Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Birkir Jón: Þurfum að horfa til framtíðar Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir nýja efnahagsspá Arion banka í ósamræmi við spá Seðlabankans. Hann hefur óskað eftir því að fulltrúar bankana verði kallaðir á fund efnahags- og skattanefnd Alþingis til að fjalla um spárnar. 18.5.2011 18:54
Strauss-Kahn sætir sjálfsvígseftirliti Gordon Brown hefur verið nefndur sem næsti forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sérstaklega er fylgst með Dominique Strauss-Kahn til að tryggja að hann taki ekki eigið líf í fangelsinu á Rikers-eyju. 18.5.2011 18:45
Dregur verulega úr tíðni sortuæxla Verulega hefur dregið úr tíðni sortuæxla hér á landi eftir mikinn faraldur um aldamótin. Fyrir um áratug greindust tvöfallt fleiri konur hér á landi með sortuæxli en á hinum Norðurlöndunum. Nú greinast jafnmargar konur hér á landi og í Danmörku. 18.5.2011 18:30
Póstmenn búnir að semja Póstmannafélag Íslands undirritaði í dag nýjan kjarasamning við Íslandspóst. Samningurinn felur í sér sambærilegar launahækkanir og aðildarfélög ASÍ sömdu um fyrr í mánuðnum. 18.5.2011 17:36
Lakari afkoma ríkissjóðs Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherrra, hefur lagt fram frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í byrjun mánaðarins. Því til viðbótar eru lagðar til nokkrar smærri breytingar til aðlögunar á ýmsum öðrum lögum. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs lækki um fimm milljarða. 18.5.2011 17:21
Krefjast þess að Clarke segi af sér Hörð gagnrýni beinist nú að breska dómsmálaráðherranum Ken Clarke, en skilja mátti á honum í viðtali við BBC í morgun að hann teldi sumar nauðganir alvarlegri en aðrar. Ráðherann, sem er íhaldsmaður, hefur hinsvegar neitað að biðjast afsökunar á ummælunum en formaður Verkamannaflokksins, sem er í stjórnarandstöðu, vill að hann segi af sér. 18.5.2011 16:46
Elsta manneskja í heimi er 114 ára og á 5 barnabarnabarnabörn Hin brasilíska Maria Gomes Valentim er elsta lifandi manneskjan í heiminum í dag en hún er hvorki meira né minna en 114 ára og 313 daga gömul. 18.5.2011 16:25
Leikrænir tilburðir hafa ekki úrslitaáhrif Leikrænir tilburðir stjórnmálamanna hafa almennt ekki úrslitaáhrif þegar kemur að niðurstöðum kosninga. Þetta segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði. Hann tekur þó fram að leikræn tjáning geti gert herslumuninn þegar tveir flokkar eru í kjöri og mjótt er á mununum. Almennt séð eru það hins vegar þau málefni sem flokkarnir leggja áherslu á og viðhorf kjósenda sem hafa mest að segja um niðurstöður kosninga. Ástæða góðs gengis Besta flokksins í síðustu borgarstjórnarkosningum, er að mati Ólafs sú að í samfélaginu var jarðvegur fyrir framúrstefnulegt framboð. Ólafur var einn þriggja frummælenda á hádegisfundi á vegum EDDU-öndvegisseturs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands sem haldinn var í hádeginu. Yfirskrift fundarins var Leiklist stjórnmálanna. "Oft er talað um stjórnmálin sem leiksvið og um stjórnmálamenn sem leikara, en allt frá fornöld hafa leikrænir tilburðir stjórnmálamanna verið stjórnspekingum umhugsunarefni. Þessi leiklist stjórnmálanna spannar vítt svið sem nær allt frá lýðskrumi og ímyndarsköpun til dramatískra tilburða stjórnmálaleiðtoga til að höfða til almennings á ögurstund," sagði í fundarboði. Nasistar komust til valda í Þýskalandi á sínum tíma því þjóðfélagið var móttækilegt fyrir þjóðernissinnuðum og afgerandi flokki. Stjórnunarstíll Hitlers einkenndist síðan af leikrænum tilburðum og má í raun segja að hann hafi sett á svið heilu leiksýningarnar fyrir almenning í því skyni að upphefja hann sjálfan og nasismann. Þar fléttuðust því saman leiklist og pólitík áhrifaríkan hátt. Á hádegisfundinum var komið inn á feril leikara sem síðar sneru sér að pólitík, svo sem Ronalds Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Arnold Schwarznegger, fyrrverandi ríkisstjóra í Kaliforníu. Þá er Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, þekktasta dæmið út íslenskri pólitík. Hann hefur markvisst beitt aðferðum trúðsins í bæði kosningabaráttu og starfi sem borgarstjóri. Jón hefur einnig farið í hlutverk einlæga einfeldningsins, sem viðurkennir strax þegar hann veit ekki um hvað málið snýst, en á auðvelt með að nýta persónutöfrana þegar á þarf að halda. Kosningabarátta Besta flokksins var í raun eitt stórt leikrit. Flokkurinn var ekki með skýra málefnaskrá og hefur gert velflest það, eftir að hann komst til valda, sem hinir hefðbundnu flokkar hefðu gert, svo sem að hækka útsvar og segja upp starfsfólki í sparnaðarskyni. Fylgi flokksins hefur nokkuð minnkað frá kjöri. Í borgarstjórnarkosningunum vorið 2010 fékk Bestu flokkurinn rúm 34% atkvæða en nú mælist fylgi flokksins um 20%. Á fundinum var því velt upp hvort hugmyndin um Besta flokkinn væru ekki misheppnuð út af þessu fylgistapi. Ólafur benti á að það væri alsiða að flokkar sem eru við stjórnvölinn tapi fylgi þegar aðstæður í þjóðfélaginu krefjist þess að óvinsælar ákvarðanir séu teknar. Ólafur sagði því í raun tíðindum sæta að fall flokksins væri ekki meira. 18.5.2011 15:50
Lést í vinnuslysi Maðurinn sem lést í vinnuslysi við efnisnámu í Hrunamannahreppi í gær hét Guðjón Jónsson og var búsettur á Selfossi. Hann var á 73. aldursári og lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn. 18.5.2011 15:35
Hvað er Khat? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann um 60 kíló af efninu Khat í fórum fjögurra erlendra ríkisborgara í vikunni. Efninu var pakkað inn hér á landi en ekki er talið að áætlunin hafi verið að koma því á markað á Íslandi. Lögreglan telur að ætlað hafi verið að koma efninu í dreifingu í Bandaríkjunum eða í Kanada, en þar hafa vinsældir efnisins aukist mikið síðustu ár. 18.5.2011 15:15
Kjaftaði stanslaust í 16 tíma Hefur þig einhverntíma langað til að kyrkja manneskju sem talaði hátt og lengi í farsímann sinn? Ef svo, ertu heppinn að hafa ekki verið í klefa með henni Lakeyshu Beard þegar hún tók sér far með lest þvert yfir Bandaríkin á dögunum. 18.5.2011 15:03
Bjarni Harðar: Orkar tvímælis að flokka Khat sem fíkniefni Það orkar mjög tvímælis að flokka khat sem fíkniefni. Í Bretlandi er efni þetta leyft og þó að neysla þess sé kannski álíka ávanabindandi og kaffi þá eru áhrifin óveruleg“, skrifar Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, um efnið Khat sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á. 18.5.2011 15:00
Leiðtogafundurinn á hvíta tjaldið Breski leikstjórinn Ridley Scott virðist hafa tekið miklu ástfóstri við Ísland. Samkvæmt erlendum kvikmyndavefjum tókust samningar milli framleiðslufyrirtækisins Headline Pictures og Scotts á kvikmyndahátíðinni í Cannes um að hann myndi leikstýra kvikmynd um leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík. 18.5.2011 15:00
Árni Páll fundaði með ESA - hundruð milljarða í handbæru fé til reiðu Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra fundaði í dag með stjórn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) þar sem svar Íslands til stofnunarinnar vegna Icesave-málsins var reifað og rætt samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. 18.5.2011 14:23
Margir vilja losna við símaskrána Borgarsstjórnin í San Francisco hefur samþykkt að íbúar borgarinnar fái ekki sjálfkrafa senda símaskrána heim til sín. Margir vilja leggja skrána alveg af en borgarfeðurnir vilja ekki ganga svo langt. 18.5.2011 14:08
Höfundur Family Guy gerir nýja Flintstones-þætti Aðdáendur "The Flintstones" þáttanna þurfa ekki að bíða lengur eftir nýjum þáttum því FOX sjónvarpstöðin tilkynnti í vikunni að Seth MacFarlane, höfundur Family Guy, ætli að búa til nýja seríu af þessum gömlu og klassísku þáttum. 18.5.2011 14:07
Hefur ekki játað morð Maður, sem er í haldi lögreglu grunaður um að hafa orðið barnsmóður sinni að bana fyrir helgi, hefur ekki játað sök, eins og greint var frá í fjölmiðlum stuttu eftir að atvikið kom upp. 18.5.2011 14:05
Tilraun til manndráps: Ber fyrir sig minnisleysi Karlmaður um sextugt, sem var handtekinn um helgina grunaður um að hafa reynt að myrða eiginkonu sína, hefur ekki játað að hafa veitt konunni áverka og ber fyrir sig minnisleysi. 18.5.2011 13:44
Forstöðumenn vilja hærri laun - hóta málsókn Félag forstöðumanna ríkisstofnana krefst þess í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins í dag að launalækkun félagsmanna verði afturkölluð. Kjararáð lækkaði laun félagsmanna þann fyrsta mars 2009 og hefur lækkunin ekki verið tekin til baka. Á þessu vill félagið að gerð verði bragarbót strax auk þess sem laun forstöðumanna verði endurskoðuð. Í ályktuninni segir ennfremur að verði kjararáð ekki við kröfunum sé eðlilegt að farið verði með málið fyrir dómstóla. "Meint lögbrot kjararáðs snýst ekki aðeins um laun og starfskjör forstöðumanna ríkisstofnana heldur grefur það undan trausti og virðingu fyrir íslenskri stjórnsýslu," segir einnig og því bætt við að við það verði ekki unað. 18.5.2011 13:15
Reyndu að smygla 60 kílóum af Khat úr landi Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 31. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 18.5.2011 11:35
Vilja stytta nauðgunardóma um helming Breska ríkisstjórnin vill stytta fangelsisdóma fyrir nauðganir um helming ef ódæðismennnirnir játa sekt sína strax í upphafi málaferla. Í dag gilda þær reglur að dómar eru styttir um þriðjung við játningu. 18.5.2011 11:25
Skólameistari VMA: Við erum ekki í vinsældakeppni "Við erum ekki í vinsældakeppni. Við útskrifum hæft og gott fólk," segir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri. Samkvæmt úttekt stærðfræðings á gæðum 32 framhaldsskóla á Íslandi er VMA í neðsta sæti. Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og stjórnlagaráðsmaður, vann úttektina fyrir Frjálsa verslun. Í nýjasta tölublaðinu kemur fram að skólarnir séu metnir samkvæmt 17 gæðavísum, meðal annars menntun kennara, árangri í innlendum og alþjóðlegum keppnum, svo sem Gettu Betur. Eins og komið hefur fram trónir Menntaskólinn í Reykjavík á toppi listans, með 925 stig, og Menntaskólinn í Hamrahlíð er í öðru sæti, með 660 stig. VMA fær hins vegar aðeins 46 stig. Hjalti Jón telur þessar niðurstöður ekki ástæðu fyrir starfsfólk og nemendur við VMA til að örvænta. "Ég tek þetta ekki alvarlega," segir hann. Hjalti Jón bendir á að skólinn taki lítið þátt í alþjóðlegum keppnum. Hins vegar sé í skólanum breiður hópur ánægðra nemenda og strangt eftirlit með gæðum skólastarfs. Hann segir hægt að meta skólastarf út frá mörgum ólíkum forsendum og ekki sanngjarnt að draga skóla í dilka á þennan hátt. "Ég held að svona lagað geti hreinlega verið hættulegt," segir Hjalti Jón og á þar við að með því að flokka skóla á þennan hátt fái nemendur jafnvel ranga mynd af skólunum. Þá tekur hann dæmi af því að VMA er með sérstaka deild þar sem lögð er áhersla á þjónustu við fatlaða nemendur, en ekkert tillit sé tekið til viðlíka þátta í matinu. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, segir í samtali við Frjálsa verslun að hún setji ákveðna fyrirvara við niðurstöðu úttektarinnar. Þar bendir hún meðal annars á ójöfn tækifæri milli skóla á landsbyggðinni og í höfuðborginni til að taka þátt í mörgum þeim keppnum sem lagðar eru til grundvallar matinu. Þá bendir hún á að margir þeirra skóla sem eru ofarlega á listanum, svo sem MR og MH, eru í þeirri aðstöðu að geta valið inn nemendur. Í Frjálsri verslun er einnig rætt við stjórnendur þeirra skóla sem efstir eru í úttektinni. Þeir eru sammála um að niðurstöðum sem þessum þurfi að taka með fyrirfara. 18.5.2011 11:15
Heilsubækur tróna á toppnum Bækur um leiðir til bættrar heilsu eru í efstu þremur sætum metsölulista Eymundssonar. Í fimmta sæti er síðan fyrsta skáldsaga höfundarins Hildar Knútsdóttur, Sláttur, sem gefin er út í kilju. Kiljur njóta almennt mikilla vinsælda um þessar myndir. Sú skáldsaga sem var mest seld í vikunni 11. til 17. maí er hins vegar Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur, sem er þaulsætin á metsölulistanum. Hún er einnig kilja. Bókin Léttara og betra líf eftir Lene Hansson er á toppi listans. Í öðru sæti er fók Þorbjargar Hafsteinsdóttur, 10 árum yngri á 10 vikum, sem raunar er uppseld og er væntanleg aftur 25. maí. Þá er bókin Matur sem yngir og eflir í þriðja sætinu, einnig eftir Þorbjörgu Hafsteinsdóttur. 18.5.2011 10:04
Eldsneytisverð lækkar um tvær krónur Atlantsolía lækkaði bensínverðið hjá sér í morgun um tvær krónur. Eins lækkaði verðið á díselolíu um tvær krónur hjá félaginu. 18.5.2011 09:41
54 þúsund á tónleikum Sinfóníunnar á síðasta ári Tæplega 54 þúsund gestir sóttu tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands á síðasta ári. Hljómsveitin hélt 87 tónleika á árinu, alla innanlands. 53 þeirra voru almennir tónleikar, 10 barna- og fjölskyldutónleikar, 11 skólatónleikar í Reykjavík, 22 tónleikar á sjúkrahúsum og víðar, og loks einir vinnustaðatónleikar. Þetta kemur fram í gögnum sem Hagstofa Íslands hefur tekið saman og birtir á vef sínum. Tónleikagestir árið 2009 voru ríflega 46 þúsund og heildarfjöldi Sinfóníuhljómsveitarinnar 81. 18.5.2011 09:20
Þrír dæmdir fyrir vopnað rán Þrír ungir menn hafa verið dæmdir í sex til átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnað rán. 18.5.2011 09:00
Fráleit afsökun hjá ráðherra Bæjarstjórn Vestmannaeyja segir samgönguyfirvöld ráðlaus í öllu sem snúi að samgöngum á sjó við Vestmannaeyjar. „Ástandið er orðið algerlega óþolandi,“ segir bæjarstjórnin sem bendir á að dýpkunarskip fyrir Landeyjahöfn sé bilað og gagnrýnir Ögmund Jónasson innanríkisráðherra. Bæjarstjórnin segir fráleitt hjá ráðherra að kenna náttúruöflum um „þær tafir og þann skaða sem Eyjamenn verða nú fyrir á degi hverjum.“ - gar 18.5.2011 09:00
Listamenn vilja 26 skyndistyrki Alls bárust 26 umsóknir um svokallaða skyndistyrki sem menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar afgreiðir í næstu viku. 18.5.2011 08:00
Launin lækkuð um 300 þúsund Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri Hjúkrunarheimilanna Eirar og Skjóls út þetta sumar, fær 300 þúsund krónum lægri laun en forveri hans í starfi. Vilhjálmur fær og greidda aksturspeninga fyrir notkun á eigin bíl samkvæmt akstursbók en ekki fasta 200 þúsund króna greiðslu á mánuði eins og var. Að frátöldum greiðslum fyrir akstur verða mánaðarlaun Vilhjálms 920 þúsund krónur. 18.5.2011 08:00
Landsbjörg og Olís í samstarf Slysavarnafélagið Landsbjörg og Olíuverzlun Íslands hf. (Olís) hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Olís verður einn af aðalstyrktaraðilum samtakanna og mun styðja við samtökin bæði fjárhagslega og með verulegum afslætti af eldsneyti og öðrum vörum. 18.5.2011 08:00
Kaffidrykkja dregur úr líkunum á krabbameini í blöðruhálskirtli Ný bandarísk rannsókn sýnir að kaffidrykkja dregur verulega úr líkunum á því að karlmenn fái krabbamein í blöðruhálskritli. 18.5.2011 07:56
Fundu yfir 500 laumufarþega í gámum í Mexíkó Lögreglan í Mexíkó fann 513 laumufarþega í nokkrum gámum á tveimur tengivögnum tveggja vörubíla í gær. 18.5.2011 07:55
Útvegsbændur í Eyjum meta sjálfir áhrif kvótafrumvarpsins Útvegsbændur í Vestmannaeyjum ætla sjálfir að meta áhrif breytinga á kvótakerfinu á sjávarútveginn í Eyjum og birta álit sitt í kjölfarið, frekar enn að fara að því dæmi ríkisstjórnarinnar að skjóta fyrst og spyrja svo, segir í yfirlýsingu frá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja. 18.5.2011 07:49
Mikil áfengisdrykkja skaðar minni ungmenna Ný rannsókn á vegum Santiago háskólans á Spáni sýnir að mikil áfengisdrykkja ungmenna gerir það að verkum að minni þeirra skaðast. 18.5.2011 07:48
GPS tæki stolið úr bíl í Seljahverfi Brotist var inn í bíl í Seljahverfi í Breiðholti í nótt og úr honum stolið GPS staðsetningatæki. Þjófurinn komst undan. 18.5.2011 07:46
Danir gera tilkall til norðurpólsins „Konungsríkið býst við að gera tilkall til landgrunnsins á fimm svæðum umhverfis Grænland og Færeyjar, þar á meðal til sjálfs norðurpólsins,“ segir í drögum að sameiginlegri stefnu Danmerkur, Grænlands og Færeyja í norðurskautsmálum næstu tíu árin. 18.5.2011 07:45
Má ekki eyða hreiðrum Fuglavernd skorar á meindýraeyða og garðeigendur að fara að lögum og eyða ekki starahreiðrum meðan egg og ungar eru í hreiðrinu. Starinn er alfriðaður og því ólöglegt að drepa staraunga í hreiðri eða eyða eggjum. Starinn er nýlegur landnemi hér á landi. Hann sækist eftir nábýli við manninn og getur því borist óværa úr hreiðrinu í híbýli manna inn um glugga. Best er að koma í veg fyrir staravarp með því að loka glufum og rifum sem fuglarnir sýna áhuga snemma vors. 18.5.2011 07:45
Hattur Beatrice prinsessu á uppboði Hatturinn sem Beatrice prinsessa, dóttir Söru Ferguson, bar í brúðkaupi þeirra Vilhjálms prins og Katrínar Middleton hefur verið boðinn til sölu á eBay uppboðsvefnum. 18.5.2011 07:44
Menn á lítilli seglskútu á Faxaflóa óskuðu aðstoðar Tveri menn á lítilli seglskútu óskuðu eftir aðstoð í gærkvöldi þegar stýrisbúnaður skútunnar bilaði, þegar hún var stödd á Faxaflóa, út af Hafnarfriði. 18.5.2011 07:38
Ekki fasteignabóla heldur eðlileg þróun „Auðvitað eru til peningamenn. En þeir eru líka alveg ofboðslega harðir að bjóða og kaupa ekki eignir á uppsprengdu verði. Þeir eru að gera góð kaup," segir Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala. Hún segist þó ekki hafa orðið vör við fjölgun öflugra fjárfesta á fasteignamarkaðnum sem séu að blása upp verð á íbúðum í landinu. 18.5.2011 07:30
Schwarzenegger viðurkennir barnseign með starfsstúlku Arnold Schwarzenegger fyrrum ríkisstjóri Kaliforníu hefur nú viðkennt að hann hafi eignast barn með einni af starfsstúlkunum á heimili sínu fyrir um áratug síðan. 18.5.2011 07:28
Fimm líbískum diplómötum vísað úr landi í Kanada Stjórnvöld í Kanada hafa vísað fimm líbískum diplómötum úr landi eftir að utanríkisráðuneyti landsins komst að þeirri niðurstöðu að hegðun þeirra væri óásættanleg. Var þeim og fjölskyldum þeirra gert að yfirgefa Kanada á næstu dögum. 18.5.2011 07:26
Verkalýðsfélög boða aðgerðir gegn Norrænu Afl-starfsgreinafélag, ASÍ og Sjómannasambandið boða aðgerðir gegn útgerðarfélagi ferjunnar Norrænu, fyrir að greiða íslenskum starfsmönnum á skipinu 30 prósent lægri laun en erlendum starfsmönnum, fyrir sömu störf. 18.5.2011 07:24
Varað við vorhreti fyrir norðan og austan Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra varar ferðafólk við að akstursskilyrði geti spillst norðan- og austanlands vegna vorhrets næstu daga, með kólnandi veðri á landinu öllu. 18.5.2011 07:15
Óþekktur Egypti valinn sem nýr leiðtogi al-Kaída Óþekktur Egypti hefur verið valinn sem leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna í stað Osama bin Laden. 18.5.2011 07:13