Fleiri
Raikkönen á undan Hamilton í Ástralíu 14.3.2008 01:50 Barichello nálgast met Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello hjá Honda í Formúlu 1 ekur í sinni 250. keppni á ferlinum í Ástralíu á sunnudaginn. Hann vantar aðeins sjö keppnir í viðbót til að verða reyndasti ökuþór í sögu Formúlu 1. 13.3.2008 14:43 Hamilton: Það var heiður að vinna með Alonso Svo virðist sem Lewis Hamilton hjá McLaren sé búinn að rétta fyrrum félaga sínum Fernando Alonso hjá Renault sáttarhönd eftir harðar deilur þeirra á síðasta tímabili. 13.3.2008 10:59 Ecclestone í deilum við Ástrali Formúlueinvaldurinn Bernie Ecclestone stendur nú í deilum við mótshaldara í Ástralíukappakstrinum vegna tímasetningar keppninar. Vegna tímamismunar fer keppnin fram um nótt að evrópskum tíma og það þykir Ecclestone skemma fyrir í sjónvarpsmálunum í álfunni. 12.3.2008 15:18 Einvígi Hamilton og Alonso verður harðara í ár Ástralinn Mark Webber sem ekur hjá Red Bull í Formúlu 1, segir að einvígi þeirra Lewis Hamilton hjá McLaren og Fernando Alonso hjá Renault verði harðara en nokkru sinni fyrr á komandi tímabili nú þegar þeir eru ekki lengur í sama liði. 12.3.2008 13:21 Ron Dennis verður áfram hjá McLaren Ron Dennis, yfirmaður McLaren liðsins í Formúlu 1, ætlar að vera áfram í herbúðum liðsins á komandi tímabili. Dennis hefur verið nokkuð umdeildur í kjölfar njósnamálsins ljóta, en hefur tilkynnt starfsfólki liðsins að hann verði áfram. 11.3.2008 14:29 Raikkönen er ekki saddur Heimsmeistarinn Kimi Raikkönen segist hvergi nærri saddur og stefnir harður á að verja titil sinn á komandi tímabili í Formúlu 1 sem hefst í Ástralíu á sunnudaginn. 10.3.2008 13:42 Hamilton ætlar sér sigur í Ástralíu Það er aðeins vika í fyrsta Formúlu 1 mót ársins. Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren stefnir á sigur á götum Melbourne í Ástralíu. Hamilton, Felipe Massa, Kimi Raikkönen og Heikki Kovalainen eru líklegastir til að standa fremstir í fyrsta móti, ef marka má æfingar síðustu vikur. 9.3.2008 11:56 Aguri liðið mætir þrátt fyrir peningaleysi Japanska keppnisliðið er mætt til Ástralíu, þrátt fyrir þær fréttir að eigandi liðsins hafi leitað logandi ljósi að fjármagni til að greiða rekstrarkostnað. Auguri Suzuki var alla síðustu viku í leit að fjármagni, eftir að hafa lent í fjárhagsörðugleikum. 9.3.2008 11:52 Umfangsmikil umfjöllun um Formúlu 1 Fyrsta útsending Sýnar frá Formúlu 1 verður á mánudagskvöld. Þá verður sýnt frá frumsýningum Formúlu 1 keppnisliða og rætt við toppökumenn liðanna og tæknistjóra. Síðan verða átta útsendingar í viðbót í vikunni frá Formúlu 1. 8.3.2008 07:49 Hamilton og Kovalainen hjá McLaren bíða spenntir Bretinn Lewis Hamilton vakti óskipta athygli á síðasta ári, sem nýliði í Formúlu 1 og tapaði af titilinum á lokasprettinum. Hann stefnir á titilinn í ár og félagi hans Heikki Kovalainen ætlar sér í toppslaginn frá fyrsta móti um næstu helgi. 7.3.2008 19:28 Formúlu 3 vertíðin hefst hjá Kristjáni Einari Hinn nítján ára Kristján Einar Kristjánsson var við æfingar á Silverstone brautinni í gær, en hann keppir í Formúlu 3 í Bretlandi á þessu ári. Kristján ekur bíl frá Carlin Motorsport og nýtur stuðnings frá Salt Investments, sem er fyrirtæki í eigu Róbert Wessman. 7.3.2008 07:35 Níu Formúlu 1 útsendingar á Sýn í næstu viku Sjónvarpsstöðin Sýn hefur Formúlu 1 tímabilið með miklum glæsibrag og verða níu útsendingar í næstu viku. Fyrsta útsending er mánudaginn 10. mars og þá verður sýnt frá frumsýningum keppnisliða og rætt við ökumenn. Tveimur dögum síðar verður sýnt frá ferð Sýnar á lokaæfingar keppnisliða á Barcelona brautina í síðustu viku. 5.3.2008 09:09 Baugur styrkir Williams enn frekar Baugur hefur ákveðið að styrkja Formúlu 1 lið Williams enn frekar en síðustu ár og tilkynnti Frank Williams um nýjan samning í dag. 3.3.2008 18:15 Sjá næstu 50 fréttir
Mosley tók þátt í nasistaorgíu með fimm vændiskonum Helgarblaðið News of the World hefur undir höndum myndband sem sagt er að sýni Max Mosley, forseta Alþjóða akstursíþróttasambandsins, í kynlífsleikjum með fimm vændiskonum í Lundúnum. 30.3.2008 14:28
Sérefni um Kimi Raikkönen hjá Stöð 2 Sport Sérstakur umræðuþáttur um Kimi Raikkönen og næsta Formúlu 1 mót er í undirbúningi um helgina hjá Stöð 2 Sport, en stöðinni áskotnaðist efni um kappan frá hans yngri árum. Efnið hefur aldrei verið sýnt hérlendis og á fimmtudaginn verða sérstakir aðdáendur Raikkönen hérlendis kallaðir til í þættinum Rásmarkið. 30.3.2008 00:20
Schumacher deilir út sektarfé McLaren Michael Schumacher er í nefnd sem ákveður hvað verður gert við þá peninga sem McLaren þurfti að borga í sekt vegna njósnamálsins í fyrra. 27.3.2008 09:36
Toyota nærri toppliðunum í Formúlu 1 Jarno Trulli telur að Toyota sé komið í þá stöðu að vera rétt á eftir toppliðunum í Formúlu 1. Hann varð í fjórða sætií Malasíu um helgina. Næsta mót er í Barein um aðra helgi og þar æfði Toyota í vetur ásamt Ferrari, sem gæti komið liðsmönnum til góða 27.3.2008 09:19
Eddie Jordan lagði stein í götu Force India Írinn Eddie Jordan lét leggja steina í innkeyrsluna hjá Force India liðinu á Silverstone í Bretlandi. Hann segir liðið ekki hafa að fullu greitt skuldir sínar við sig. Hann seldi lið sitt til Midland, sem aftur seldi Force India. En allt hefur ekki verið gert upp. 26.3.2008 23:37
McLaren færði Kovalainen sjálfstraust Ron Dennis, yfirmaður McLaren liðsins, segir að Heikki Kovalainen hafi verið brotinn niður hjá Renault en McLaren hafi byggt hann upp á ný og fært honum sjálfstraust. 26.3.2008 17:14
Hættir Alonso hjá Renault? Fernando Alonso segir að sér sé frjálst að hætta hjá liði Renault eftir yfirstandandi keppnistímabil í Formúlu 1. 25.3.2008 15:46
Kristján keppti í fyrsta Formúlu 3 mótinu Kristján Einar Kristjánsson keppti í sinni fyrstu Formúlu 3 keppni á Bretlandseyjum í dag. Hann keppti í tveimur umferðum og varð í fimmt sæti í þeirri fyrri og sjötta sæti í þeirri seinni í sínum flokki. 24.3.2008 17:33
Raikkönen: Nokkuð auðvelt Kimi Raikkönen segir að kappaksturinn í Malasíu í morgun hafi verið sér nokkuð auðveldur eftir fyrsta viðgerðarhléið. 23.3.2008 12:46
Raikkonen vann í Malasíu Finninn og heimsmeistarinn Kimi Raikkönen fagnaði sigri í Formúlu 1-keppninni í Malasíu í morgun eftir að félagi hans, Felipe Massa, datt úr leik um miðja keppni. 23.3.2008 08:41
Dómarar refsa ökumönnum McLaren Dómarar Formúlu 1 mótsins í Malasíu ákváðu í hádeginu að refsta Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton fyrir að hafa truflað Nick Heidfeld á BMW og Fernando Alonso á Renault í lokahring þeirra í tímatökunni. 22.3.2008 11:55
Ökumenn McLaren kallaðir fyrir dómara Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton voru kallaðir fyrir dómara mótsins á Sepang brautinni í dag, eftir athugasemd frá Nick Heidfeld og Fernando Alonso. Þeir töldu að McLaren hefðu sýnt vítavert gáleysi þegar þeir hægðu á bílnum sínum eftir að hafa lokið sínum hraðasta hring. 22.3.2008 11:21
Massa fremstur á ráslínu í Malasíu Félagarnir Felipe Massa og Kimi Raikkönen verða frremstir á ráslínu í malasíska kappakstrinum á aðfaranótt sunnudags. Massa náði besta tíma í tímatökum í nótt og Raikkönen kom honum næstur. 22.3.2008 07:49
24,1 % áhorf á Formúlu 1 á Stöð 2 Sport Ljóst er að Formúlu 1 útsendingar á Stöð 2 Sport hafa fallið vel í kramið og íþróttin heldur sinni stöðu sem vinsælt sjónvarpsefni, þrátt fyrir að hafa skipt um umhverfi, horfið af RÚV yfir á Stöð 2 Sport. 21.3.2008 14:29
Verður Red Bull bíllinn bannaður? Alþjóðabílasambandið kannar hvort banna eigi þátttöku Red Bull Formúlu 1 liðsins í keppni í Malasíu eftir æfingar í nótt 21.3.2008 10:13
Lítill munur á Ferrari og McLaren Ökumenn Ferrari og McLaren kepptust hvað mest um að ná bestum tíma á Sepang brautinni í nótt. Tvær æfingar fóru fram. Felipe Massa á Ferrari var langfljótastur á fyrri æfingunni, en Lewis Hamilton á Ferrari á þeirri síðari. 21.3.2008 07:59
Massa fyrstur í Malasíu Brasilíumaðurinn Felipe Massa á Ferrari náði langbesta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Malasíu í nótt. Hann varð sekúndu fljótari en KImi Raikkönen á samskonar bíl. Bíll Raikkönen bilaði á æfingunni og David Coulthard á Red Bull fékk nokkuð harkalegan skell. 21.3.2008 03:37
Keppt í hitasvækju í Malasíu um páskana Formúlu 1 mót verður í Malasíu um helgina og búist er við 40 stiga hita og miklum raka. Þetta mun reyna mikið á þolgæði bíla og ökumanna sem kepptu í Ástralíu um síðustu helgi. 20.3.2008 19:19
Felisa tekur við starfi Todt hjá Ferrari Stjórn Ferrari samþykkti í dag að Jean Todt hyrfi frá starfi sínu sem forstjóri Ferrari. Í hans stað kemur Amadeo Felisa, en Todt hefur gengt starfi forstjóra Ferrari síðan 2006. 18.3.2008 18:30
Rakst á takka sem takmarkaði hraða Heikki Kovalainen lenti í því í kappakstrinum í Melbourne um helgina að hann rakst óvart á takka sem takmarkaði hraða hans á beina kaflanum. Hann hafði nýlega farið framúr Fernando Alonso þegar það gerðist. 17.3.2008 22:58
Lewis Hamilton: Minn besti sigur Bretinn Lewis Hamilton telur að sigurinn í Melbourne sé sá besti í upphafi. Hann leiddi mótið frá upphafi til enda. 16.3.2008 13:19
Hamilton vann í viðburðarríkri keppni Bretinn Lewis Hamtilon byrjaði titilsóknina eins og best verður á kosið í fyrsta Formúlu 1 móti ársins. Hann kom fyrstur í mark eftir viðburðaríka keppni þar sem aðeins 7 bílar af 22 komust á leiðarenda. Nick Heidfeld á BMW varð annar og Nico Rosberg þriðji á Williams Toyota. 16.3.2008 09:13
Hamilton ánægður með nýja útfærslu Formúlu 1 Bretinn Lewis Hamilton er ánægður gang mála hjá sér fyrir kappaksturinn í Ástralíu á morgun. Hann er fremstur á ráslinu og mjög sáttur við nýjar reglur um útbúnað bílanna. Hamilton keppir í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Ástralíu í nótt. 15.3.2008 17:08
Hamilton fremstur á ráslínu í Melbourne Bretinn Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma í fyrstu tímatöku ársins í Formúlu 1. Hún fór fram á götum Melborune í Ástralíu, en Finninn Kimi Raikkönen, heimsmeistarinn hjá Ferrari varð sextándi eftir að bíll hans bilaði í tímatökunni. Fernando Alonso á Renault er þrettándi á ráslínu. 15.3.2008 05:31
Tímamótasamningur undirritaður Í gær var undirritaður tímamótasamningur vegna kostunar á sýningum frá Formúlu 1 kappaksturinn á sjónvarpstöðinni Stöð 2 Sport. 14.3.2008 21:45
Hönnuður McLaren rekinn McLaren liðið í Formúlu 1 hefur rekið bílahönnuðinn sem var í hringiðu njósnamálsins á síðasta tímabili. Hann heitir Mike Coughlan og það var á heimili hans sem 780 blaðsíðna skýrsla um starfsemi Ferrari fannst á sínum tíma. 14.3.2008 10:19
Hamilton svaraði spretthörku Ferrari Bretinn Lewis Hamilton á McLaren reyndist fljótastur á seinni æfingu keppnisliða í Melbourne í nótt. Mark Webber var lengst af með besta tíma, en Hamilton stal þeim heiðri af honum í lokin. Margir ökumenn misstu bíla sína í útaf. 14.3.2008 05:18
Barichello nálgast met Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello hjá Honda í Formúlu 1 ekur í sinni 250. keppni á ferlinum í Ástralíu á sunnudaginn. Hann vantar aðeins sjö keppnir í viðbót til að verða reyndasti ökuþór í sögu Formúlu 1. 13.3.2008 14:43
Hamilton: Það var heiður að vinna með Alonso Svo virðist sem Lewis Hamilton hjá McLaren sé búinn að rétta fyrrum félaga sínum Fernando Alonso hjá Renault sáttarhönd eftir harðar deilur þeirra á síðasta tímabili. 13.3.2008 10:59
Ecclestone í deilum við Ástrali Formúlueinvaldurinn Bernie Ecclestone stendur nú í deilum við mótshaldara í Ástralíukappakstrinum vegna tímasetningar keppninar. Vegna tímamismunar fer keppnin fram um nótt að evrópskum tíma og það þykir Ecclestone skemma fyrir í sjónvarpsmálunum í álfunni. 12.3.2008 15:18
Einvígi Hamilton og Alonso verður harðara í ár Ástralinn Mark Webber sem ekur hjá Red Bull í Formúlu 1, segir að einvígi þeirra Lewis Hamilton hjá McLaren og Fernando Alonso hjá Renault verði harðara en nokkru sinni fyrr á komandi tímabili nú þegar þeir eru ekki lengur í sama liði. 12.3.2008 13:21
Ron Dennis verður áfram hjá McLaren Ron Dennis, yfirmaður McLaren liðsins í Formúlu 1, ætlar að vera áfram í herbúðum liðsins á komandi tímabili. Dennis hefur verið nokkuð umdeildur í kjölfar njósnamálsins ljóta, en hefur tilkynnt starfsfólki liðsins að hann verði áfram. 11.3.2008 14:29
Raikkönen er ekki saddur Heimsmeistarinn Kimi Raikkönen segist hvergi nærri saddur og stefnir harður á að verja titil sinn á komandi tímabili í Formúlu 1 sem hefst í Ástralíu á sunnudaginn. 10.3.2008 13:42
Hamilton ætlar sér sigur í Ástralíu Það er aðeins vika í fyrsta Formúlu 1 mót ársins. Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren stefnir á sigur á götum Melbourne í Ástralíu. Hamilton, Felipe Massa, Kimi Raikkönen og Heikki Kovalainen eru líklegastir til að standa fremstir í fyrsta móti, ef marka má æfingar síðustu vikur. 9.3.2008 11:56
Aguri liðið mætir þrátt fyrir peningaleysi Japanska keppnisliðið er mætt til Ástralíu, þrátt fyrir þær fréttir að eigandi liðsins hafi leitað logandi ljósi að fjármagni til að greiða rekstrarkostnað. Auguri Suzuki var alla síðustu viku í leit að fjármagni, eftir að hafa lent í fjárhagsörðugleikum. 9.3.2008 11:52
Umfangsmikil umfjöllun um Formúlu 1 Fyrsta útsending Sýnar frá Formúlu 1 verður á mánudagskvöld. Þá verður sýnt frá frumsýningum Formúlu 1 keppnisliða og rætt við toppökumenn liðanna og tæknistjóra. Síðan verða átta útsendingar í viðbót í vikunni frá Formúlu 1. 8.3.2008 07:49
Hamilton og Kovalainen hjá McLaren bíða spenntir Bretinn Lewis Hamilton vakti óskipta athygli á síðasta ári, sem nýliði í Formúlu 1 og tapaði af titilinum á lokasprettinum. Hann stefnir á titilinn í ár og félagi hans Heikki Kovalainen ætlar sér í toppslaginn frá fyrsta móti um næstu helgi. 7.3.2008 19:28
Formúlu 3 vertíðin hefst hjá Kristjáni Einari Hinn nítján ára Kristján Einar Kristjánsson var við æfingar á Silverstone brautinni í gær, en hann keppir í Formúlu 3 í Bretlandi á þessu ári. Kristján ekur bíl frá Carlin Motorsport og nýtur stuðnings frá Salt Investments, sem er fyrirtæki í eigu Róbert Wessman. 7.3.2008 07:35
Níu Formúlu 1 útsendingar á Sýn í næstu viku Sjónvarpsstöðin Sýn hefur Formúlu 1 tímabilið með miklum glæsibrag og verða níu útsendingar í næstu viku. Fyrsta útsending er mánudaginn 10. mars og þá verður sýnt frá frumsýningum keppnisliða og rætt við ökumenn. Tveimur dögum síðar verður sýnt frá ferð Sýnar á lokaæfingar keppnisliða á Barcelona brautina í síðustu viku. 5.3.2008 09:09
Baugur styrkir Williams enn frekar Baugur hefur ákveðið að styrkja Formúlu 1 lið Williams enn frekar en síðustu ár og tilkynnti Frank Williams um nýjan samning í dag. 3.3.2008 18:15
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn