Enski boltinn
Roger Johnson til Úlfanna Enska úrvalsdeildarfélagið Wolverhampton Wanderers hefur gengið frá kaupum á enska miðverðinum Roger Johnson frá Birmingham. Johnson skrifaði undir fjögurra ára samning við Úlfanna en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. Enski boltinn 13.7.2011 14:15
Boaz Myhill fékk á sig mark af 90 metra færi Það er ekki skrýtið að Roy Hodgson þjálfari WBA sé á höttunum eftir Rob Green markverði West Ham. Boaz Myhill markvörður WBA fékk á sig mark af 90 metra færi í æfingaleik gegn San Jose Earthquakes í gær. Það var kollegi hans á hinum, David Bingham, endanum sem skoraði. Enski boltinn 13.7.2011 11:30
Liverpool hreinsar til - Konchesky til Leicester Vinstri bakvörðurinn Paul Konchesky hefur skrifað undir þriggja ára samning við Leicester City sem leikur í Championship-deildinni á Englandi. Konchesky kemur frá Liverpool en hann átti erfitt uppdráttar hjá félaginu. Enski boltinn 13.7.2011 10:45
Stórkostlegt mark Benayoun fyrir Chelsea Chelsea vann 3-0 sigur gegn Wycombe Wanderers í æfingaleik á Cobham æfingasvæði Chelsea í gær. Leikurinn fór fram fyrir luktum dyrum en þó náðust myndir af stórkostlegu marki Ísraelans Yossi Benayoun. Enski boltinn 13.7.2011 10:15
Joey Barton neitað um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna Miðjumaður Newcastle United, Joey Barton, missir af æfingaferð liðsins til Bandaríkjanna í næstu viku. Barton sem á að baki fangelsisdóm fékk ekki vegabréfsáritun hjá Bandaríkjamönnum af þeim sökum. Enski boltinn 13.7.2011 09:24
Bjartsýnir á að halda Nasri og Fabregas Það ríkir bjartsýni í herbúðum Arsenal að félagið muni halda sínum sterkustu mönnum þó svo fjölmiðlar segi að þeir Samir Nasri og Cesc Fabregas séu á förum. Enski boltinn 12.7.2011 23:30
Meireles ekki á förum frá Liverpool Portúgalski miðjumaðurinn Raul Meireles segir að ekkert sé hæft í þeim orðrómum að hann sé á förum frá Liverpool. Hann segir það vera klárt að hann spili áfram með liðinu í vetur. Enski boltinn 12.7.2011 21:30
Redknapp: Tilboð Chelsea er lélegt Harry Redknapp, stjóri Spurs, er klettharður á því að miðjumaðurinn Luka Modric verði ekki seldur frá félaginu. Sama hvað Chelsea býður háa upphæð í leikmanninn. Enski boltinn 12.7.2011 20:00
Man. City hafnaði tilboði Corinthians Manchester City er búið að hafna 35 milljón punda tilboði Corinthians í argentínska framherjann Carlos Tevez. Þetta kemur fram á Sky í kvöld. Enski boltinn 12.7.2011 18:42
West Ham samþykkir að selja Cole Peter Coates, stjórnarformaður Stoke City, hefur staðfest að West Ham sé búið að samþykkja tilboð Stoke í framherjann Carlton Cole. Enski boltinn 12.7.2011 18:30
Sky segir Eið Smára vera á leið til West Ham Samkvæmt heimildum Sky Sports er Eiður Smári Guðjohnsen á leið til enska 1. deildarliðsins West Ham. Enski boltinn 12.7.2011 17:18
O'Shea verður fyrirliði Sunderland Írinn John O'Shea verður næsti fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland. Slúðurmiðillinn Dailymail greinir frá þessu á vefsíðu sinni í dag og segir Lee Cattermole allt annað en sáttan. Enski boltinn 12.7.2011 14:45
Corinthians með 35 milljóna punda boð í Tevez Brasilíska knattspyrnufélagið Corinthians hefur boðið 35 milljónir punda eða sem svarar 6.6 milljörðum íslenskra króna í Carlos Tevez leikmann Man City. Kia Joorabchian ráðgjafi Tevez segist þegar hafa rætt við brasilíska félagið. Enski boltinn 12.7.2011 13:00
Gervinho til Arsenal Arsenal hefur gengið frá kaupum á framherjanum Gervinho frá Lille. Fílbeinstrendingurinn 24 ára hefur verið orðaður við enska félagið undanfarnar vikur en nú hefur Arsene Wenger staðfest að hann sé á leið til félagsins. Enski boltinn 11.7.2011 19:00
Essien frá í hálft ár Chelsea varð fyrir miklu áfalli í dag þegar ljóst var að miðjumaðurinn Michael Essien yrði frá næstu sex mánuðina vegna meiðsla á hné. Enski boltinn 11.7.2011 17:58
Woodgate semur við Stoke til eins árs Enski varnarmaðurinn Jonathan Woodgate hefur skrifað undir eins árs samning við Stoke City. Woodgate hefur glímt við erfið meiðsli undanfarin ár en samningur hans við Tottenham var ekki endurnýjaður. Enski boltinn 11.7.2011 17:00
Modric segir að stjórnarformaður Tottenham hafi beitt hótunum Króatíski landsliðsmaðurinn Luka Modric heldur því fram að David Levy stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham hafi haft í hótunum við sig. Modric hefur lýst því yfir að hann vilji komast frá Tottenham. Levy er allt annað en ánægður með þá ákvörðun leikmannsins. Modric segir að Levy hafi hótað því að hann fengi ekkert að spila með félaginu ef hann sætti sig ekki við þá ákvörðun félagsins að setja hann ekki á sölulista. Enski boltinn 11.7.2011 14:00
John Arne Riise í læknisskoðun hjá Fulham John Arne Riise fyrrverandi leikmaður Liverpool sem leikið hefur með Roma á Ítalíu undanfarin ár er í læknisskoðun hjá Fulham þessa stundina. Samkvæmt frétt á vef norska ríkisútvarpsins verður Riise kynntur sem nýr leikmaður félagsins síðar í dag. Enski boltinn 11.7.2011 12:30
Eiður Smári með tilboð frá West Ham Eiður Smári Guðjohnsen hefur í höndunum tilboð frá West Ham, þetta staðfesti Arnór Guðjohnsen faðir og umboðsmaður Eiðs við íþróttadeild Stöðvar 2 í morgun. Nýliðar Swansea í ensku úrvalsdeildinni hafa einnig boðið Eiði Smára samning og segir Arnór að fleiri möguleikar séu einnig í boði en Eiður sé þessa dagana að gera upp hug sinn. Enski boltinn 11.7.2011 12:00
Wenger er vongóður um að halda Fabregas og Nasri Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er vongóður um að Cesc Fabregas og Samir Nasri verði áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð. Fabregas, sem er fyrirliði Arsenal, er efstur á óskalistanum hjá Barcelona á Spáni og félögin hafa rætt um hugsanleg vistaskipti hans en kaupverðið hefur staðið í vegi fyrir því að félögin hafi komist að samkomulagi. Manchester City og Manchester United hafa bæði áhuga á að fá Nasri í sínar raðir. Franski landsliðsmaðurinn á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal og hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning. Enski boltinn 11.7.2011 11:00
Beckham mætir Manchester United David Beckham og stjörnulið MSL-deildarinnar mæta fyrrum félögum Beckham í Manchester United í æfingaleik þann 27. júlí næstkomandi. Auk Beckham verða Landon Donovan, Thierry Henry og Kasey Keller í byrjunarliðinu. Enski boltinn 11.7.2011 00:06
Given er tilbúinn að taka á sig launalækkun Shay Given, varamarkvörður Man. City, hefur gefið það út að hann sé tilbúinn að taka á sig 25.000 punda launalækkun á viku svo hann komist til Aston Villa, en Villa leitar nú óðum að markverði þar sem Brad Friedel fór frá liðinu á dögunum. Enski boltinn 10.7.2011 19:00
Scholes: Enskir landsliðsmenn hugsa aðeins um sjálfan sig Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United, segir í ítarlegu viðtali við enska fjölmiðla að ástæðan fyrir því að hann hafi lagt landsliðskónna á hilluna árið 2004 hafi verið að leikmenn liðsins hafi ávallt haft sína eigin hagsmuni að leiðarljósi, því hafi aldrei skapast góð liðsheild. Enski boltinn 10.7.2011 17:30
Kevin Phillips skrifaði undir hjá Blackpool Enska 1. deildarliðið, Blackpool, hefur fengið til sín reynsluboltann Kevin Phillips sem skrifaði undir eins árs samning við félagið. Enski boltinn 10.7.2011 15:30
Abramovich ætlar að greiða 80 milljónir fyrir Tevez og Modric Eigandi Chelsea, Roman Abramovich, er tilbúinn að greiða 80 miljónir punda eða 15 milljarða íslenskra króna í þá Carlos Tevez og Luka Modric, en sá fyrrnefndi er á leiðinni frá Man. City. Enski boltinn 10.7.2011 13:30
Young verður númer átján - De Gea númer eitt Englandsmeistarar Manchester United hafa tilkynnt leikmannanúmer fyrir næstu leiktíð. David De Gea verður númer eitt, Ashley Young númer átján og hinn ungi Phil Jones númer fjögur. Enski boltinn 10.7.2011 10:00
Cole og Woodgate á leið til Stoke Peter Coates stjórnarformaður Stoke segir að félagið eigi í viðræðum við ensku landsliðsmennina Carlton Cole og Jonathan Woodgate. Þetta kom fram í spjalli Coates við enska fjölmiðilinn Talksport. Enski boltinn 9.7.2011 20:30
Nasri fer í æfingaferð til Asíu - Fabregas ekki Franski miðjumaðurinn Samir Nasri fer með Arsenal í æfingaferð til Asíu. Nasri hefur verið orðaður sterklega við brotthvarf frá Lundúnarliðinu. Cesc Fabregas verður hins vegar eftir í London þar sem hann glímir við meiðsli. Enski boltinn 9.7.2011 19:34
West Ham vill að Diamanti verði meinað að spila fótbolta Enska knattspyrnufélagið West Ham vilja að FIFA og ítalska knattspyrnusambandið komi í veg fyrir að Alessandro Diamanti fái að spila fótbolta. Diamanti gekk til liðs við Brescia frá West Ham á síðasta ári. Að sögn West Ham hefur Brescia ekki enn lokið við að greiða fyrir kaupin á leikmanninum. Enski boltinn 9.7.2011 11:00
Essien meiðist enn á ný á hné Michael Essien leikmaður Chelsea meiddist á hné á æfingu hjá félaginu í gær. Essien sleit krossbönd í hné fyrir einu og hálfu ári síðan sem varð til þess að hann missti af HM 2010 í Suður-Afríku. Enski boltinn 9.7.2011 10:00