Hjörð erlendra blaðamanna óð yfir Heimi Má

Heimir Már Pétursson, fréttamaður Stöðvar 2, stóð vaktina í Alþingishúsinu í beinni útsendingu í gærkvöldi. Gríðarlegur fjöldi fjölmiðlamanna var á svæðið og þegar íslensku fréttamennirnir höfðu rætt við Sigurð Inga Jóhannsson, verðandi forsætisráðherra, og Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, var komið að erlendum blaðamönnum að fá sinn tíma og sínar spurningar. Um leið og það var tilkynnt fékk Heimir Már fjölda fréttamanna í fangið og varð hann hreinlega undir í örtröðinni.

1263
00:19

Vinsælt í flokknum Fréttir