Fleiri fréttir

Óánægja með verðmerkingar

Neytendasamtökunum hefur borist fjöldi kvartana undanfarna daga vegna ófullnægjandi verðmerkinga á kjöti í matvöruverslunum.

Ísraelar reyna að hindra för

Skipuleggjendur alþjóðlegs mótmælendaflota, sem hyggst sigla frá Grikklandi til Gasasvæðisins, saka ísraels stjórnvöld um að reyna að fá grísk stjórnvöld til að meina flotanum að sigla.

Íslenskir sjóliðar á norsku seglskipi?

Íslendingar geta krækt sér í vinnu um borð í stærsta þrístefnda seglskipi heims, norska seglskipinu Statsraad Lehmkuhl, sem kemur til Reykjavíkur þann 9. júlí næstkomandi. Hér er þó ekki um að ræða góða leið fyrir félitla Íslendinga að sækja sér vasapeninga og fría ferð til Noregs, því það mun kosta rúmar 174 þúsund krónur að fá pláss á skipinu.

Kona verður ríkust í heimi

Gina Rinehart er nú þegar ríkasta manneskjan í Ástralíu, en bandaríski bankinn Citigroup metur nú sem svo að Rinehart sé á góðri leið með að taka fram úr ríkustu mönnum heims.

Aldurstakmark á tölvuleiki samræmist ekki stjórnarskránni

Hæstiréttur Bandaríkjanna komst að þeirri niðurstöðu í dag að lög, sem sett voru í Kalíforníu og leggja bann við sölu á ofbeldisfullum tölvuleikjum, samræmist ekki stjórnarskránni. Meirihluti dómara við réttinn voru á þeirri skoðun að ríkjum sé óheimilt að „skerða þær hugmyndir sem börn kunni að komast í snertingu við," eins og það er orðað. Því væri bannið það brot á fyrsta stjórnarskrárviðaukanum.

Árlegar uppsagnir Icelandair

Icelandair hefur sent 59 flugmönnum og 37 flugstjórum uppsagnarbréf. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er að ræða sumarstarfsmenn sem voru ráðnir undir þessum formerkjum og því er um árlegt fyrirkomulag að ræða. Kjarasamningar flugmanna leyfa ekki tímabundnar ráðningar og af þeim sökum er þessi leið farin.

Ristilspeglun í staðinn fyrir koníak í afmælisgjöf

Það er betra að fá ristilspeglun í fimmtugsafmælisgjöf en koníaksflösku segir maður sem hefur barist við ristilkrabbamein í tæpan áratug. Minni líkur eru á lækningu ristilkrabba hjá þeim sem fara fyrst í rannsókn þegar einkenni eru komin í ljós.

Árni Þór telur brýnt að hraða aðildarferlinu

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segist ánægður með að aðildarviðræðurnar Íslands og Evrópusambandsins gangi hratt fyrir sig. "Ég er eindreginn stuðningsmaður þeirra ákvörðunar Alþingis að fara að fara í viðræður við Evrópusambandið um hugsanlega aðild og leggja málið í dóm kjósenda. Það er það lýðræðislega umboð sem stjórnvöld hafa og Alþingi á að hafa eftirlit með því.“

Mikil reiði innan ferðaþjónustunnar vegna aðgerða flugmanna

Fulltrúar flugmanna og Icelandair funda nú í Karphúsinu en fjórum flugferðum var aflýst í dag vegna yfirvinnubanns flugmanna félagsins. Fyrirtæki í ferðaþjónustunni segja yfirvinnubannið hafa alvarleg áhrif á ferðasumarið. Flugmenn hafi atvinnu fleiri stétta í höndum sér.

Stækkunarstjóri ESB segir að sjávarútvegsmálin verði erfiðust

Utanríkisráðherra lagði til á ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins í morgun að aðildarviðræðum Íslendinga við sambandið verði hraðað, og tekist verði á um alla nauðsynlega kafla samninganna sem fyrst. Ráðamenn í Brussel sögðu daginn sögulegan og lýstu ánægju með að formlegar aðildarviðræður væru hafnar.

Norðmenn setja kraft í olíuleit við Jan Mayen

Norsk stjórnvöld hafa sett olíuleit við Jan Mayen á fulla ferð og tilkynntu fyrir helgi að eyjan kynni að verða nýtt sem þjónustumiðstöð vegna olíuvinnslu. Skip er nú statt þar við hljóðbylgjumælingar og í næsta mánuði verður fjarstýrður kafbátur þar við botnrannsóknir.

Konur haldi áfram að fara í leghálskrabbameinsskoðun

Byrjað verður að bólusetja íslenskar stúlkur í haust við HPV-sýkingum sem geta leitt til leghálskrabbameins. Sóttvarnarlæknir segir þó mikilvægt að konur fylgi áfram þeim tilmælum sem nú eru í gildi um krabbameinsleit.

Nokkrir yfirheyrðir vegna hestaníðs í Skagafirði

Lögregla hefur yfirheyrt nokkra í tengslum við hestaníðingsmál sem kom upp á einu þekktasta hrossabúi landsins fyrir skömmu. Þá fundust þrjár hryssur með skurði á kynfærum og á snoppu, en skurðirnir eru taldir vera af mannavöldum.

Fagráð taki fyrir ásakanir um kynferðislega misnotkun

Kaþólska kirkjan á Íslandi fundaði í dag um ásakanir um kynferðislega misnotkun innan kirkjunnar sem fjallað hefur verið um undanfarið. Viðbrögð kirkjunnar er að vænta í kvöld eða í fyrramálið.

Fundað vegna yfirvinnubanns flugmanna

Fulltrúar flugmanna Icelandair og Icelandair sitja nú á fundi í Karphúsinu vegna yfirvinnubanns flugmanna. Ríkissáttasemjari sleit viðræðum deiluaðila á laugardaginn þar sem of mikið bar á milli. Hann boðaði nýjan fund í dag og hófst fundurinn klukkan hálf tvö.

Telur breytingar á kvótakerfinu ógna bankakerfinu

Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, segir að þær breytingar sem lagt er til að gerðar verði á kvótakerfinu séu óraunhæfar. Jafnframt telur hún að breytingarnar ógni bankakerfinu. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Lilju.

Talíbanar hóta árásum í Bandaríkjunum og Evrópu

Talíbanar í Pakistan hótuðu því um helgina að yfirvofandi væru hryðjuverkaárásir á skotmörk í Bandaríkjunum og Evrópu. Árásunum er ætlað að hefna fyrir drápið á Osama Bin Laden í maí, en þetta kom fram í ávarpi hátt setts talíbanaforingja í landinu. Að hans sögn eru helstu skotmörkin í Evrópu í Frakklandi og í Bretlandi. Í sama ávarpi lýstu talíbanar ábyrgð á árás á pakistanska flotastöð í lok maí á hendur sér.

Matvælastofnun ráðleggur fólki að sjóða spírur

Matvælastofnun ráðleggur neytendum að skola baunaspírur vel og sjóða þær í varúðarskyni auk þess sem ráðlegt sé að hugsa vel um handþvott til að forðast smit. Tilefnið er nú hópsýking sem upp kom í Frakklandi, sem hægt er að tengja við neyslu á spírum.

12 ára stúlkur bólusettar gegn leghálskrabbameini

Byrjað verður að bólusetja íslenskar stúlkur í haust við HPV-sýkingum sem geta leitt til leghálskrabbameins. Landlæknisembættið hefur gert kaupsamning við lyfjafyrirtækið GSK um kaup á bóluefni gegn leghálskrabbameini og HPV-sýkingum. Um er að ræða bóluefnið Cervarix sem notað verður í almennum bólusetningum hjá stúlkum hér á landi. Bólusetningin hefst í september næstkomandi en á komendi vetri verða tveir árgangar stúlkna bólusettur, þær sem fæddar eru 1998 og 1999. Í framhaldi af því verða 12 ára stúlkur bólusettar árlega. Talið er að með almennri bólusetningu megi koma í veg fyrir um 60-70% leghálskrabbameins og um 40% alvarlega forstigsbreytinga þess Hér á landi greinast árlega um 17 konur með leghálskrabbamein og um 300 konur með alvarlegar forstigsbreytingar. Á vef Landlæknisembættisins kemur fram að full bólusetning felur í sér þrjár sprautur og er áætlað að bólusett verði í skólum landsins en framkvæmd bólusetningarinnar er á ábyrgð heilsugæslunnar. Fræðsluefni til stúlkna og foreldra þeirra verður dreift í byrjun skólaárs 2011. Þar sem leghálskrabbamein myndast um 20-30 árum eftir HPV sýkingu þá mun líða langur tími þar til að árangur bólusetningarinnar kemur í ljós. Því er mikilvægt að konur fylgi áfram þeim tilmælum sem nú eru í gildi um krabbameinsleit.

Hálendisvegir opna síðar nú en undanfarin ár

Opnun hálendisvega er nú um tveimur til þremur vikum á eftir því sem verið hefur undanfarin ár, en allur akstur er enn bannaður á fjölmörgum vegum vegna aurbleytu og hættu á skemmdum.

Hefur ekið strætó í fjörutíu ár

Jónas Engilbertsson strætóbílstjóri náði þeim áfanga í síðustu viku að hafa ekið strætisvagni í 40 ár. Ögmundur Jónasson ráðherra samgöngumála, heiðraði Jónas af því tilefni en einnig var hann heiðraður af Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.

Hetjulundur krabbameinssjúkra barna vígður

Hvíldarheimilið Hetjulundur var vígt í gær af Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna en heimilið er fyrst og fremst hugsað sem athvarf fyrir krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra á meðan á erfiðleikum þeirra stendur. Auk vígslunnar var heimilið formlega tekið í notkun í gær.

Bachmann lýsir yfir framboði

Michele Bachmann, öldungardeildarþingkona frá Minnesota lýsti í dag yfir framboði til forvals repúblikana fyrir komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum. Bachmann er vinsæl innan teboðshreyfingarinnar svokölluðu, sem eru íhaldssamir repúblikanar en hún tilkynnti um framboð sitt í Iowa hvaðan hún er ættuð.

Palestína sækist eftir viðurkenningu SÞ

Palestínsk yfirvöld hyggjast sækjast eftir viðurkenningu Sameinuðu Þjóðanna sem sjálfstætt ríki. Það var Yasser Abed Rabbo, aðalritari Framkvæmdarnefndar palestínsku frelsissamtakanna, sem las upp tilkynninguna í gærkvöld, en bæði Ísrael og Bandaríkin eru mótfallin því að Palestína öðlist sjálfstæði.

Kanna áhuga fólks á skiltun fyrir puttalinga

Félag íslenskra bifreiðaeigenda stendur nú fyrir könnun á vef sínum þar sem fólk er spurt um álit á því hvort rétt sé að setja upp skilti á þéttbýlis- og ferðamannastöðum fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri, sem óska eftir bílfari. Þar sem stutt er síðan könnun var útbúin hafa heldur fáir tekið þátt enn sem komið er, eða 169. Flestir taka vel í þetta og segja 55,4% þátttakenda "Já, endilega". Þá segja 14,2% "Alls ekki." Ný tegund þjónustuskilta skaut upp kollinum í vor utan Bolungarvíkur og Súðavíkur, þar sem umferð fer hjá til Ísafjarðar. Skiltið er ætlað gangandi vegfarendum sem óska sér ferðar með bílum sem eiga leið fram hjá. Með því að standa við skiltið gefur fólk til kynna að það óski eftir fari. Það eru samtökin Leið ehf. sem standa fyrir verkefninu. Tilraunin er gerð meðal annars vegna þess að kostnaður við rekstur bifreiða færist sífellt í aukana og talsverður fjárhagslegur ávinningur sé að því að samnýta ferðir. Þá sé einnig mikilvægt að huga að umhverfissjónarmiðum.

200 lítrum af dísilolíu og fartölvu stolið

Fyrir um viku síðan var 200 lítrum af dísilolíu stolið af kranabifreið og skotbómulyftara sem voru við Kuldabola í Þorlákshöfn. Sömu nótt var brotist inn í kaffiskúr á gámasvæðinu við höfnina. Þar var mikið rótað til, kaffi og pappír dreyft um skúrinn og fartölvu var stolið. Þá var jafnframt gerð tilraun til að fara inn í gáma á svæðinu.

Vilja handtaka Gaddafí

Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipun á Múammar Gaddafí, leiðtoga Líbíu. Gaddafí er sakaður um glæpi gegn mannkyni og er hann grunaður um að hafa fyrirskipað árásir á óbreytta borgara á þeim fjórum mánuðum sem liðnir eru frá því uppreisn gegn honum hófst. Dómstóllinn gaf einnig út handtökuskipanir á tvo nánustu samstarfsmenn Gaddafís, son hans Saif al-Islam og yfirmann leyniþjónustunnar, Abdullah al-Sanussi.

Loftsteinsins vænst klukkan fimm í dag

Loftsteinninn 2011 MD mun koma næst jörðu um klukkan fimm í dag að sögn Sævars Helga Bragasonar, formanns Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Loftsteinninn, sem stjörnuskoðunarmenn uppgötvuðu í síðustu viku, er um tuttugu metrar að lengd og verður í um 12 þúsund kílómetra fjarlægð frá jörðu í dag.

Ekkert hræðir ferðamenn meira en að komast ekki aftur heim

Mörg fyrirtæki í ferðaþjónustunni hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna yfirvinnubanns flugmanna Icelandair en félagið hefur nú aflýst fimmtán flugum. Framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir ekkert hræða ferðamenn meira en tilhugsunin að komast ekki aftur heim. Viðræðum verður haldið áfram í Karphúsinu í dag.

Aðeins sjö deildarlæknar - eiga að vera tuttugu og tveir

Aðeins sjö deildarlæknar verða að störfum á lyflækningadeild Landspítalans á tímabili í júlí en þeir eiga að lágmarki að vera tuttugu og tveir. Formaður félags almennra lækna segir starfsmenn kvíða sumrinu og að dæmi séu um að einhverjir hafi leitað að vinnu annars staðar vegna ástandsins.

Aðildarviðræður við ESB hafnar

Aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hófust í dag þegar fyrstu fjórir kaflar viðræðnanna voru teknir fyrir, en samkvæmt fréttatilkynningu á síðu sambandsins hefur yfirferð á tveimur þessara kafla verið lokað til bráðabirgða.

Norrænir ráðherrar ræddu mænuskaða í Finnlandi

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sagði á fundi velferðaráðherra Norðurlandanna í Finnlandi síðustu viku að umferðarslys væru ein höfuðorsök meiðsla, sér í lagi hjá ungu fólki.

Minningarleiftur úr Eyjafirði - keppni Sögufélagsins

Sögufélag Eyfirðinga fagnar á þessu ári 40 ára afmæli. Af því tilefni stendur félagið fyrir samkeppni um athyglisverðar minningar. Skorað er á alla, unga sem aldna, konur og karla, að hugleiða hvað á dagana hefur drifið og setja á blað minningaleiftur. Viðkomandi þarf ekki að vera Eyfirðingur í neinum skilningi þess orðs en atburðurinn sem hann rifjar upp verður að hafa gerst á 20. öldinni og í Eyjafirði - en þar er talinn með Siglufjörður að vestanverðu og Gjögrar að austan. „Og, svo það sé undirstrikað rækilega, frásögnin verður að vera byggð á persónulegri reynslu - þetta var það sem ég upplifði og sá, mínar tilfinningar og minn sjónarhóll,“ segir í tilkynningu. „Það skal tekið fram að ef einhver á í fórum sínum frásögn t.d. afa eða ömmu, sem uppfyllir framantalin skilyrði, þá á hún heima í þessari samkeppni sem er ekki síst hugsuð sem tækifæri til að forða skemmtilegum og fróðlegum minningum frá gleymsku. Sögufélagið áskilur sér sem sé rétt til að birta innsendar greinar í Súlum, ársriti félagsins, sér að kostnaðarlausu Ágætt er að miða við þrjár blaðsíður, greinin má þó vera styttri eða lengri ef efnið krefst þess. Nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi, þrjár viðurkenningar verða veittar en seinasti skiladagur er 22. október 2011," kemur fram í tilkynningunni. Ritgerðir sendist til ritstjóra Súlna: Hauks Ágústssonar Galtalæk 600 Akureyri

Skipverjar keppa í planki - Alltaf eitthvað að bauka

Allir átján skipverjar á fjölveiðiskipinu Hugin VE slógu til og ákváðu að taka þátt í plankakeppni. Guðmundur Ingi Guðmundsson, fyrsti stýrimaður, hafði aldrei heyrt um plank fyrr en félagar hans á skipinu fóru að tala um þessa nýstárlegu afþreyingu. "Ég kom bara af fjöllum,“ segir hann. Fyrsta plank Guðmundar hefur nú verið fest á filmu, ásamt planki hinna skipverjanna, og stendur yfir kosning um besta plankið. Þeim sem þekkja til þeirra félaga á Hugin kemur uppátækið ekki mikið á óvart enda segir Guðmundur Ingi þá heldur uppátækjasama. "Við erum alltaf að bauka eitthvað, segir hann. Myndirnar af planki skipverjanna má sjá hér að neðan. Þær er einnig að finna á heimasíðu Hugins VE þar sem nafn hvers plankara er við myndina og þar er auk þess hægt að kjósa um besta plankið.

Starfsmaður Lyfja og heilsu dró að sér fé

Starfsmanni í útibúi Lyfja og Heilsu á Suðurlandi hefur verið vísað úr starfi eftir að upp komst að hann hafi stolið umtalsverðri fjárhæð af fyrirtækinu. Eftir því sem næst verður komist stal starfsmaðurinn að minnsta kosti tveimur milljónum króna.

Bandaríska skipið Eagle leggst að höfn í Reykjavík

Bandaríska strandgæsluskipið Eagle mun leggjast að Miðbakka í Reykjarvíkurhöfn klukkan tíu á morgun, þriðjudaginn 28. júní. Skipið, sem er þrímastra seglskip, hefur hér viðkomu á siglingu sinni til að minnast þess að 75 ár eru liðin frá því það var smíðað.

Þrjú stutt viðvörunarmerki fyrir hverja sprengingu

Þrjú stutt hljóðmerki verða gefin fyrir hverja sprenignu við gerð snjóflóðavarnargarðinn í Bolungarvík til að gera íbúum viðvart. Sprengingar verða áfram á sama tíma og verið hefur, klukkan 12.00, 15.30 eða 18.00. Viðvörunarhljóðið er liður í ferli sem hrint var af stað vegna óhapps við sprengingar fyrir helgina þar sem miklar skemmdir urðu á nærliggjandi húsum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sigurði Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Ósafls hf. sem sér um framkvæmdirnar. Lögregla og Vinnueftirlit rannsaka nú tildrög óhappsins, og munu starfsmenn og öryggisfullrúi Ósafls fara yfir verklag. "Þegar ástæður óhappsins liggja fyrir munum við endurbæta vinnulag sem tryggir að óhapp sem þetta endurtaki sig ekki," segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að sprengingar hefjist ekki að nýju fyrr en ástæður óhapps liggja fyrir og verklag hefur verið endurbætt.

Bjarnargreiði við brotakonur - kynjamisrétti í refsidómum

"Fyrstu viðbrögð þeirra sem ég tala við er að þetta sé brjálað ójafnrétti gagnvart körlum,“ segir Helga Vala Helgadóttir, lögfræðingur, um niðurstöðu meistaraverkefnis síns að réttarkerfið tekur vægar á konum en körlum. Í Bítinu á Bylgjunni í morgun sagðist hún telja þetta vera bjarnargreiða þar sem konurnar eru jafnvel komnar í verri stöðu en karlmenn þegar þær eru loks stoppaðar af í brotastarfsemi sinni. Helga Vala segist hafa farið að velta fyrir sér hvort þarna væri um einhvers konar misskilning að ræða innan réttarkerfisins. "... að það væri verið að gera konunum greiða, innan gæsalappa, með því að gefa þeim endalaust þessa sjensa. Því að einhvers staðar hefur þú líka, hvort sem þú gerist brotlegur við lögin eða ekki, þá hefur þú gott af því að fá þetta gula spjald, eða jafnvel rauða," segir hún. Lokaverkefni Helgu Völu ber heitið "Misskilin mannúð - rannsókn á meðferð réttarkerfisins á brotakonum" en hún útskrifaðist á dögunum með meistaragráðu frá Háskólnanum í Reykjavík. Í Bítinu á Bylgjunni í morgun fór hún yfir niðurstöður verkefnisins og viðbrögð við þeim. Meðal þess sem þar kom fram er að vegna vægari dóma yfir konum sem teknar eru fyrir fíkniefnasmygl hefur orðið til eins konar launamisrétti meðal burðardýra í fíkniefnaheiminum. Hlusta má á viðtalið í heild sinni með því að smella á tengilinn hér að ofan.

Alls engin yfirlýsing - Svör ráðherra oftúlkuð

Iðnaðarráðherra sendi aldrei frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að til greina kæmi að lögbann yrði sett á verkfall flugmanna. "Það mátti skilja það þannig af fréttum en það er nú ekki rétt, ég gerði það ekki," sagði Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, Í bítinu á Bylgjunni í morgun. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna talaði um það í fjölmiðlum um helgina að "yfirlýsing" ráðherra hefði snert flugmenn illa og að hún hefði komið á viðkvæmum tíma. Fréttir af þessu voru fluttar í ýmsum fjölmiðlum þar sem fjallað var um kjaradeilu flugmanna hjá Icelandair. Hið rétta er hins vegar að fréttamaður Stöðvar 2 spurði ráðherra á föstudag hvort hægt væri að útiloka að lögmann yrði sett á verkfallið og sagði ráðherra aldrei hægt að útiloka slíkt. "Það er náttúrulega aldrei hægt að útiloka slíka möguleika þegar kjaradeilur eiga sér stað. Ég held að það geti ekki nokkur maður gert það," sagði Katrín Í bítinu en tók fram að mikið þyrfti að ganga á áður en gripið væri til slíkra aðgerða. "Það er nú ekki komið að því á þessari stundu og töluvert í land með það þannig að þessi orð mín voru nú eitthvað oftúlkuð," sagði hún. Meðal annars sagði Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í viðtali við RÚV á sunnudag: "Það er skelfilega ófaglegt af iðnaðarráðherra að hóta lögbanni." Í bítinu var Katrín spurð hvort túlkun á svari hennar hefði verið tekin of langt. "Já, það má segja það. En það kannski hefur hentað einhverjum. Það er bara eins og það er," sagði hún. Hægt er að hlusta á viðtalið við Katrínu Í bítinu í morgun með því að smella á tengilinn hér að ofan. Með því að smella hér má horfa á viðtal Stöðvar 2 við ráðherra á föstudag þar sem hún segist aðspurð ekki útiloka lögmann. http://visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTV67736FBF-CA9B-4BEC-9096-CB65633EA060

Í fimm daga gæsluvarðhald vegna líkamsárásar

Karlmaður, sem braust inn í íbúð annars manns á Akranesi undir morgun í gær og veitti honum alvarlega áverka með barefli, var seint í gærkvöldi úrskurðaður í allt að fimm daga gæsluvarðhald.

Sjá næstu 50 fréttir