Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herjólfur siglir á ný til Landeyja síðdegis á morgun Herjólfur byrjar á ný að sigla til Landeyja síðdegis á morgun, eftir 40 daga hlé. Vegagerðin tilkynnti síðdegis að dýpkun Landeyjahafnar gengi ágætlega enda væru aðstæður góðar. Fyrsta ferð Herjólfs í fyrramálið verður þó til Þorlákshafnar og komi ekkert óvænt upp er áformað að eftir þá ferð hefjist siglingar til Landeyja að nýju, samkvæmt áætlun. 4.11.2010 18:14
Jarðskjálftar við Kleifarvatn Jarðskjálftahrina hófst í Krýsuvík síðla nætur og var talsverður órói þar í morgun, samkvæmt mælum Veðurstofu. Flestir skjálftanna eru litlir og þeir stærstu innan við 2 stig og er ekki vitað til þess að fólk hafi fundið fyrir þeim, að sögn Þórunnar Skaftadóttur jarðfræðings á Veðurstofu. 4.11.2010 17:30
Björgunarsveitarmenn saman í bíó 25 menn úr björgunarsveitinni Suðurnes í Reykjanesbæ fóru í hópferð á heimildarmyndina Norð Vestur - Björgunarsaga, sem fjallar um snjóflóðið á Flateyri árið 1995. 4.11.2010 17:15
Dæmdur fyrir að nauðga fyrrverandi eiginkonu sinni Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Vesturlands yfir karlmanni sem nauðgaði fyrrverandi eiginkonu sinni. Maðurinn nauðgaði henni í bíl sínum í febrúar 2009. 4.11.2010 16:36
Flugmaður Geysisvélarinnar keypti fyrsta Neyðarkallinn Dagfinnur Stefánsson, flugmaður á flugvélinni Geysi sem fórst 1950, keypti fyrsta Neyðarkall Slysavarnafélagsins Landsbjargar þegar að sala hófst i dag. 4.11.2010 16:23
Játaði stórfelldan skartgripaþjófnað Karlmaður játaði í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur að hafa brotist inn í skartgripaverslun í Hafnarfirði og stolið þaðan skartgripum fyrir rúmlega tvær miljónir. Innbrotið framdi maðurinn í ágúst 2009. 4.11.2010 15:34
Ástkonur tilbúnar að vitna gegn Svíakóngi Ný bók um Karl Gústaf konung Svíþjóðar hefur valdið miklu uppámi í landinu. Þar er því meðal annars haldið fram að konungur hafi margsinnis haldið frahjá Sylvíu drottningu. 4.11.2010 15:26
„Maður sem á tvö svöng börn er hættulegur“ „Það er bara spurning hvenær það sýður upp úr," sagði Sturla Jónsson vörubílstjóri sem mótmælti ríkisstjórninni á Austurvelli. Þar eru á fimmta hundrað mótmælenda. 4.11.2010 14:54
Margrét Tryggva: „Ég skammast mín“ Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, skammaðist sín í þingsal þegar unglingar voru þar viðstaddir og fylgdust með stjórn og stjórnarandstöðu takast á af mikilli heift. 4.11.2010 14:53
Á fimmta hundrað manns á mótmælum Á fimmta hundrað mótmælendur slá tunnur á Austurvelli. Ástæðan er sú að Alþingi er nú komið saman aftur. Mótmælendur krefjast meðal annars að þing verði rofið og utanþingsstjórn skipuð. 4.11.2010 14:39
Jóhanna manar stjórnarandstöðu til að lýsa yfir vantrausti á sig Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra skorar á stjórnarandstöðuna að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Þetta gerði Jóhann í pontu á Alþingi fyrir stundu þar sem hún svaraði gagnrýni þingmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem þykja aðgerðir ríkisstjórnarflokkanna í þágu heimilanna vera slæmar og illa útfærðar. 4.11.2010 14:29
Krabbameinsvaldandi efni á gervigrasvöllum Í dekkjakurli sem notað er á gervigrasvelli barna eru krabbameinsvaldandi efni og eiturefni sem geta verið hættuleg börnum. Læknafélag Íslands skoraði fyrir skömmu á Alþingi að láta banna notkun þessa kurls. 4.11.2010 14:28
Hótaði að sitja fyrir starfsmanni apóteks Viðskiptavinur Lyfja og heilsu við Egilsgötu í Reykjavík hótaði starfsmanni apóteksins nú skömmu eftir hádegið þegar hann þurfti að bíða eftir að fá afgreidd lyf. Maðurinn, sem er góðkunningi lögreglunnar og var heldur ölvaður, kom í apótekið með lyfseðil. Starfsmaðurinn þurfti að hringja í lækni áður en hann gat afgreitt lyfin en náði ekki sambandi og gat því ekki afhent manninum lyfin strax. Við þetta æstist viðskiptavinurinn mjög og tók að hóta starfsmanninum öllu illu, sagðist ætla að sitja fyrir honum og að hann myndi sannarlega hafa verra af vegna þessa seinagangs. 4.11.2010 14:26
Ólafur og Dorrit við útför Jonathans Motzfeldt Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú verða á morgun viðstödd útför Jonathans Motzfeldt, fyrrum formanns landstjórnar Grænlands. Útförin fer fram í Nuuk og verður á vegum grænlensku landstjórnarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu. 4.11.2010 14:18
Bjarni: Fálmkenndar aðgerðir ríkisstjórnarinnar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að lausnar skuldavanda heimilanna vera fálmkenndar, ómarkvissar og óskýrar. Bjarni tók fyrstur til máls eftir að Alþingi var sett fyrir stundu undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir. Hann beindi því til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, að skýra hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera til að bjarga heimilunum og gagnrýndi seinagang hennar. 4.11.2010 14:09
Barið á tunnur á Austurvelli Rúmlega hundrað manns hafa safnast saman fyrir utan Alþingishúsið til að krefjast þess að skipuð verði utanþingsstjórn. 4.11.2010 14:05
Félagsmálaráðuneytið deilir hart á yfirstjórn Sólheima Það er rangt að halda því fram að flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga setji rekstur Sólheima í uppnám. Fjármunir til stofnunarinnar eru tryggðir og fráleitt að gefa það í skyn að mögulega þurfi að loka Sólheimum vegna yfirfærslunnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félagsmálaráðuneytinu en undanfarið hefur verið fjallað í fjölmiðlum um framtíð Sólheima en Framkvæmdastjórn og fulltrúaráð Sólheima hafa sagt að með breytingunum bresti grundvöllur fyrir starfinu. 4.11.2010 13:40
Karl gerir aðra stórmynd með Bigelow „Þetta verður ekki mikið stærra en þetta,“ segir leikmyndahönnuðurinn Karl Júlíusson. Karl er á leiðinni til Argentínu og Síle að gera leikmynd fyrir Óskarsverðlaunaleikstjórann Kathryn Bigelow. 4.11.2010 13:30
„Skaðleg stefna ríkisstjórnar í sjávarútvegsmálum“ Bæjarráð Vestmannaeyja sér sig knúið til að gera ráð fyrir 15 prósenta samdrætti í áætluðum útvarstekjum. Elliði Vignisson bæjarstjóri segir þar hafa ráðið för sú pólitíska óvissa sem nú ríkir og skaðleg stefna ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum. 4.11.2010 13:01
Segir Davíð hafa bjargað Hrafni og Myrkrahöfðingjanum Einar Kárason segir í nýrri bók sinni að Davíð Oddsson hafi tryggt aukafjármögnun svo Hrafn Gunnlaugsson gæti gert kvikmyndina Myrkrahöfðingjann. Formaður stjórnar Kvikmyndasjóðs á þessum tíma telur að Einar fari ekki rétt með staðreyndir málsins. 4.11.2010 12:30
Ísraelar verða að hætta að byggja á Vesturbakkanum -Hague Utanríkisráðherra Bretlands segir að friðarviðræður Ísraela og palestínumanna séu að renna út í sandinn. 4.11.2010 12:23
Segir störf sín fyrir Glitni ekki svipta sig sjálfstæði Slitastjórn Glitnis sakar Brynjar Níelsson, formann Lögmannafélags Íslands, um að rjúfa trúnað með því að skrifa lögfræðiálit fyrir sjömenningana sem slitastjórnin hefur stefnt í New York. 4.11.2010 12:10
Quantas kyrrsetur risaþotur sínar Ástralska flugfélagið Quantas hefur sett flugbann á allan flota sinn af Airbus risaþotum sinn eftir að mikil sprenging varð í hreyfli skömmu eftir flugtak í gærkvöldi. Fjögurhundruð og sextíu manns voru um borð. 4.11.2010 12:01
Bændasamtökin neita að lána starfsmenn vegna ESB Bændasamtök Íslands og Landssamtök sauðfjárbænda hafa hafnað beiðni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis um að lána starfsfólk sitt til ráðuneytisins í rýnivinnu vegna umsóknar Íslands að ESB. 4.11.2010 12:00
Farginu létt af eldstöðinni Áfram er fylgst grannt með Grímsvötnum nú þegar farginu hefur létt af eldstöðinni. Vatnsyfirborðið undir Gígjubrú hefur lækkað um einn og hálfan metra frá því Grímsvatnahlaupið náði hámarki þar síðdegis í gær. 4.11.2010 11:47
Konurnar ætla að dansa vegna nýja vegarins Íbúar á norðausturhorni landsins efna til allsherjar héraðshátíðar á sex stöðum um helgina í tilefni þess að nýr vegur yfir Melrakkasléttu verður formlega opnaður, en með honum styttast leiðir til bæði Raufarhafnar og Þórshafnar, auk þess sem samfellt malbik verður komið þangað alla leið úr Reykjavík. 4.11.2010 11:36
Dæmd í ellefu mánaða fangelsi fyrir að stela bíl Kona var dæmd í ellefu mánaða fangelsi í dag fyrir að stela bifreið í ágúst síðastliðnum fyrir utan verslun 10-11 á Barónstíg. Konan ók svo bifreiðinni til Eyrarbakka þar sem lögreglan handtók hana. 4.11.2010 11:33
Siðmennt heiðrar Hörð Torfason Siðmennt afhendir í dag hin árlegu Húmanistaverðlaun Siðmenntar. Handhafi viðurkenningarinnar þetta árið er Hörður Torfason og er hann heiðraður fyrir mikilvægt og áratugalangt starf í þágu mannréttinda á Íslandi. Þá fær Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og rithöfundur Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar í ár. 4.11.2010 11:11
Fyrsti vetrarsnjórinn fallinn í Reykjavík Borgarbúar vöknuðu upp við það í morgun að fyrsti vetrarsnjórinn var fallinn. Myndatökumaður Stöðvar 2 fór á stúfana og myndaði fólk á leið til vinnu. Í færð sem þessari gengur allt hægar en venjulega enda flughált víða. Það kom því ekki á óvart að í gærkvöldi var tilkynnt um rúmlega þrjátíu umferðaróhöpp í höfuðborginni einni. 4.11.2010 10:52
Gæti orðið hlýjasta ár Reykjavíkur frá upphafi Í Reykjavík eru fyrstu 10 mánuðir ársins jafnhlýir og árið 2003 samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Veðurstofunnar. 4.11.2010 10:37
Kraftaverkabarn í París Átján mánaða gamalt barn fékk ekki einusinni skrámu þegar það féll niður af sjöundu hæð á húsi í útjaðri Parísar í gær. Þetta var drenghnokki sem var að leika við fjögurra ára gamla systur sína úti í glugga þegar hann datt. 4.11.2010 10:28
Ný útgáfa af tillögum mannréttindaráðs Nokkrar breytingar voru gerðar á orðalagi tillögu mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar áður en hún var afgreidd úr ráðinu í gær. Þar segir nú: „Sígildir söngvar, dansar, leikir og handíðir sem teljast hluti af gamalgrónum hátíðumog frídögum þjóðarinnar halda sínum sess í árstíðabundnum skemmtunum og starfi frístundaheimila, leik- og grunnskóla." 4.11.2010 10:09
Krefjast utanþingsstjórnar við þingsetninguna í dag Í tilefni þess að þingheimur kemur saman að nýju í dag hefur verið boðað til mótmæla við Alþingishúsið í dag þar sem þess er krafist að Alþingi samþykki utanþingsstjórn. Þingfundur hefst klukkan tvö og mótmælin sömuleiðis. 4.11.2010 08:54
Hlaupið í Grímsvötnum heldur áfram að sjatna Hlaupið í Grímsvönum hélt áfram að sjatna í alla nótt, en fyrstu merki þess sáust síðdegis í gær. 4.11.2010 07:38
Varað við hálku í borginni og á flestum þjóðvegum Lögreglan og Vegagerðin vara við mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu og á flestum þjóðvegum landsins nema á láglendi sunnan- og suðaustanlands. Þó má búast við hálkublettum á þeim slóðum. 4.11.2010 07:25
Vísbendingar um að sýking í síld sé á undanhaldi Margt bendir til þess að sýkingin, sem hefur herjað á íslensku sumargotssíldina í tvö ár, sé á undanhaldi. 4.11.2010 07:23
Bandaríkjamenn njósnuðu kerfisbundið um Norðmenn í Osló Bandaríkjamenn hafa á kerfisbundinn hátt njósnað um fleiri hundruð Norðmenn í Osló á undanförnum tíu árum. Þetta kom fram í frétt á sjónvarpsstöðinni TV2 í gærkvöldi. 4.11.2010 07:21
Lögreglan lokaði veitingahúsi á miðnætti í borginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði vínveitingahúsi í miðborginni á miðnætti þar sem veitingamaðurinn hafði engin leyfi til veitingareksturs. 4.11.2010 07:19
Tugir umferðaróhappa í borginni vegna hálku Tugir umferðaróhappa urðu á höfuðborgarsvæðinu undir kvöld í gær, þegar snjór tók að falla og hálka myndaðist á götum. 4.11.2010 07:15
Fundu fikniefnagöng milli Mexíkó og Bandaríkjanna Yfirvöld í Bandaríkjunum og Mexíkó hafa fundið velútbúin um 500 metra löng jarðgöng undir landamærum landanna. 4.11.2010 07:12
Breiðþota nauðlenti í Singapore eftir að hreyfill sprakk Breiðþota, af gerðinni Aribus 380, á vegum Qantas flugfélagsins nauðlenti á alþjóðaflugvellinum í Singapore í nótt eftir að sprenging varð í einum af fjórum hreyflum hennar. 4.11.2010 07:07
Vísindamenn við CERN ætla að búa til Stóra Hvell Vísindamenn sem vinna við sterkeindahraðal CERN undir fjöllunum á landamærum Sviss og Frakklands ætla sér að búa til Stóra Hvell. 4.11.2010 07:00
Misstórir en báðir eru grænir Töluverður munur var á fararskjótum borgarstjóra Reykjavíkur og forseta Íslands þegar þeir heimsóttu báðir Foldaskóla á þriðjudag. Þar var haldinn kynningarfundur fyrir Forvarnadaginn sem haldinn var í grunnskólum landsins í gær. 4.11.2010 06:45
Ósamið um fébætur fyrir Hótel Valhöll Forsætisráðuneytið og tryggingafélagið Vörður hafa ekki lokið samningum um uppgjör vegna bruna Hótels Valhallar á Þingvöllum í júlí 2009. Brunabótamat byggingarinnar var ríflega 270 milljónir króna en óvíst er hver endanleg bótafjárhæð verður. Þingvallanefnd leggur mikla áherslu á að bótaféð skili sér austur í þjóðgarðinn. Bæturnar verða jafnvel aðeins 4.11.2010 06:30
Leiðir flokk jafnaðarmanna Helgi Hjörvar, þingmaður og fráfarandi forseti Norðurlandaráðs, hefur verið kjörinn leiðtogi í flokkahópi jafnaðarmanna í Norðurlandaráði. 4.11.2010 06:00