Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslendingar þéna vel á samgöngum Þjónustujöfnuður á öðrum ársfjórðungi var jákvæður um 13,6 milljarða króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur á þjónustu nam 79,6 milljörðum króna en innflutningur á þjónustu 66,0 milljörðum króna. 26.8.2010 09:25
Um 4,5% verðbólga Tólf mánaða verðbólga er 4,5% samkvæmt tölum Hagstofunnar sem birtar voru í morgun. Neysluverðsvísitala án húsnæðis er um 5,8%. Neysluverðsvísitalan er 363 stig og hækkaði um 0,25% frá fyrri mánuði. Neysluverðsvísitala án húsnæðis er hins vegar 344,9 stig og hækkaði um 0,38% 26.8.2010 09:02
Vill síður selja orku til álvera Ross Beaty, hinn kanadíski eigandi Magma Energy, móðurfélags HS Orku, gefur í skyn í bréfi sem hann skrifaði Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra nýlega, að hann hafi lítinn áhuga á að HS Orka selji orku til álvers Norðuráls í Helguvík. Hann kjósi frekar að sú „græna orka" sem HS Orka framleiðir úr jarðvarma á Reykjanesi og Svartsengi verði seld öðrum kaupendum en álveri. 26.8.2010 06:45
Þrír skulda um átta hundruð milljónir Ákveðið var á fundi skiptastjóra þrotabús BGE eignarhaldsfélags í gær að innheimta lán sem félagið veitti fyrrum starfsmönnum Baugs. Skuldin nemur um einum milljarði króna. 26.8.2010 05:45
Neytendastofa sektar Vodafone og Tal Neytendastofa sektaði fyrirtækin Tal og Vodafone á mánudag fyrir brot á samkeppnislögum, um tvær og hálfa milljón hvort. Síminn kvartaði til Neytendastofu vegna auglýsinga sem birtar voru í útvarpi og á netinu. 26.8.2010 03:00
Með níu þúsund á tímann allan sólarhringinn Meðlimir skilanefndar og slitastjórnar Landsbankans eru í svipaðri stöðu og starfsbræður þeirra hjá Glitni því þeir tóku rúmlega sex milljónir króna á mánuði að meðaltali fyrir störf sín fyrir fyrstu sex mánuði þessa árs. Þá réð skilanefndin sem framkvæmdastjóra mann sem Fjármálaeftirlitið hafði áður vikið úr skilanefndinni. 25.8.2010 18:30
Neytendastofa kannaði verðmerkingar á söfnum Aðeins eitt safn af 21 á höfuðborgarsvæðinu var ekki með verðmerkingar í lagi þegar Neytendastofa kannaði málið á dögunum. Það safn sem ekki var með upplýsingar um aðgangseyri til sýnis á safninu var Hönnunarsafn Íslands við Garðatorg. Í öllum tilfellum reyndust verðmerkingar á minjagripum og öðrum sambærilegum vörum í lagi. 25.8.2010 15:45
Landsbankinn segir ógerlegt að selja Vestia í opnu söluferli Landsbankinn lítur svo á að verklagsreglur Vestia um sölu eigna sem bankinn hefur tekið yfir gildi aðeins um einstakar eignir en ekki fyrirtækið í heild sinni. Bankinn hafnar því að hafa brotið verklagsreglur. Þá segja stjórnendur ómögulegt að setja Vestia í heild sinni í opið söluferli. 25.8.2010 18:45
Viðsnúningur í rekstri Skipta Tap Skipta á fyrri hluta árs nam 6 milljónum króna.Tap á sama tímabili í fyrra var 2.088 milljónir króna. Sala nam 19,6 milljörðum króna samanborið við 19,8 milljarða á sama tímabili árið áður sem er 0,6% samdráttur. Innri tekjuvöxtur var 1,3% á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 3,7 milljörðum króna samanborið við 4,2 milljarða fyrir sama tímabil 2009. EBITDA hlutfall var 18,9%, að því er fram kemur í tilkynningu frá Skiptum. 25.8.2010 16:56
Gamma hækkaði um 0,5% Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,5% í dag í 17,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,5% í 8,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,4% í 8,5 ma. viðskiptum. 25.8.2010 16:39
Hagnaður TM dróst saman um 35% Hagnaður TM af reglulegri starfsemi á fyrri helmingi ársins var 319 milljónir króna, samanborið við 491 milljón krona hagnað á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá TM. Eigið fé fyrirtækisins nam 8357 milljónum króna og var eiginfjárhlutfall 26% þann 30 júní síðastliðinn 25.8.2010 13:11
Haraldur Flosi vill loka á arðgreiðslur Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, vill endurskoða stefnu um arðgreiðslur Orkuveitunnar til eiganda síns, Reykjavíkurborgar. Hann segir hækkun gjaldskrár ekki vera til að geta greitt arð heldur svo Orkuveitan geti mætt skuldbindingum sínum. 25.8.2010 12:00
Lækkuðu eldsneytisverðið í morgun Atlantsolía og Orkan lækkuðu í morgun eldsneytisverð á stöðvum sínum. Bensínlítrinn lækkaði um tvær krónur og dísellítrinn um eina krónu. Ástæðu verðlækkunarinnar má rekja til lækkandi heimsmarkaðsverðs. 25.8.2010 08:45
Bankastjóri tjáir sig ekki um uppsagnir Stjórnendur Landsbankans eru að ljúka við stefnumótun og verða niðurstöður hennar kynntar í lok mánaðar. Endanleg útfærsla verður kynnt í október. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, vill ekki fara ítarlega út í vinnuna, sem staðið hefur yfir frá því hann tók við starfinu í byrjun júní. 25.8.2010 06:15
Eyrir samdi við lánardrottna Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest hagnaðist um 3,2 milljónir evra, jafnvirði um 490 milljóna króna, á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 11,5 milljónir evra á sama tíma í fyrra. Neikvæður gengismunur og beiting hlutdeildaraðferðar á eignir félagsins hafa áhrif á samanburðinn. 25.8.2010 03:00
Ekki fjallað um virkjanaleyfi vegna ónægra upplýsinga Orkustofnun fjallar ekki um virkjanaleyfi fyrir HS orku fyrr en fyrirtækið hefur fært henni frekari gögn um nýtingarþol jarðhitasvæðisins úti á Reykjanesi. Málið hefur verið í höndum HS orku síðan í mars. 24.8.2010 18:31
Lántökur ríkissjóðs meira en 78 prósent af landsframleiðslu Sextán af hverjum hundrað krónum sem ríkissjóður greiddi í gjöld á fyrri hluta ársins fóru í vexti af lánum. Áfram bætist við skuldir ríkissjóðs, en fjármálaráðherra telur að skuldastaðan batni strax á næsta ári. 24.8.2010 18:40
Seðlabankinn má eiga Sjóvá Fjármálaeftirlitið veitti Eignasafni Seðlabanka Íslands nýverið heimild til þess að fara með virkan eignarhlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. 24.8.2010 23:02
Vilja ræða kaupin á Vestiu Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd Alþingis hafa óskað eftir að nefndin fundi um kaup Framtakssjóðs Íslands á eignarhaldsfélaginu Vestia. 24.8.2010 16:28
Um 12 milljarða viðskipti á skuldabréfamarkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,3% í dag í 12,2 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,4% í 6,2 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 6 ma. viðskiptum. 24.8.2010 16:21
Ólafur Páll er hæfur til að sitja í Magma nefnd Ólafur Páll Jónsson er hæfur til að sitja í nefnd um kaup Magma Energy Sweden AB á eignarhluta HS Orku ehf. og starfsumhverfi orkugeirans, samkvæmt niðurstöðu forsætisráðuneytisins. 24.8.2010 15:38
Fréttin af hönnunarstuldi Beyonce eins og eldur í sinu Frétt Fréttablaðsins um að söngkonan Beyonce hafi stolið íslenskri fatahönnun þegar að hún setti á markað nýjar leggingsbuxur fer eins og eldur í sinu um netheimana þessa dagana. Fréttablaðið benti á það fyrir fáeinum dögum að buxur í nýrri haustlínu tískumerkisins Dereon, sem er í eigu söngkonunnar Beyoncé, þykja afskaplega líkar buxum frá E-label, sem söngkonan keypti í haust. 24.8.2010 11:42
Lögmenn ráða hvaða gögn þeir vilja sjá Formaður slitastjórnar Glitnis hafnar alfarið ásökunum um að slitastjórnin sé að reyna að afla samkeppnisupplýsinga um starfsemi Iceland Express í Bandaríkjunum með kröfugerð í dómsmáli sem slitastjórnin rekur nú í New York í Bandaríkjunum. 24.8.2010 06:15
Árni Páll vill lengja rétt til atvinnuleysisbóta Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, vill að tíminn sem fólk á rétt til atvinnuleysisbóta verði lengdur tímabundið úr þremur árum í fimm. Þetta kom fram á samráðsfundi hans með aðilum vinnumarkaðarins sem haldinn var 16. júní síðastliðinn. 23.8.2010 17:09
Gamma hækkaði um 0,2% Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 4,3 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,3% í 2,8 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 1,5 ma. viðskiptum. 23.8.2010 16:54
Endurheimtur á eignasafni Landsbankans aukast Verulegur árangur náðist í auknum endurheimtum á eignasafni Landsbankans á öðrum ársfjórðungi. Aukningin var um 64 milljarðar króna í erlendum myntum, eða sem nemur um 6%. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbanka Íslands vegna kröfuhafafundar sem fram fer í dag. 23.8.2010 11:05
Tal sektað um tvær og hálfa milljón Neytendastofa hefur sektað farsímafyrirtækið Tal um 2,5 milljónir króna fyrir auglýsingar fyrirtækisins þar sem með almennum hætti er fullyrt að Tal bjóði ódýrari þjónustu en keppinautar. Síminn kvartaði yfir auglýsingunum til Neytendastofu í byrjun nóvember á síðasta ári. 23.8.2010 10:30
Kaupmáttur hækkaði um 1% Kaupmáttur launa hækkaði um 1,0% í júlí miðað við fyrri mánuð. Síðustu tólf mánuði hefur kaupmáttur launa hækkað um 1,1%, samkvæmt tölum Hagstofunnar. 23.8.2010 09:03
Skaðabótamál gegn fyrrverandi stjórnendum Landsbankans í bígerð Tvö skaðabótamál slitastjórnar Landsbankans gegn fyrrverandi stjórnendum bankans eru á leið til dómstóla. Skaðabótakröfurnar í málunum skipta tugum milljarða, en ítrasta krafan í stærra málinu nemur um 20 milljörðum króna. 22.8.2010 18:30
Tilboð Magma dugar ekki VG Tilboð Magma Energy um að ríkið eignist forkaupsrétt í hlut félagsins í HS Orku dugar ekki að mati Atla Gíslasonar fulltrúa Vinstri grænna í iðnaðarnefnd. Hann vill að orkuauðlindir landsins séu ótvírætt í eigu opinberra aðila. 21.8.2010 18:32
Magma ætlar að reisa fyrstu jarðvarmavirkjunina í Chile Magma energy gæti orðið fyrsta orkufyrirtækið í Chile til þess að reisa jarðvarmavirkjun þar í landi samkvæmt fréttavef Bloombergs. Magma hyggur á nýtingu jarðvarma í Mariposa árið 2014 að sögn John Selters, sem er forstjóri fyrirtækisins í Suður-Ameríku. 21.8.2010 09:41
Lýgur til að hreinsa sjálfan sig Róbert Wessmann, fyrrverandi forstjóri Actavis, svarar Björgólfi Thor Björgólfssyni fullum hálsi í yfirlýsingu til fjölmiðla en Björgólfur fullyrðir á heimasíðu sinni, btb.is, að Róbert hafi verið vikið úr starfi árið 2008. Róbert segist hafa hætt störfum hjá Actavis til að snúa sér að eigin fjárfestingum. Aðra ástæðu fráhvarfs hans frá fyrirtækinu segir Róbert vera að hann hafi ekki haft áhuga á því að starfa frekar með Björgólfi. 21.8.2010 06:30
Starfsemi lífeyrissjóðanna rannsökuð Rannsóknarnefnd skipuð af ríkissáttasemjara mun framkvæma úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins haustið 2008. Gert er ráð fyrir því að nefndin ljúki störfum með útgáfu skýrslu til stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða fyrir árslok 2010. 20.8.2010 19:48
Vestia áhugaverður fjárfestingarkostur Framtakssjóður Íslands, fjárfestingarfélag lífeyrissjóðanna, hefur keypt eignaumsýslufélagið Vestia af Landsbankanum á tæplega tuttugu milljarða króna. Inni í Vestia eru nokkur af þekktustu fyrirtækjum landsins. 20.8.2010 18:59
Ölvisholt gjaldþrota og eigendur vilja kaupa reksturinn Íslenska brugghúsið Ölvisholt sem framleiðir m.a Skjálfta, Freyju og Lava bjórana hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Skiptastjóri þrotabúsins segir þó að reynt verði að tryggja rekstur brugghússins áfram. 20.8.2010 17:22
Róbert Wessman birtir starfslokasamning sinn Róbert Wessman þvertekur fyrir það að hafa verið rekinn úr starfi sem forstjóri lyfjafyrirtækisins Actavis árið 2008. Björgólfur Thor Björgólfsson hefur haldið því fram að Róberti hafi verið vikið úr starfi forstjóra eins og fram kemur á nýrri heimasíðu hans. Róbert hafnar því hins vegar alfarið og hefur máli sínu til stuðnings ákveðið að birta afrit af starfslokasamningi sínum við Actavis 20.8.2010 16:28
GAMMA lækkaði litillega Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,2% í dag í 16,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,3% í 5,1 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 11,6 ma. viðskiptum. 20.8.2010 16:19
Samið um kaup á Vestia Framtakssjóður Íslands hefur keypt eignarhaldsfélagið Vestia af Landsbankanum. Um sex þúsund manns starfa hjá þeim sjö félögum sem fylgja Vestia til Framtakssjóðs Íslands. 20.8.2010 12:29
Segir áróðursmeistara Björgólfs „þræða nýjar víddir“ Bæði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Róbert Wessman, fyrrverandi forstjóri Actavis, hafna staðhæfingum Björgólfs Thors sem hann setur fram á vefsíðu sinni BTB.is. Róbert segir að Björólfur sé að þræða nýjar víddir til að hreinsa skaðað orðspor sitt á vefsíðunni og leiti að blórabögglum fyrir því sem hefur misheppnast í hans fjárfestingum. 20.8.2010 11:04
Vísitala byggingarkostnaðar fer hækkandi Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan ágúst 2010 er 102,5 stig. Þetta kemur fram frétt á heimasíðu Hagstofunnar en um 0,5 prósentustiga hækkun er að ræða frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í september 2010. 20.8.2010 09:12
Róbert þvær af sér sakir Rekstur Actavis var góður og mikið var fjallað um starfsemi félagsins af fjölmiðlum og greiningaraðilumbæði hér heima og erlendis, segir Róbert 20.8.2010 08:58
Bankarnir „teknir yfir af glæpamönnum“ Davíð Oddsson seðlabankastjóri tjáði mönnum sumarið 2008 að íslensku bankarnir hefðu verið „teknir yfir af glæpamönnum", sem ætluðu sér að gera Ísland gjaldþrota. Þetta kemur fram á nýrri vefsíðu Björgólfs Thors sem opnaði í dag. 19.8.2010 18:30
GAMMA heldur áfram að hækka Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI heldur áfram að hækka og hækkaði um 0,5% í dag í 13,5 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,4% í 4,5 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,7% í 9 ma. viðskiptum. 19.8.2010 16:29
Mikill verðmunur á skólabókum Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á nýjum og notuðum skólabókum fyrir framhaldsskóla í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Farið var í sex verslanir og skoðað verð á 27 algengum nýjum bókum. Einnig voru skoðaðir tíu titlar á fjórum skiptibókamörkuðum. Mikill munur reyndist á verði nýrra og notaðra námsbóka og var munurinn oftast um eða yfir 100%. 19.8.2010 16:28
Telja fasteignamarkaðinn vera að glæðast Uppfærð spá Seðlabankans um bata og horfur í efnahagslífinu er að ýmsu leyti bjartari en spá bankans í maí. Innlend eftirspurn dróst minna saman en gert var ráð fyrir, fasteignamarkaðurinn er að glæðast og atvinnuleysi að hjaðna. 19.8.2010 12:32