Stj.mál

Fréttamynd

Vinstri - grænir í Reykjavík ákveða framboðsmál

Vinstri - grænir í Reykjavík halda í kvöld fund þar sem afgreidd verður tillaga um fyrirkomulag á forvali fyrir komandi alþingiskosningar. Tillagan gerir ráð fyrir sameiginlegu forvali í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi þann 11. nóvember.

Innlent
Fréttamynd

Utanríkisráðherra á allsherjarþing SÞ

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, heldur í dag á 61. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Í tengslum við allsherjarþingið mun utanríkisráðherra meðal annars sitja fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja og utanríkisráðherra Norðurlanda. Ráðherra mun einnig sitja hádegisverðarfund ráðherra Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Össur nýr þingflokksformaður Samfylkingarinnar

Össur Skarphéðinsson var í dag kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar á fundi þingflokksins á Hótel Glym í Hvalfirði fyrr í dag. Á fundinum voru Kristján L. Möller endurkjörinn varaformaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir endurkjörin ritari þingflokksins.

Innlent
Fréttamynd

Forsetahjónin á ráðstefnu í New York

Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur boðið Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Dorrit Moussaeff forsetafrú að taka þátt í ráðstefnunni Clinton Global Initiative í New York í vikunni. Ráðstefnuna sækja fjölmargir þjóðarleiðtogar og forystumenn í alþjóðamálum.

Innlent
Fréttamynd

Verðbólga á Íslandi sú mesta innan EES

Verðbólga á Íslandi var sú mesta innan Evrópska efnhagssvæðisins frá ágúst 2005 til ágústmánaðar í ár. Þetta leiða nýjar tölur Hagstofunnar í ljós. Verðbólgan hér á landi, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, reyndist 7,1 prósent á tímabilinu en var 2,3 prósent að meðaltali í ríkjum EES og á evrusvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Vandar föðurlega um fyrir Guðlaugi

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vandar föðurlega um fyrir Guðlaugi Þór Þórðarsyni alþingismanni, sem að öllum líkindum býður sig fram í annað sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, á móti Birni.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að Konukot verði áfram opið

Femínistafélag Íslands skorar á formann Velferðarsviðs Reykjavíkur að endurskoða tillögur um að leggja niður Konukot, athvarf fyrir heimilislausar konur.

Innlent
Fréttamynd

Jón Gunnarsson sækist eftir 1. sæti

Jón Gunnarsson alþingismaður hefur ákveðið að sækjast eftir því að leiða framboðslista í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi vegna kosninga til Alþingis í vor.

Innlent
Fréttamynd

Margrét Frímannsdóttir hættir í stjórnmálum

Margrét Frímannsdóttir, þingmaður og formaður þingflokks Samfylkingarinnar, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu í Alþingiskosningunum á næsta ári. Þetta tilkynnti hún á aðalfundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem haldinn var í Þorlákshöfn í dag.

Innlent
Fréttamynd

Skreytir sig með stolnum fjöðrum

Gudrun Schyman forystukona sænska kvennaframboðsins fer með fleipur þegar hún fullyrðir að framboð þeirra sé fyrsta feminíska kvennaframboðið í heiminum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ein af frumkvöðlum íslenska kvennaframboðsins, segir að Gudrun viti betur, enda hafi hún komið hingað til lands fyrir tveimur árum og kynnst frumkvöðlastarfi íslenskra kvennalistakvenna.

Innlent
Fréttamynd

Margrét hugsanlega á leið úr stjórnmálum

Talið er að Margrét Frímannsdóttir ,formaður þingflokks Samfylkingarinnar, hætti í pólitík. Hún hefur gefið út þá yfirlýsingu að hún tilkynni um pólitíska framtíð sína á kjördæmisráðsfundi Suðurkjördæmis á sunnudag.

Innlent
Fréttamynd

Herdís stefnir á annað sæti í Norðvesturkjödæmi

Herdís Sæmundardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, gefur kost á sér í annað sæti á lista Framsóknaflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herdísi.

Innlent
Fréttamynd

Verkefni í vegagerð færð frá ríki til sveitarfélaga

Vinna er hafin við það í samgönguráðuneytinu að færa ákveðin verkefni í samgöngumálum frá ríki til sveitarfélaga. Þetta kom fram í ávarpi Sturlu Böðvarssonar á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í Grundarfirði í dag.

Innlent
Fréttamynd

Samið um menningarsamskipti við Kína

Íslendingar og Kínverjar hafa samið um menningarsamkipti á árunum 2007-2010 sem meðal annars felast í skiptiheimsóknum listamanna og stjórnenda á listasviðinu. Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og menningarmálaráðherra Kína sem það gerðu fyrir hönd þjóða sinna en Þorgerður er nú stödd í opinberri heimsókn í Kína.

Innlent
Fréttamynd

Bjóða sig fram í stjórn Heimdallar

Hópur ungs fólks hefur ákveðið að bjóða sig fram til stjórnar Heimdallar með Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, frambjóðanda til formennsku í Heimdalli. Í tilkynningu frá hópnum segir að hann sé skipaður öflugu hugsjónafólki, sem vilji auka veg Heimdallar og virkja ungt fólk til starfa innan félagsins.

Innlent
Fréttamynd

Lýsir yfir stuðningi við starfsemi Barnahúss

Kvenfélagasamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við starfssemi Barnahúss og minnt á ályktun þess efnis sem samþykkt var á Landsþingi Kvenfélagasambands Íslands á Akureyri í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Reyksíminn styrktur um sex milljónir króna

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að styrkja starfsemi Reyksímans með þriggja milljóna króna framlagi á ári í tvö ár. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Varnarviðræður hafnar í Washington

Fundur viðræðunefnda Íslands og Bandaríkjanna í Washington vegna varnarmála landsins hófst klukkan kortér yfir tvö í dag en ekki liggur fyrir hversu lengi hann mun standa. Sem fyrr hvílir leynd yfir efni samningaviðræðnanna en íslenskir ráðamenn vonast til þess að þeim ljúki jafnvel í næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Ríkishlutafélagið Matís stofnað í dag

Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir Keldnaholti og Rannsóknastofa Umhverfisstofnunar sameinast í hlutafélaginu Matís ohf. sem stofnað var formlega í dag. Það er að öllu leyti í eigu ríkisins en breytingarnar á stofnununum taka gildi um næstu áramót.

Innlent
Fréttamynd

Vonast eftir að viðræðum ljúki í næstu viku

Varnarviðræður Íslands og Bandaríkjanna hefjast á ný í dag í Washington. Sem fyrr hvílir leynd yfir efni samningaviðræðnanna en íslenskir ráðamenn vonast til þess að þeim ljúki jafnvel í næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Sigurður Kári stefnir á fjórða sætið

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, stefnir á fjórða sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur vegna komandi Alþingiskosninga. Sigurður Kári sagði í samtali við NFS í morgun að með því stefndi hann að öðru sætinu í öðru hvoru kjördæminu.

Innlent
Fréttamynd

Kristján stefnir á annað sætið

Kristján Pálsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í prófkjöri fyrir komandi þingkosningar.

Innlent
Fréttamynd

Áformum um stóriðju verði slegið á frest

Samfylkingin vill að frekari áformum um stóriðju verði slegið á frest og náttúra landsins verði sett í forgang. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem flokkurinn efndi til í dag þar sem ný umhverfisstefna var kynnt.

Innlent
Fréttamynd

Náttúra landsins verði sett í forgang

Samfylkingin vill að frekari áformum um stóriðju verði slegið á frest og náttúra landsins verði sett í forgang. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem flokkurinn efndi til í dag þar sem ný umhverfisstefna var kynnt.

Innlent
Fréttamynd

Ótækt að Landsvirkjun starfi í skjóli ríkisábyrgðar

Varaformaður iðnaðarnefndar Alþingis telur ótækt að Landsvirkjun starfi í skjóli ríkisábyrgðar og vill að einkafyrirtækjum verði gert kleift að hanna og byggja virkjanir. þingmaður Samfylkingarinnar, segir ákaflega erfitt að hafa virka samkeppni á jafn litlum raforkumarkaði og íslenski raforkumarkaðurinn sé.

Innlent
Fréttamynd

Böðvar nýr aðstoðarmaður fjármálaráðherra

Böðvar Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Árna Mathiesen fjármálaráðherra og tekur hann við starfinu síðar í þessum mánuði. Böðvar leysir Ármann Kr. Ólafsson af hólmi en Ármann hefur gegnt starfi aðstoðarmanns ráðherra í ellefu ár, fyrst hjá Halldóri Blöndal samgönguráðherra og síðan hjá Árna Mathiesen í sjávarútvegs- og fjármálaráðuneyti.

Innlent
Fréttamynd

Ákveður fyrirkomulag framboðsmála í Kraganum

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi heldur í kvöld aðalfund þar sem ákveðið verður hvernig valið verði á lista flokksins fyrir komandi þingkosningar. Fyrir fundinn verður lögð tillaga frá stjórn kjördæmisráðsins sem gerir ráð fyrir svokölluðu flokksvali, það er að segja prófkjöri sem aðeins verður opið flokksmönnum.

Innlent