Fleiri fréttir

Guðlaugur stefnir Birni Val: Óvíst með bótakröfu

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að stefna Birni Val Gíslasyni, þingmanni Vinstri Grænna, fyrir meiðyrði. Guðlaugur Þór gaf Birni Val fimm daga frest til að draga ummælin til baka, en sá frestur rann út í gær án þess að Björn Valur fjarlægði þau eða bæðist á þeim afsökunar.

Björninn felldur í Hornvík

Ísbjörninn sem sást við Hælavík á Hornströndum í morgun hefur verið felldur. Það voru lögreglumenn sem skutu dýrið en það var þá komið yfir í Hornvík.

Hópakstur Snigla fer fram í kvöld

Vélhjólaklúbburinn Sniglar ætlar að fara í hópferð sína í kvöld klukkan átta. Samkvæmt venju er farið í slíka hópferð 1. maí á hverju ári en sökum snjóalaga þurfti að fresta viðburðinum í gær. Sniglar ætla að safnast saman á Laugavegi og aka hring um Vesturbæinn áður en hópurinn kemur saman á Kirkjusandi.

Iðnaðarráðherra á Íslendingaslóðum í Kanada

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra var heiðursgestur á ársfundi sambands Íslendingafélaga í Norður Ameríku sem haldinn var um helgina í Edmonton í Kanada. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að um 250 manns af íslensku bergi brotnir hafi sótt fundinn en um 200 þúsun Kanadamenn eiga ættir sínar að rekja til Íslands og 100.000 Bandaríkjamenn.

Fundu 300 grömm af maríjúana í Breiðholti

Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í Breiðholti fyrir helgina en þeir voru gripnir við sölu á fíkniefnum. Lögreglan hafði fylgst með ferðum þeirra en kaupandinn, karl á fertugsaldri, var sömuleiðis handtekinn. Í bíl fíkniefnasalanna fundust rúmlega 30 grömm af marijúana og var það ætlað til sölu. Mennirnir voru færðir á lögreglustöð en í framhaldinu var farið í húsleit hjá karl á þrítugsaldri, búsettum í Breiðholti, en sá hefur alloft áður komið við sögu hjá lögreglu, meðal annars vegna fíkniefnamála. Þar fannst ennþá meira af marijúana, eða yfir 300 grömm, og einnig hass og nokkuð af amfetamíntöflum. Á sama stað var einnig lagt hald á mikið af þýfi, en meðal annars var um að ræða hljóðfæri, hljómflutningstæki, tölvur og tölvubúnað en ljóst er að þetta eru umtalsverð verðmæti

Lokað í Bláfjöllum fram á haust

Bláfjöllum hefur nú verið lokað þannan veturinn. Í tilkynningu á heimasíðu skíðasvæðisins er skíða- og brettafólki þakkað fyrir ágætan vetur þrátt fyrir að veðrið hafi nokkuð spillt fyrir, sérstaklega í mars og apríl. "Þó nægur snjór hefði verið þá var veðurfarið okkur óhagstætt og sem dæmi þá náðist ekki að opna nema eina heila helgi eftir áramót.“

Munu reyna að hefna fyrir dauða Osama

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunanr CIA segir að hryðjuverkasamtökin Al Kaída muni án vafa reyna að hefna fyrir drápið á leiðtoga sínum Osama bin Laden. Leon Panetta segir að þrátt fyrir að Osama sé allur, sé ekki hægt að segja það sama um samtökin sem hann stýrði.

Felustaður Bin Laden brennur

Kveikt var í felustað Osama Bin Laden í morgun eftir að fréttir bárust af því að hann hefði verið myrtur af bandarískum sérsveitarmönnum. Sjónvarpsstöðvar í Pakistan hafa sýnt myndir af logandi húsinu en eftir því sem næst verður komist voru það heimamenn sem kveiktu í því. Osama hafði falið sit í bænum Abbottabad, sem er í um 100 kílómetra norðan við höfuðborg Pakistans, Islamabad. Húsið var girt af með ríflega fimm metra háum vegg, og gaddavír.

ESA fær svar vegna Icesave sent í dag - blaðamannafundur síðdegis

Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að rökstuðningur íslenskra stjórnvalda í svari til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave sé það öflugur að hann ætti að duga stofnuninni til að ljúka málinu. Svarið verður sent ESA í dag. Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra segir menn hafa lagt sig fram um halda fram öllum rökum Íslands í málinu. En ESA sendi íslenskum stjórnvöldum áminningarbréf í fyrra þar sem stofnunin heldur því fram að Íslendingum beri að tryggja greiðslur á 21 þúsund evrum samkvæmt innstæðutrygginga reglum á hverjum Icesave reikningi í Bretlandi og Hollandi. Fjöldi fólks hafi sökt sér ofan í þetta mál á undanförnum árum og búi yfir mikilli þekkingu á því sem mikilvægt hafi verið að nýta. Svarið sem sent verður til ESA í dag er upp á 34 síður og verður kynnt á fréttamannafundi klukkan fjögur. Árni telur að rökstuðningur Íslands sé traustur og málið ætti ekki að þurfa að fara fyrir EFTA dómstólinn eins og það mun gera fallist ESA ekki á rök Íslendinga.

Björninn rúllaði sér í snjóskafli og hljóp svo til fjalla

Beðið er átekta með aðgerðir á Hornströndum en þar sást til Ísbjarnar í morgun. Að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum er hann nú horfinn sjónum sjómannanna sem sáu hann í Hælavík í morgun. Þeir sáu hann velta sér um í fjörunni áður en hann hljóp til fjalla. Nokkur þoka er á svæðinu og því erfitt um vik við að leita að dýrinu.

Svikapar tekið á Selfossi

Á föstudag hafði lögregla afskipti af pari sem grunað var um að hafa stolið nýjum farsíma úr verslun M&M að Eyravegi 2 á Selfossi. Lögreglumenn fundu parið stuttu síðar þar sem það var við verslun Krónunnar. Karlmaðurinn var með símann í fórum sínum. Maðurinn sagði símann gamlan og í hans eigu. Síðar sagðist hann hafa fundið símann við ruslagáma hjá verslun M&M. Þarna var um sama síma og stolið var úr versluninni. Sama dag hafði lögregla haft afskipti af konunni eftir að hún var staðinn að því að taka bók úr versluninni fara með hana að afgreiðslukassa og sagði afgreiðslumanni að hún vildi skila bókinni og fá inneignarnótu. Konan viðurkenndi að hafa ætlað að svíka fjármuni út úr versluninni með þessu. Fyrr í vetur var þetta par á ferð á Selfossi og í Hveragerði þar sem það stundaði það að stela vörum og svíkja fjármuni út úr verslunum.

Fótur knapa varð milli hests og bifreiðar

Kona slasaðist minni háttar þegar hestur sem hún reið lenti utan í bifreið sem ekið var fram með hestinum í hesthúsahverfinu á Selfossi í síðustu viku. Talið er að hesturinn hafi fælst þegar bifreiðinni var ekið framúr honum og knapanum og lent utan í henni með þeim afleiðingum að fótur knapans varð á milli hests og bifreiðar. Hesturinn slasaðist á fæti við óhappið er hann rakst utan í hliðarspegil. Konan hlaut mar á fæti og leitaði til læknis og dýralæknir saumaði skurð sem kom á fót hestins. Lítilst háttar tjón varð á bifreiðinni.

Ók ölvaður í gegn um girðingu við gufubaðið á Laugavatni

Ökumaður var handtekinn á Laugarvatni um helgina eftir að hann ók, ölvaður, í gegnum girðingu við nýbyggingu gufubaðsins á Laugarvatni og hafnaði þar ofan í skurði. Ökumaður hvarf af vettvangi en fannst skömmu síðar. Bifreiðina tók maðurinn í óleyfi en hún var ólæst með lykli í kveikjulás á bifreiðastæði við Menntaskólann. Viðurkenning ökumanns liggur fyrir í málinu auk þess sem vitni voru að atvikinu.

Ekið á kyrrstæðan bíl á Selfossi - vitni óskast

Lögreglan óskar eftir vitnum að ákeyrslu á mannlausa bifreið sem stóð á bílastæði fyrir framan Byku á Selfossi á fimmtudag. Ekið var á hægra afturhorn bifreiðarinnar milli klukkan 17.10 og 17.40 en um er að ræða gráan Mercedes bens. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru hvattir til að hafa samband við lögreglun á Selfossi í síma 4801010.

Ísbjörn á Hornströndum

Áhöfn fiskibáts sem staddur var fyrir utan Hælavík á Hornströndum sá ísbjörn vappandi í fjörunni þar rétt fyrir klukkan níu í morgun. Sjómennirnir höfðu samnband við Landhelgisgæsluna og þyrla hennar á leið í loftið til þess að kanna málið.

Móðuharðindin talin mestu náttúruhamfarir í sögu Bretlands

Tugþúsundir manna í Bretlandi létu lífið af völdum eldgossins í Lakagígum árið 1783. Þetta kom fram í sjónvarpsþætti á Discovery World Channel í gærkvöldi, í þáttaröð sem ber heitið "There is a Killer out there“ og fjallar um helstu ógnir sem mannkyni stafar af náttúruhamförum.

Sextán fengu en 45 sóttu um

Stjórn Fornleifasjóðs hefur lokið úthlutun styrkja úr sjóðnum fyrir árið 2011. Fjárveiting til sjóðsins í ár var 17,2 milljónir króna. Samtals bárust 45 umsóknir að þessu sinni að upphæð 73 milljónir. Samþykktir voru styrkir til sextán aðila að upphæð átján milljónir. Áframhaldandi fornleifarannsókn á Skriðuklaustri fékk hæsta styrkinn, þrjár milljónir króna. Fornleifauppgröftur í kirkjugarðinum á Hofsstöðum í Mývatnssveit fékk tvær og hálfa milljón.- shá

Lögregla gerir dauðaleit að banvænu dópi

Lögregla leggur nú allt kapp á að rekja uppruna og dreifingarleiðir fíkniefnisins PMMA, sem grunur leikur á að hafi dregið tvítuga stúlku til dauða á laugardagsmorgun.

Dregur ummælin ekki til baka

Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, ætlar ekki að verða við boði Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga til baka ummæli um mútuþægni hins síðarnefnda. Guðlaugur gaf honum frest til þess til mánaðamóta, ellegar mundi hann stefna honum fyrir meiðyrði.

Fyrstu dýrin á land

Hrefnuveiðimenn hafa veitt fyrstu hrefnur sumarsins og var þeim landað í Hafnarfjarðarhöfn á laugardagskvöld. Vinnsla kjötsins er komin á fullt og stefnt er að því að kjötið verði komið í verslanir í dag. Dýrin voru frekar mögur, en kjötið fallegt að sjá.

Mætir til vinnu aftur á morgun

Hertoginn og hertogaynjan af Cambridge eyða fyrstu helgi sinni sem hjón á leynilegum stað. Hjónin hyggjast ekki fara í brúðkaupsferð sína strax og mun Vilhjálmur prins mæta aftur til vinnu sinnar á morgun.

150 tóku þátt í hópslysaæfingu

Æfð var móttaka tuttugu slasaðra einstaklinga og fyrstu viðbrögð heilbrigðisþjónustu á umfangsmikilli æfingu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands fyrir helgi.

Tillögur um fiskveiðistjórn í anda íslenska kerfisins

Evrópusambandið (ESB) virðist stefna á að taka upp marga meginþætti íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins. Framseljanlegar aflaheimildir og bann við brottkasti eru þar veigamestar en hugmyndafræðin er sú sama og íslenskra stjórnvalda við innleiðingu breyttrar veiðistjórnunar á sínum tíma.

Bændur skjóta fast á Matvælastofnun

Landssamtök sauðfjárbænda (LS) fordæma stjórnsýslu Matvælastofnunar í fjölmörgum málum og ekki síst í Funamálinu. Það er mat LS að enn sé óvíst hversu miklum skaða stofnunin hafi „valdið orðspori íslenskra landbúnaðarvara erlendis með ónákvæmri og illa tímasettri upplýsingagjöf til erlendra aðila."

SÞ flytur starfsfólk frá Trípólí

Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) ákváðu í gær að flytja allt alþjóðlegt starfslið sitt á brott frá Trípólí, höfuðborg Líbíu. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að hópur fólks réðist á skrifstofur SÞ og erlend sendiráð í borginni. Ástæðan mun hafa verið þær fréttir að sonur Múammars Gaddafis Líbíuleiðtoga hefði verið drepinn í loftárás NATO.

Ómeðvitaðir um hætturnar

Reykingabann hefur tekið gildi í Kína. Markmið bannsins er að draga úr dauðsföllum sem rekja má til reykinga. Ekki er leyfilegt að reykja á veitingastöðum, hótelum, lestarstöðvum og í leikhúsum en þó verður áfram leyfilegt að reykja á vinnustöðum

Breyttur útivistartími

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag, fyrsta maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Tólf ára börn og yngri mega nú vera úti til klukkan tíu um kvöld. Þrettán til sextán ára unglingar mega vera úti til miðnættis.

Hilmir Snær snýr aftur í Þjóðleikhúsið

Á næsta leikári gengur Hilmir Snær Guðnason aftur til liðs við leikhóp Þjóðleikhússins eftir nokkurt hlé. Ásamt honum bætast nú í hóp fastráðinna leikara fimm afburða leikarar sem allir hafa sett sterkan svip á starf Þjóðleikhússins og íslenskt leikhúslíf á undanförnum árum, þau Björn Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson.

Sonur og barnabörn Gaddafis drepin í loftárásum

Sonur Muammar Gaddafi Saif Al-Arab Gaddafi, og þrjú barnabörn leiðtogans, féllu í loftárásum Nató á borgina Tripólí í Líbíu í nótt. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá líbíska ríkinu snemma í morgun.

Kröfuganga klukkan hálf tvö

Baráttudagur verkalýðsins verður haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Í Reykjavík verður safnast saman á horni Snorrabrautar og Laugavegs klukkan eitt og lagt af stað klukkan hálf tvö niður Laugaveginn. Útifundurinn á Austurvelli hefst klukkan tíu mínútur yfir tvö og lýkur klukkan þrjú. Á Akranesi verður lagt upp í kröfugöngu klukkan tvö og síðan verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness.

Sjá næstu 50 fréttir