Fréttir

Fréttamynd

Ágreiningur um byggðaáherslurnar

Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, segir ekki hægt að skoða kvótamál eingöngu út frá nýútkominni hagfræðingaskýrslu. Til að setja málið í samhengi þurfi aðra úttekt; á afleiðingum núverandi kvótakerfis á byggðir og samfélag síðustu 20 árin.

Innlent
Fréttamynd

Ástand sjávar fer ört versnandi

Höf jarðar eru í verra ástandi en áður hefur verið talið, að mati hóps sérfræðinga. Í nýrri skýrslu er varað við því að mikil hætta sé á að tímabil fjöldaútdauða meðal sjávarlífvera renni upp í fyrsta sinn á sögulegum tíma. Ofveiði, mengun og loftslagsbreytingar eru sagðar meðal orsaka þessa vanda, sem sé þegar farinn að hafa áhrif á mannkynið.

Innlent
Fréttamynd

Meira fjármagn lagt í neyðarsjóð ESB

Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í gær að efla neyðarsjóð sambandsins, svo hann geti betur tekið á vanda stórskuldugra ríkja á borð við Grikkland, Írland og Portúgal.

Erlent
Fréttamynd

Flutti ræðu um siglingaleiðir

Samgöngumál Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hélt í gær ræðu á setningarathöfn fjölþjóðlegrar ráðstefnu um nýjar siglingaleiðir í norðri, sem fer fram í Alaska.

Innlent
Fréttamynd

Vilja sakhæfisaldur í 15 ár á ný

Stjórnarandstaðan í Danmörku krefst þess að sakhæfisaldur verði aftur hækkaður upp í 15 ár, en frá júlímánuði í fyrra hefur hann miðast við 14 ár. Samkvæmt úttekt dönsku tölfræðistofnunarinnar komu upp 200 mál frá júlí að áramótum þar sem 14 ára unglingar voru kallaðir fyrir dóm.

Erlent
Fréttamynd

Segir mótmæli skemmdarverk

Bashar Assad Sýrlandsforseti segist geta hugsað sér lýðræðislegar umbætur í landinu, sem jafnvel fælust í að Baath-flokkur hans afsalaði sér einveldi sínu í stjórnmálum. Hins vegar sakar hann skemmdarverkamenn um að notfæra sér ástandið og segist ekki til viðræðu við þá sem beri vopn og drepi fólk.

Erlent
Fréttamynd

Fannst látin í fangaklefanum

Tvítug kona fannst látin í fangaklefa lögreglunnar í Bergen í Noregi í gærmorgun. Hún hafði verið handtekin um miðnætti kvöldið áður eftir að hafa sést í annarlegu ástandi í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Chirac fyrir rétt í september

Jacques Chirac, fyrrverandi Frakklandsforseti, verður leiddur fyrir rétt í september. Forsetinn fyrrverandi er ákærður fyrir spillingu í embætti borgarstjóra Parísar á tíunda áratug síðustu aldar.

Erlent
Fréttamynd

80 prósent flóttamanna í þróunarríkjum

Áttatíu prósent allra flóttamanna í heiminum eru í þróunarríkjum. Þetta kemur fram í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem gefin var út í gær á alþjóðadegi flóttamanna. Gríðarlegur fjöldi flóttamanna er í mörgum fátækustu ríkjum heims. 1,9 milljónir eru í Pakistan, 1,1 milljón í Íran og ein milljón í Sýrlandi. Tölurnar eru fyrir árið 2010 og ná því ekki til flóttamanna frá Sýrlandi og öðrum löndum þar sem mótmæli hafa verið barin niður á þessu ári.

Erlent
Fréttamynd

Öskufall í Grímsey

Íbúar Grímseyjar á Norðurlandi hafa orðið varir við öskufall í bænum. Þar er jörðin hvít eftir kalt veður undanfarna daga en að sögn heimamanns, sem fréttastofa ræddi við, liggur grá slikja yfir snjónum sem er augljóslega afleiðingar öskufalls.

Innlent
Fréttamynd

Gosmökkurinn lækkar jafnt og þétt

Gosmökkurinn úr Grímsvötnum hefur lækkað jafnt og þétt í nótt og nær nú innan við tíu kílómetra hæð, en fór í hátt í tuttugu kílómetra hæð í fyrrinótt.

Innlent
Fréttamynd

Milljónir í skaðabætur

Breska leikkonan Sienna Miller fær að öllum líkindum greiddar tæpar nítján milljónir króna í skaðabætur eftir að götublaðið News Of The World játaði að hafa brotist inn í farsímann hennar.

Lífið
Fréttamynd

Pössuð eins og aðrar ömmur

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki vita til þess að öryggi Söruh, ömmu Baracks Obama Bandaríkjaforseta, hafi verið sérstaklega ógnað hér á landi, spurður hvort íslensk yfirvöld muni tryggja öryggi hennar í væntanlegri heimsókn á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Díoxínrannsókn svæfð af ráðuneytinu

Hollustuvernd ríkisins fór fram á það við umhverfisráðuneytið árið 1997 að allsherjarúttekt yrði gerð á losun díoxíns frá íslenskum fyrirtækjum og hugsanlegri mengun. Ráðuneytið varð ekki við þeirri beiðni heldur hóf vinnu við að fá undanþágu frá tilskipun ESB um takmarkanir á mengun frá helsta mengunarvaldinum – sorpbrennslum.

Innlent
Fréttamynd

Forsprakki vélhjólagengis í einangrun

Forsprakki vélhjólagengisins Black Pistons, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, situr nú í gæsluvarðhaldi og einangrun, ásamt öðrum meðlimi gengisins, Davíð Frey Rúnarssyni, eftir að þeir réðust á mann og héldu honum nauðugum í meira en hálfan sólarhring, að því er talið er. Þá hafa tveir meðlimir Black Pistons verið kærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á rannsókn málsins.

Innlent
Fréttamynd

Allt að helmingur af umframkvóta í potta

Allt að helmingur aflaheimilda þorsks á hverju fiskveiðiári, umfram 160.000 tonn, gæti runnið í svokallað pottakerfi sem ráðherra ráðstafar árlega ef nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða verður afgreitt óbreytt.

Innlent
Fréttamynd

Við munum ekki líða neina vitleysu

„Við munum ekki líða neina vitleysu,“ segir Páll E. Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar, spurður um viðbrögð fangelsismálayfirvalda við því að vista nú tvo menn úr íslenska vélhjólagenginu Black Pistons í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.

Innlent
Fréttamynd

Launakjör ekki verið verri frá 2002

Íslenska gámafélagið og Vinnuföt eru fyrirtæki ársins, samkvæmt niðurstöðum könnunar VR. Þetta er annað árið í röð sem Íslenska gámafélagið ber af í hópi stærri fyrirtækja. Bæði fyrirtækin fengu hæstu einkunn í flokknum Ánægja og stolt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Afnema skilarétt verslana á kjötvöru

Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga (KS) hyggst afnema skilarétt verslana á kjötvöru frá fyrirtækinu. Er þetta gert til að bregðast við banni á forverðmerkingum á kjötvöru.

Innlent
Fréttamynd

Ætlaði að slíta sambandinu

Lögregla telur sig hafa fundið staðinn þar sem ungur maður banaði barnsmóður sinni á fimmtudag. Vettvangurinn er í Heiðmörk og var rannsakaður af lögreglu í gær. Fullnaðarniðurstaða liggur ekki fyrir úr rannsókn á banameini konunnar, sem var fædd árið 1990, en vísbendingar eru um að hún hafi verið kyrkt, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Innlent
Fréttamynd

Umsvif aukast nokkuð hjá Íbúðalánasjóði

Starfsmönnum hefur fjölgað töluvert hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) á síðustu mánuðum til að bregðast við auknum umsvifum sjóðsins. Búist er við um níu þúsund umsóknum til hans um hina svokölluðu 110 prósenta leið auk þess sem fjöldi eigna í eigu hans hefur aukist mikið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ráðherra vill gjörgæslu á skipaumferð

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi á dögunum tillögur að auknu samstarfi stofnana og ráðuneyta vegna vaxandi siglinga á Norðurslóðum. Þörf er talin á auknu eftirliti með skipaumferð og viðbúnaði við hugsanlegri mengun vegna aukinna umsvifa og siglinga.

Innlent
Fréttamynd

DiCaprio á lausu

Leonardo DiCaprio er hættur með kærustu sinni, ísraelsku fyrirsætunni Bar Rafaeli. Þetta kemur fram í New York Post. Þau hafa verið saman í fimm ár og ákváðu í síðustu viku að þetta væri orðið gott.

Lífið
Fréttamynd

Leikur knattspyrnu með stjörnunum í Cannes

Leikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson tekur þátt í góðgerðaleik í fótbolta á Cannes-hátíðinni í Frakklandi á morgun. Á meðal þátttakenda verða Zinedine Zidane, Eric Cantona og Jude Law. „Maður má ekkert taka á því í kvöld því maður verður að vera „fitt" fyrir laugardaginn," segir Friðrik Þór, sem átti afmæli þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær. Hann lætur því eingöngu vatn inn fyrir sínar varir fram að leik og ætlar að sleppa kokteilunum og kampavínsglösunum sem freista gesta Cannes hvað eftir annað.

Lífið