Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sportbílar og eld-gleypir á tískusýningu „Við ætlum að fara svolítið USA-leiðina og búa til alvöru tískusýningu með danssýningu og partíi eftir á,“ segir Sveinbjörn Gísli Þorsteinsson eða Sveinbi, eigandi superman.is, sem skipuleggur svokallað Fashion Party 2009 á Rúbín næstkomandi föstudag, 27. nóvember. 26.11.2009 02:00
Paul á plötu Ringo Starr Persónulegasta plata Ringo Starr heitir Y not og kemur út í byrjun næsta árs. Þetta er fyrsta platan sem Ringo hljóðvinnur sjálfur og segist hann borubrattur ætla að sjá um þetta framvegis. Þekkt lið eins og Ben Harper, Joss Stone, Joe Walsh, Dave Stewart, Glen Ballard, Richard Marx og Van Dyke Parks kemur við sögu á plötunni og Paul McCartney spilar á bassa í einu lagi og syngur með Ringo í laginu „Walk with You“. Það er sagt vera einlægt lag um gamalgróna vináttu. 26.11.2009 01:30
Varasamur rauður hnappur Spennumyndin The Box og hin ævisögulega Coco Chanel verða frumsýndar á morgun. 26.11.2009 01:00
FÖGNUÐU NÝRRI ÆVISÖGU Útgáfuhóf var haldið í Eymundsson á dögunum til að fagna ævisögunni Mynd af Ragnari í Smára sem Jón Karl Helgason ritaði. Jón Karl hefur um árabil rannsakað líf Ragnars í Smára, sem var goðsögn í lifanda lífi. Hann var áberandi í íslensku menningarlífi um áratugaskeið og átti hann í góðu sambandi við helstu listamenn þjóðarinnar. 26.11.2009 01:00
Snýr sér að leikstjórn Leikkonan Lindsay Lohan tilkynnti á Twitter-síðu sinni í gær að hún hefði lokið við að skrifa handrit að sjónvarpsþætti sem hún hefði selt til sjónvarpsstöðvar. 26.11.2009 00:30
Góðhjörtuð söngdíva Söngkonan Lady Gaga pantaði hátt í hundrað pitsur fyrir svanga aðdáendur sína sem höfðu beðið margar klukkustundir í röð til að fá eiginhandaráritun. Á Twitter-síðu sinni skrifaði söngkonan: „Pantaði pitsur fyrir litlu skrímslin mín sem biðu eftir mér í alla nótt fyrir utan Best Buy. Vona að þið séuð svöng... borðið ykkur södd." Söngkonan gaf pitsusendlinum líka dágóða summu í þjórfé. 26.11.2009 00:15
Allt að gerast hjá Merzedes Club - myndir Merzedes Club eru tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna sem „dansakt" (dansatriði) ársins fyrir lagið og myndbandið Frelsi á vefsíðunni http://www.eurodanceweb.net. Dómnefnd plötusnúða, útgefenda og pródúsenta velur lög inn í keppnina og aðeins eitt lag kemst frá hverju landi. Ekki er hægt að sækja um þátttöku í þessari keppni heldur kom tilkynning til Merzedes Club um að þau hefðu verið valin inn í keppnina. Ekki hefur íslenskt atriði verið valið inn í þessa keppni áður. Kosning netverja gildir á móti dómnefndinni um dansatriði ársins en undanfarin 3 ár hafa; Basshunter, Ultrabeat VS. Darren Styles og Alex C. Feat. Yass unnið þessa keppni sem hefur staðið yfir árlega frá því 2001. Hægt er að kjósa hér: Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru í Portúgal við tökur á óútkomnu myndbandi sveitarinnar og í kringum tónleika sem hún hélt þar. 25.11.2009 15:30
Skilja á sviðinu „Það er búið að vera mjög skemmtilegt. Reyndar er það svo að þegar við förum inn á sviðið hættir hann að vera maðurinn minn og verður í huga mínum hinn viðkunnalegi en dularfulli Höskuldur," svarar Tinna Hrafnsdóttir leikkona spurð hvernig er að leika með unnusta sínum, Sveini Geirrsyni en þau leika saman í leikritinu „Fyrir framan annað fólk" eftir Kristján Þórð Hrafnsson sem sýnt er í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Takið þið þá nokkuð vinnuna með heim? „Við byrjuðum reyndar að æfa leikritið með leikstjóranum á heimili okkar svo það má kannski frekar segja að við höfum tekið heimilið inn í vinnuna. En að öðru leyti tekst okkur vel að aðskilja vinnu og einkalíf," segir Tinna. Sjá heimasíðu Hafnarfjarðarleikhússins. 25.11.2009 14:30
Hönnuðir láta gott af sér leiða „Hugmyndin er að koma íslenskum kvenkynshönnuðum á framfæri og láta gott af okkur leiða um leið," segir Þorbjörg Marinósdóttir blaðamaður, en hún stendur fyrir hönnunarpartíi á b5 fimmtudaginn 3. desember. Þar munu íslenskir kvenkynshönnuðir kynna og selja vörur sínar og hver hönnuður mun gefa eina vöru til góðgerðarmála. Þá er fólk hvatt til að mæta með lítinn jólapakka merktan aldri og kyni sem mun fara til þeirra sem minna mega sín. 25.11.2009 06:00
Merzedes Club keppir í alþjóðlegri söngvakeppni „Við fundum þetta lag og okkur fannst það fullkomið fyrir Eurodanceweb,“ segir Ítalinn Boris Zuccon, stjórnandi síðunnar Eurodanceweb.net. Lag hljómsveitarinnar Merzedes Club, Meira frelsi, hefur verið valið í alþjóðlega söngvakeppni síðunnar sem er nú haldin í níunda sinn. 25.11.2009 06:00
Jackson með fernu Popparinn sálugi Michael Jackson vann fern verðlaun á Bandarísku tónlistarverðlaununum sem voru haldin hátíðleg í Los Angeles. Með verðlaununum skráði Jackson nafn sitt í sögubækur hátíðarinnar því hann hefur þá unnið 23 verðlaun, fleiri en nokkur annar. Hann fékk meðal annars verðlaun í flokknum besti popp- og rokktónlistarmaðurinn og sem besti sálar- og R&B-tónlistarmaðurinn. Það var Jermaine Jackson sem tók á móti verðlaununum fyrir hönd bróður síns. 25.11.2009 05:00
Opnunarhátíð í Vonarstræti Það var góð stemning á opnunarhátíð Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Hönnunarsjóðs Auroru og Kraums tónlistarsjóðs sem haldin var í tilefni að flutningi starfsemi þeirra í Vonarstræti 4b. Húsið var upphaflega byggt árið 1928 sem verksmiðjuhús til brjóstsykurs- og konfektgerðar. 25.11.2009 04:00
Dansverkið Shit frumsýnt Leikhúslistamaðurinn Kristján Ingimarsson er staddur hér á landi þar sem hann setur upp sýningu ásamt Íslenska dansflokknum í Borgarleikhúsinu. Kristján hefur verið búsettur í Danmörku frá árinu 1992 þar sem hann stundaði nám í sviðslistum. Kristján starfar einnig sem sjálfstæður leikstjóri og leikari. 25.11.2009 03:30
Mikil gróska í prjónaskap Það ríkir mikið prjónaæði á Íslandi um þessar mundir. Til marks um það er komin út ný prjónabók og kennsludiskur fyrir byrjendur og lengra komna. „Við vildum forvitnast hvað sé að gerast í allri þessari prjónagrósku á Íslandi,“ segir Erla Sigurlaug Sigurðardóttir, sem gefur út bókina Prjónaperlur – prjónað frá grasrótinni, ásamt frænku sinni, Halldóru Skarphéðinsdóttur. 25.11.2009 03:00
Doðrantur Halldórs um hrunið „Þegir Egill Örn hjá Forlaginu stakk uppá því að gefa út aðra bók stakk ég uppá því að bókin yrði 320 blaðsíður. Þetta er því alvöru doðrantur um hrunið," segir skopmyndateiknarinn Halldór Baldursson. Í dag kemur út bókin Skuldadagar þar sem finna má teikningar hans frá árunum 2007 og til dagsins í dag. 25.11.2009 02:30
Syngur í Háskólabíói í febrúar Emilíana Torrini heldur tónleika með hljómsveit sinni í Háskólabíói laugardaginn 20. febrúar. Hún hélt tvenna tónleika í Háskólabíói í desember í fyrra til að kynna plötu sína Me and Armini og seldist upp á þá báða. Síðan þá hefur frægðarsól hennar risið hratt, sérstaklega vegna hins vinsæla Jungle Drum sem sat á toppi þýska vinsældalistans í margar vikur. 25.11.2009 02:00
Grínádeila á blekkingarheim Facebook „Þetta var mjög skemmtilegt,“ segir sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason, sem hefur sent frá sér skáldsöguna Flottastur@feisbúkk ásamt vini sínum Helga Jean Claessen. „Þetta var gert til að búa til bros eða jafnvel tvö.“ 25.11.2009 01:30
Til heiðurs Iron Maiden Tónleikar til heiðurs þungarokksveitinni Iron Maiden verða haldnir á Sódómu Reykjavík á laugardagskvöld. Hljómsveitin sem flytur tónlist „Járnfrúarinnar" kallar sig MaidenIced og er skipuð fimm meðlimum nokkurra íslenskra þungarokksveita. 25.11.2009 01:00
Troðfullt - myndir Eins og myndirnar sýna var mikill mannfjöldi sem safnaðist saman á Kjarvalsstöðum þegar sýning Steinunnar Sigurðardóttur fatahönnuðar var opnuð síðastliðinn laugardag, 21. nóvember. Myndirnar tók ljósmyndarinn Joseph Henry Ritter. 24.11.2009 15:00
Kona Stebba Hilmars breytir heimilinu í jólaþorp Stefán Hilmarsson hefur sent frá sér sína fimmtu sólóplötu sem ber heitið Húm. Margir af fremstu lagasmiðum landsins lögðu Stefáni til lög og óhætt er að segja að platan sé uppfull af gæðatónlist. Vísir hafði samband við Stefán til að forvitnast hvað kemur honum í jólagírinn. 24.11.2009 14:00
Hafdís Huld flytur til Íslands „Ég var orðin leið á að vera með heimþrá,“ segir söngkonan Hafdís Huld sem flytur til landsins eftir tvær vikur. Hafdís hefur verið búsett í Bretlandi undanfarin sjö ár, en hún og Alisdair Wright, sambýlismaður hennar, hafa fundið sér hús í Mosfellsdalnum og eru nú í óðaönn að pakka. 24.11.2009 06:00
Jennifer bíður eftir Brad Samkvæmt tímaritinu In Touch mun Jennifer Aniston bíða þolinmóð eftir því að fyrrverandi eiginmaður hennar, Brad Pitt, skilji við Angelinu Jolie og taki aftur saman við sig. Á meðan Aniston dvaldi í Mexíkó átti hún í einhverjum símasamskiptum við Pitt og samkvæmt heimildarmanni voru þau nokkuð innileg. 24.11.2009 05:30
Færeyingar vilja Sirkús Hinn goðsagnakenndi skemmtistaður Sirkús mun opna þann 11. desember í Þórshöfn í Færeyjum. Það eru þau Jóel Briem, sonur Sigríðar Guðlaugsdóttur, fyrrum eiganda Sirkús, og Sunneva Eysturstein sem eiga staðinn ásamt Sigríði. 24.11.2009 05:30
Sigur Rósar-kvöld í París Sérstakt Sigur Rósar-kvöld verður haldið í kvikmyndahúsinu Elysées Biarritz í París næsta laugardag. Þar verða sýndar heimildarmyndirnar Heima og Hlemmur, sem hafa báðar að geyma tónlist Sigur Rósar, ásamt stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, Síðasti bærinn, með tónlist hljómborðsleikarans Kjartans Sveinssonar. 24.11.2009 04:00
Unga fólkið í aðalhlutverki Grunnskólanemendur sýndu færni sína með myndavélarnar í keppni sem 66° Norður stóð fyrir. Menntamálaráðherra taldi sig sjá framtíðarkvikmyndagerðarfólk í keppninni. 24.11.2009 03:00
Stjörnurnar sáu Bræður Sigurjóns í New York „Undirtektirnar voru sannast sagt ótrúlegar og í rauninni bjóst ég ekki við þeim svona sterkum,“ segir Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi. Forsýning var á kvikmynd hans, Brothers, á sunnudagskvöldið í SVA Theater í New York að viðstöddum aðalleikurum myndarinnar, þeim Natalie Portman og Tobey Maguire, og leikstjóranum Jim Sheridan. Fjöldi nafntogaðra gesta lagði leið sína í kvikmyndahúsið og nægir þar að nefna The Edge, gítarleikara U2, en sveitin á einmitt titilag myndarinnar. Þá var Ang Lee einnig meðal gesta sem og gamli Karate Kid-leikarinn, Ralph Macchio. 24.11.2009 02:00
Ekki vinsæl Samkvæmt nýjustu heimildum semur Khloe Kardashian ekki sérstaklega vel við aðrar eiginkonur leikmanna LA Lakers, en Khloe giftist nýlega körfuboltamanninum Lamar Odum sem spilar með liðinu. 24.11.2009 00:30
Svona færðu rennisléttan maga „Lykillinn að sléttum og tónuðum magavöðvum felst í réttu mataræði og svokölluðum brennsluæfingum, þar sem að púlsinn fer upp í brennslupúls," svarar Arnar Grant líkamsræktarfrömuður þegar Vísir spyr hann hvernig hægt er að fá rennisléttan maga. 23.11.2009 10:00
Umdeild fegurðardrottning eyðir jólunum á Íslandi „Ég vil synda í Bláa lóninu um jólin. Ég verð vonandi búin að bóka farið í næstu viku,“ sagði Rachel Kum, ungfrú Singapore, á vefsíðu sinni í vikunni. Rechel kemur til landsins í desember og verður samkvæmt heimildum Fréttablaðsins í fylgd með vini sínum. 23.11.2009 08:00
Mezzoforte til Suður-Afríku Hljómsveitinni Mezzoforte hefur verið boðið að spila á djasshátíð í Höfðaborg í Suður-Afríku næsta vor. Þetta verður í fyrsta sinn sem sveitin spilar í heimsálfunni. 23.11.2009 08:00
Mamma Gógó færir til frumsýningu Aðstandendur kvikmyndar Friðriks Þór Friðrikssonar, Mamma Gógó, hafa ákveðið að færa til frumsýningardag myndarinnar og verður hún frumsýnd þann 1.janúar 2010. Upphaflega stóð til að myndin yrði frumsýnd þann 26.desember. 23.11.2009 07:00
Útgefandi Íslands yfirgefur skerið „Af hverju er ég að stinga af svona rétt fyrir jól? Nú, ég er bara að láta mig hverfa með alla peningana!“ segir Baldvin Esra Einarsson, hugsanlega í gríni. Hann hefur verið afkastamesti tónlistarútgefandi landsins síðustu misserin og séð um útgáfufyrirtækin Kimi og Borgin með fleirum. Nú dælast út plötur frá þessum fyrirtækjum en Baldvin flytur til Gent í Belgíu með allt sitt hafurtask um helgina. 23.11.2009 06:00
Góð ráð Trumps Fyrrverandi fegurðardrottningin Carrie Prejean missti titil sinn eftir að hafa látið umdeild orð falla um hjónaband samkynhneigðra. 23.11.2009 06:00
Verzló sigrar ME í Morfís Verzlunarskóli Íslands tók á móti Menntaskólanum á Egilsstöðum Föstudaginn 20. nóvember í sextán liða úrslitum Morfís. Keppnin fór fram í Bláa sal Verzlunarskólans og var vel mætt frá báðum skólum, þó sérstaklega ME og ljóst er að áhuginn á Morfís fyrir austan er að aukast. 22.11.2009 19:05
Ungfrú Ísland í úrslit - myndir Vísir hafði samband við Heiðar Jónsson snyrti sem fylgist gaumgæfilega með Guðrúnu Dögg Rúnarsdóttur ungfrú Ísland sem keppir í Miss World fyrir Íslands hönd en aðalkeppnin fer fram í Suður-Afríku í desember. „Í gær var Guðrún Dögg valin í úrslitakeppnina fyrir „beach beauty" keppnina, sem útleggst eitthvað eins og „flottust í baðfötum" en það á eftir að velja í keppnina „besta sýningarstúlkan" og ég er að vona að Guðrún veljist þar inn líka," segir Heiðar. „Það komast fimm stúlkur inn í fimmtán stúlkna lokaúrslit keppninnar með því að vinna fimm útsláttarkeppnir. Svo koma fimm álfudrottningar. Heimsálfunum er breytt til að jafna fjölda stúlkna í hvorum hóp. Endanlega velur dómnefnd fimm fegurstu stúlkurnar þar fyrir utan," segir Heiðar. 21.11.2009 11:00
Rammíslensk húðsnyrtivörulína - mynband „Ég er að fagna og bjóða vinum og vandamönnum og þeim sem hafa lagt hönd á plóginn," sagði Sóley Elíasdóttir leikkona sem kynnti nýja húðsnyrtivörulínu á fimmtudaginn sem ber hennar eigið nafn. „Það tók mig tvö ár að finna út úr því hvernig ég gæti gert þetta og haft það alveg náttúrulegt," sagði Sóley meðal annars. Á meðfylgjandi link má sjá umrætt viðtal sem Ísland í dag tók við Sóley. Þá má einnig skoða myndir sem teknar voru af gestunum í myndasafninu. 21.11.2009 08:30
Útkall við Látrabjarg „Ég á afskaplega tryggan og góðan lesendahóp," segir Óttar Sveinsson sem hefur gefið út sína sextándu Útkalls-bók. 21.11.2009 06:00
Galdrakarlar spila breytt lög „Með þessa galdrakarla, Davíð, Adda, Guðna og Pétur, þarf maður að vera ansi lélegur að klúðra þessu,“ segir tónlistarmaðurinn Mugison um sína nýjustu plötu. Þar er að finna níu gömul lög eftir hann í nýjum útgáfum, þar á meðal Murr Murr, I Want You og Go Blind. Lögin spiluðu þeir félagar í breytum útgáfum á tónleikaferð sinni um heiminn til að fylgja eftir plötunni Mugiboogie. 21.11.2009 06:00
Biblían logaði í messu Pétur Þorsteinsson er einn stofnenda Hins íslenska töframannagildis auk þess sem hann er prestur Óháða safnaðarins. Pétur hefur haldið svokallaðar galdramessur tvisvar á ári hverju þar sem hann tvinnar kristilegum boðskap saman við töfra. 21.11.2009 05:45
Sjálfsefi og ást á sólóplötu Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu. Hann er þekkastur sem meðlimur Sprengjuhallarinnar en stígur núna einn fram á sjónarsviðið. 21.11.2009 05:00
Jólahjólið fær verðuga keppni Sniglabandið sendir á mánudag frá sér sína fyrstu jólaplötu sem nefnist Jól, meiri jól. 21.11.2009 04:00
Megas og pítsa er góð blanda „Þetta byrjaði þannig að við spiluðum alltaf tónlist eftir Megas á Bryggjunni á þessum dögum," segir Sigurður Karl Jóhannsson, eigandi pítsustaðarins Bryggjunnar á Akureyri, en þar stendur nú yfir Megasvika. Staðurinn hefur verið opinn í fimmtán mánuði og hefur notið vinsælda, enda eini pítsustaðurinn með eldbakaðar pítsur á Akureyri. Nú stendur yfir sjötta Megasvikan. 21.11.2009 03:45
Íslandsmeistaramót í sviðakjammaáti Það var ríkti keppnisandi á Íslenska barnum á fimmtudagskvöldið þar sem Íslandsmeistaramót í sviðakjammaáti fór fram. Hreiðar Jósteinsson bar sigur úr býtum og borðaði rúmlega sex sviðakjamma. 21.11.2009 03:45
Skoppa fagnar barna-Eddu „Ég er rosalega glöð með að sjá að þessi flokkur sé kominn. Ég held að allir megi hoppa hæð sína af gleði,“ segir leikkonan Linda Ásgeirsdóttir, Skoppa úr Skoppu og Skrítlu. 21.11.2009 03:00
Kjánalegar pælingar Gerard Butler er nú á ferð og flugi við að kynna nýjustu kvikmynd sína, Law Abiding Citizen. Í sjónvarpsviðtali í Englandi var hann spurður út í ástarlíf sitt og hvort hann hafi í raun átt í sambandi við leikkonurnar Jennifer Aniston og Lindsay Lohan. Butler þvertók fyrir það og sagði þessar vangaveltur vera orðnar kjánalegar. 21.11.2009 02:30