur, að því er kemur fram í tilkynningu frá HÍ.

Almyrkvi í fyrramálið - tunglið verður rauðleitt

Á vetrarsólstöðum, þriðjudagsmorguninn 21. desember, á stysta degi ársins, verður almyrkvi á tungli. Almyrkvinn hefst klukkan 07:40 og stendur yfir til klukkan 08:54. Ef veður leyfir sést myrkvinn vel frá Íslandi þótt tunglið sé tiltölulega lágt á lofti á vesturhimni, rétt fyrir ofan Óríon, milli fótleggja Tvíburanna og horna Nautsins.

Hugnaðist ekki varnarsamstarf Norðurlanda

Sendiherra Bandaríkjanna í Noregi varð illa við þegar Norðmenn tilkynntu um aukið samstarf við Svía og Finna í varnarmálum árið 2008. Wikileaks hefur birt pósta frá sendiherranum til utanríkisráðuneytisins í Washington.

Sérsveitarmenn skreyttu jólatré fyrir skæruliða

Kólombíski herinn hefur fundið upp á nýstárlegri aðferð við að draga úr baráttuþreki skæruliða FARC sem hafast við í frumskógum landsins. Sérsveit hersins fór með Blackhawk þyrlu djúpt inn á yfirráðasvæði skæruliðanna og skreytti 25 metra hátt jólatré með 2000 perum.

Yngri en 10 ára þurfa fylgd í sund: Óánægja í Vesturbyggð

Bæjarstjórn Vesturbyggðar mótmælir breytingum á reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum sem miðar að hækkun á aldursákvæði barna á sundstöðum úr 8 í 10 ár. Mótmæli þess efnis voru bókuð á síðasta fundi bæjarstjórnarinnar. Áætlað er að reglugerðin taki gildi 1. janúar 2011 og fellur þar með eldri reglugerð úr gildi.

Konunglegt brúðkaup: Fyrstu minjagripirnir í sölu

Þrátt fyrir að enn séu fjórir mánuðir þangað til Vilhjálmur Bretaprins gengur upp að altarinu til að kvænast Kate Middleton eru fyrstu minjagripirnir tengdir brúðkaupinu komnir í sölu.

Sjá næstu 50 fréttir