

Tökur eiga að hefjast í sumar á fjölskyldumynd sem ber vinnuheitið Sumarbörn. Myndin er komin langt í undirbúningi og hefur þegar fengið framleiðslustyrk frá Kvikmyndasjóði Íslands upp á níutíu milljónir króna. Frumsýning verður líklega á næsta ári. Handritið er byggt á atvikum sem áttu sér stað á barnaheimilinu Silungapolli sem Reykjavík starfrækti hér árum áður. "Þessi mynd er búin að vera rosalega lengi í gangi. Það eru tíu ár síðan fyrsti handritastyrkurinn kom í þetta verkefni,“ segir leikstjórinn Guðrún Ragnarsdóttir.
Þriðja þáttaröðin af Game of Thrones vann áhorfendaverðlaunin á sjónvarpsverðlaunahátíðinni sem haldin var í London í gærkvöld. Þetta voru einu verðlaunin sem áhorfendur gátu kosið um. Game of Thrones hafa verið sýndir víða um heim við miklar vinsældir, meðal annars hér á Íslandi. Þættir úr annarri og þriðju þáttaröðinni voru að stórum hluta til teknir upp á Íslandi.
HBO sjónvarpsstöðin hefur ákveðið að ráðast í gerð fjórðu þáttaraðarinnar um Game of Thrones. Fyrsti þátturinn í þriðju þáttaröðinni var sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn og horfðu 4,4 milljónir manna á hann.
Ryan Gosling er sagður líklegastur til að hreppa hlutverk fatlaða íþróttamannsins Oscars Pistorius í nýrri kvikmynd um ævi hans sem er í undirbúningi.
Evrópufrumsýning þriðju seríunnar á Stöð 2.
Það vakti verulega athygli þegar Vísir sagði frá beinskeyttum árásum Lala á Pó á Vísi í gær. Þar birtust myndbrot úr þætti sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 krakkar í gærmorgun. Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, varð vör við textann þegar hún kveikti á sjónvarpinu um morguninn.
Hann var eitthvað harðskeyttari einn af Stubbunum þegar þeir Lala og Pó birtust á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 krakkar.
Vísir frumsýnir hér fyrsta sýnishornið úr þriðju þáttaröð Steindans okkar. Eins og sést bregður Steindi sér í allra kvikinda líki og keyrir grínið áfram af fullum krafti. "Stöð 2 kynnir með stolti stórfenglegt niðurlag besta grínþríleiks allra tíma,“ segir í sýnishorninu en Steindinn okkar 3 snýr aftur á Stöð 2 í ágúst.
Vísir frumsýnir hér sýnishorn úr svörtu gamanmyndinni EINN, sem verður frumsýnd í byrjun mars. EINN fjallar um kvikmyndagerðarmanninn Helga sem er að gera sína fyrstu mynd í fullri lengd. Helgi byggir handrit myndarinnar á sínu eigin lífi og nákomnum persónum. Þegar framleiðendur koma við sögu vilja þeir sjá breytingar á handritinu. Hægt og rólega fara breytingarnar að hafa bein áhrif á líf Helga. Hann missir þá tök á veruleikanum og kemur sér og sínum í óborganlegar aðstæður.
Framleiðendur Hangover 2 losnuðu í vikunni við tvær málsóknir sem höfðu verið í gangi. Handritshöfundurinn Michael Alan Rubin höfðaði mál á hendur höfundum myndarinnar fyrir að hafa stolið söguþræði myndarinnar úr sjálfsævisögu sinni, Mickey and Kirin. Rubin hætti sjálfviljugur við málsóknina.
Sýningar á þáttunum Game of Thrones hefjast sunnudagskvöldið 21. ágúst á Stöð 2. Þetta eru magnaðir þættir sem hófu göngu sína vestanhafs í vor og slógu í gegn. Einhvers staðar er þeim lýst sem blöndu af Sopranos og Hringadróttinssögu. Kíkið á sýnishornið fyrir þættina hér fyrir ofan.
Danski leikstjórinn Lars Von Trier hefur verið rekinn af Cannes hátíðinni í Frakklandi eftir að hann lét þau ummæli falla í gær að hann hefði ákveðinn skilning á nasisma og að auki hefði hann samúð með Adolf Hitler.
Félagarnir Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson voru með metnaðarfullan þátt af Audda & Sveppa á Stöð 2 í kvöld þar sem þemað var kvikmyndir. Hápunktar þáttarins voru án efa frumsýning tveggja sýnishorna úr ímynduðum kvikmyndum. Sveppi gerði sýnishorn úr margslungnum sálfræðitrylli, Chroma Key, og Auddi bauð upp á harðsoðinn spennutrylli, Leynilögga.
„Hann er pottþéttur og hefur alveg gríðarlega sterka nærveru,“ segir Óskar Jónasson, leikstjóri sjónvarpsþáttaraðarinnar Pressu 2.
Börkur Sigþórsson gerir áhugaverða stuttmynd eftir handriti Stuart Beattie. Í aðalhlutverki er Björn Thors sem leikstjórinn segir að sé besti leikari sinnar kynslóðar.
"Ég nefndi þetta einhvern tímann við Júlíus [Kemp] að við þyrftum ekki að leita langt yfir skammt til að finna glæp, við erum nefnilega báðir úr Laugarnesinu,“ segir Lars Emil Árnason handritshöfundur.
„Þetta er fyrsta stuttmyndin sem mér fannst nógu góð til að ég þyrði að senda hana frá mér,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Logi Hilmarsson. Stuttmynd hans, Þyngdarafl, keppir í flokki stuttmynda á kvikmyndahátíðinni Nordisk Panorama sem fram fer í Bergen í Noregi dagana 24. til 29. september.
Margir af fremstu leikstjórum heims hafa bundist miklum tryggðarböndum við einn ákveðinn leikara. Þekktasta parið er eflaust Robert De Niro og Martin Scorsese en slík sambönd eru alls ekki óalgeng.
„Já, við bjuggumst svo sem alveg við viðbrögðum úr þessari átt og það sem okkur finnst eiginlega merkilegast er að hann svarar aldrei spurningunni,“ segir Þorkell Harðarson, kvikmyndagerðarmaður og leikstjóri heimildarmyndarinnar Feathered Cocaine. M
Kvikmyndagerðarmaðurinn J.J. Abrams er snillingur í því að búa til dulúð í kringum sínar kvikmyndir. Skemmst er að minnast Cloverfield en stikla úr myndinni birtist, öllum að óvörum, á Netinu án þess að nokkur vissi að hún væri einu sinni til.
Íslandsvinurinn Cate Blanchett og Heba Þórisdóttir spjalla eflaust saman um Ísland í förðunarstólnum í myndinni Hannah.
Hinn íslenski/hollenski kvikmyndagerðarmaður, Kris Kristinsson, mun frumsýna tvær myndir í Norræna húsinu í kvöld kl. 19.30. Þetta eru myndirnar Ruta del Jaca (73 mín.) og fyrstu tveir kaflar myndarinnar Hjörtu vita (32 mín.) sem er enn í vinnslu.
Svo virðist sem bandarískir kvikmyndaáhugamenn hafi saknað Freddie Krugers því myndin slátrar allri samkeppni þessa dagana.
Patrick Dempsey, þekktastur fyrir leik sinn í Grey‘s Anatomy og rómantískum kvikmyndum, hyggst skipta aðeins um gír ef marka má orð hans í brasilískum blöðum.
Gamanmyndin Cop Out skartar Bruce Willis og Tracy Morgan en hinn mistæki Kevin Smith leikstýrir myndinni.
Kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale, er önnur tveggja mynda sem sýndar verða á ráðstefnu Berkeley-háskólans um ólöglega sölu og smygl á líffærum úr fólki. Hin myndin er margverðlaunuð heimildarmynd að nafni H.O.T, Human Organ Trafficking.
„Við erum að klára viðræðurnar og vonandi náum við að landa samingnum innan skamms,“ segir kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson sem vinnur að því að semja við stórleikarann Nicolas Cage fyrir væntanlega kvikmynd sem hann framleiðir. Myndin heitir Dark Highway og gerist á þjóðvegi frá sólarupprás til sólarlags.
Gagnrýnandi Los Angeles Times er hrifin af kvikmyndinni The Good Heart eftir Dag Kára. Myndin var frumsýnd í New York í síðust viku eins og Fréttablaðið greindi frá. LA Times segir að Degi Kára takist ágætlega upp með að blanda saman dramatík og húmor og gefur myndinni þrjár stjörnur af fimm mögulegum.
Robert Downey Jr. og Mickey Rourke eiga eitt sameiginlegt. Þeir reyndu báðir að rústa eigin feril á sínum tíma en tókst það aldrei til fulls. Þeir eru því aftur komnir á lista meðal skærustu stjarna kvikmyndaborgarinnar.
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur var fljótur að hugsa þegar eldgosið hófst á Fimmvörðuhálsi á dögunum.