Fleiri fréttir

Ólafur Ragnar aldrei umdeildari

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur aldrei verið umdeildari en núna. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði en ný könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sýnir að innan við helmingur landsmanna vill að Ólafur bjóði sig aftur fram.

Útilokar ekki að bjóða aftur upp á ókeypis tannlækningar

Enn hafa ekki náðst samningar milli tannlækna og stjórnvalda vegna aukinnar niðurgreiðslu á tannlækningum barna. Velferðarráðherra útilokar ekki að bjóða aftur ókeypis tannlækningar að ári fyrir börn tekjulágra ef tannlæknar verða enn samningslausir.

Jarðskjálfti á Hellisheiði

Tveir tiltölulega stórir jarðskjálftar hafa mælst í dag. Annarsvegar mældist skjálfti upp á 2,5 á richter en upptök hans voru nærri Hellisheiðarvirkjun.

Langflest börn fædd árið 2009 með pláss

Öll börn fædd á árinu 2009 hafa fengið boð um leikskólapláss í Reykjavíkurborg á þessu ári. Þó til sé fermetrarými í sumum leikskólum til að taka við börnum þá hafa stöðugildi í leikskólum í sumum hverfum verið flutt til svo hægt sé að koma 2009 árganginum fyrir.

Mikill öryggisviðbúnaður í New York

Gríðarlegur öryggisviðbúnaður er í New York vegna þess að á morgun eru tíu ár liðin frá hryðjuverkunum þann 11. september árið 2001.

Ráðist á ísraelskt sendiráð í Egyptalandi

Hópur mótmælenda réðist að sendiráði Ísrael í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, í gærkvöldi og hefur sendiherrann, fjölskylda hans og aðrir starfsmenn sendiráðsins flúið land.

„Vampíra“ handtekin fyrir líkamsárás

Kona í Flórída var handtekin á föstudaginn eftir að hún réðst á eldri borgara og beit hann í andlitið. Sjálfur lýsti fórnarlambið, sem er 69 ára gamall karlmaður, því þannig fyrir lögreglu að hann hefði sofnað í hjólastjól undir skyggni á veitingastað til þess að skýla sér fyrir úrhellisrigningu.

52% vilja Ólaf ekki í framboð

Tæplega helmingur landsmanna vill að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gefi kost á sér fyrir fimmta kjörtímabilið í forsetakosningum sem fara fram á næsta ári, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls sögðust 47,6 prósent þeirra sem afstöðu taka í könnuninni vilja að Ólafur Ragnar bjóði sig fram að nú, en 52,4 prósent eru því andvíg.

Óviss stuðningur nýrra vina

Grétar Þór Eyþórsson stjórnmálafræðingur segir afstöðuna til forsetans, sem fram kemur í könnun Fréttablaðsins, ekki koma á óvart. Forsetinn hafi aflað sér margra vina í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki með notkuninni á málskotsréttinum, en eignast óvini í eigin röðum. Þessi hlutföll þurfi því ekki að koma á óvart, þjóðin skiptist til helminga í afstöðu til hans. „Hann er hins vegar umdeildur og hvergi nærri víst að það sé á vísan að róa ákveði hann að fara fram.“

Börn verða að læra að fara með peninga

„Fólk sem tekur lán til að greiða upp eldri lán er ekki með stjórn á fjármálum sínum. Þetta virðist algengt hér á landi,“ segir dr. Adele Atkinson, sérfræðingur Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD).

Furðar sig á töfum málsins

Samningar hafa ekki tekist um sölu á eftirstandandi eignum þrotabús útgerðarfyrirtækisins Eyrarodda á Flateyri. Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri Arctic Fish, sem lagði fram tilboð í eignirnar í ágúst, segir furðu sæta að niðurstaða sé ekki komin í málið. Ekki náðist í skiptastjóra Eyrarodda í gær.

Segja samkynhneigð synd og fá ekki styrk

„Reglurnar bitna á okkur því við höfum þá skoðun að samlíf samkynhneigðra sé ekki gott og hollt fyrir okkur," segir Friðrik Schram, safnaðarprestur Íslensku Kristskirkjunnar, sem fær ekki fyrirhugaðan fjárstyrk frá Reykjavíkurborg vegna skoðana safnaðarins á samkynhneigð.

Náttúran fær sömu réttindi og mannfólkið

Yfirvöld í Bólivíu hafa lagt fram lagafrumvarp sem mun veita náttúrunni sömu réttindi og manneskju. Lögin bera heitið „Lögmál Móður jarðar“ og er þetta í fyrsta sinn sem svo róttækar breytingar eru lagðar fram í heiminum er varða náttúruvernd. Þetta kemur fram á vef Guardian.

Átök hafa harðnað á ný í Líbíu

Stuðningsmenn Múammars Gaddafí skutu í gær flugskeytum frá borginni Bani Walid að hersveitum uppreisnarmanna, sem hafa dögum saman hótað því að ráðast á borgina. Uppreisnarherinn, sem hefur að mestu náð völdum í landinu, hafði gefið stuðningsmönnum fyrri stjórnar frest til dagsins í dag til að gefast upp.

Þolinmæði lögreglumanna er á þrotum

Lögreglumenn á Suðurnesjum segja þolinmæði stéttarinnar vegna kjaramála á þrotum. Lögreglumenn hafa verið með lausa kjarasamninga í 283 daga.

Unglingur bætist í hóp ákærðu

Réttarhöldin í handrukkunarmálinu gegn tveimur liðsmönnum vélhjólagengisins Black Pistons tóku óvænta stefnu í gær þegar halda átti áfram aðalmeðferð þess í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í ljós kom að fórnarlambið hafði bendlað þriðja manninn við hrottafengna árás á sig og hefur ákæra verið gefið út á hendur honum vegna málsins. Þriðji maðurinn er rétt tæplega sautján ára, og var áður á lista yfir vitni í málinu. Vitað var að hann hefði verið viðstaddur árásina á heimili eins hinna ákærðu, Ríkharðs Júlíusar Ríkharðssonar, forsprakka Black Pistons.

Tígur í ástarflækju drepinn

Kvenkyns tígrisdýr drap vin sinn í dýragarði í Texas í gær. Afbrýðissemi, sem svokallaður ástarþríhyrningur leiddi af sér, er kennt um að sögn Reuters. Það var þriggja ára malasíutígur sem heitir Seri sem drap sex ára gamlan tígur, sem kallaður var Wzui, um klukkan fjögurleytið í gær að staðartíma í El Paso dýragarðinum.

Misheppnaðar löggur og lögfræðingar

"Þetta er þessi lögfræðingur sem ætlar að tækla allt á amerískan hátt. Af því að hann veit ekki hvernig réttarkerfið er að virka nema úr bíómyndum. Það var þessi týpa sem eru í þessum þætti. Við erum að leika löggur sem eru alveg að misskilja,“ segir Bergur Ebbi Benediktsson, einn af þeim sem standa að baki Mið-Ísland þáttunum sem verða sýndir á Stöð 2 í vetur.

Biður Bandaríkjamenn um að vera vakandi

"Við biðjum milljónir New York búa og Bandaríkjamanna um að hafa augun og eyrun hjá sér,“ segir Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hún segir að það séu al-Qaeda samtökin sem séu að baki hryðjuverkaógnum sem steðja að Bandaríkjunum nú þegar 10 ár eru liðin frá árásunum þann 11. september 2001.

Fylgi ríkisstjórnarinnar hríðfellur

Fylgi við ríkisstjórnina hríðfellur en aðeins um fjórðungur landsmanna styður hana samkvæmt nýrri könnun Vísis, Stöðvar 2 og Fréttablaðsins.

Enginn ætti að þurfa að hugleiða sjálfsvíg

Fjögurra barna faðir, sem missti son sinn þegar hann fyrirfór sér, segir sjálfsvígið hafa skilið eftir margar spurningar og sektarkennd. Forvarnir gegn sjálfsvígum séu mikilvægar því engum eigi að líða svo illa að hann vilji ekki lifa. Benedikt Guðmundsson þekkir af eigin raun áhrif sjálfsvíga. Hann missti son sinn fyrir rúmum fimm árum. Hann var tuttugu og eins árs og segir Benedikt að það hafi verið mikið högg fyrir fjölskylduna. ,, Þetta skilur eftir margar spurningar og sektarkenndin og allt sem kemur í kjölfarið og allar spurningarnar. Þetta er nánast óbærilegt."

Snarpur skjálfti í Kanada

Jarðskjálfti upp á 6,4 á Richter skók Vancouver eyjur í Kanada um tuttugu mínútur í átta í kvöld að íslenskum tími. Upptök skjálftans eru um 290 kílómetrum frá borginni Vancouver, segir á fréttavef BBC. Skjálftinn varð á 23 kílómetra dýpi.

Sameiningin snýst ekki um Jón Bjarnason

Forsætisráðherra segir fyrirhugaða sameiningu ráðuneyta ekki snúast um Jón Bjarnason heldur um að bæta stjórnarhætti. Hún segir það óskynsamlegt af honum að vera andsnúinn sameiningunni.

Faðir tólf ára stúlku stefnir Facebook

Faðir frá Norður-Írlandi hefur höfðað mál gegn samskiptasíðunni Facebook. Ástæðan: Tólf ára dóttir hans neitar að hætta að birta myndir af sér í kynferðislegum stellingum.

Jóhanna sækist eftir áframhaldandi formennsku

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun bjóða sig fram aftur til formanns Samfylkingarinnar á landsþingi flokksins sem fram fer í næsta mánuði. Jóhanna tilkynnti þetta í pósti sem hún sendi flokksmönnum í Samfylkingunni í dag.

Yfirgnæfandi meirihluti samþykkir verkfallsboðun

Allsherjarverkfall hjá félagsráðgjöfum hjá Reykjavíkurborg vofir yfir. Kosning um boðun verkfallsins fór fram dagana 7. - 9 . september og í tilkynningu frá Félagsráðgjafafélagi Íslands segir að 83% félagsmanna hafi greitt atkvæði og af þeim 94% verfallsboðun.

Hafa áhyggjur af gervihnetti sem er á leið til jarðar

NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna segist hafa áhyggjur af stórum gervihnetti sem innan skamms mun falla til jarðar. Stofnunin segir þó litlar líkur á því að fólk verði fyrir braki úr hnettinum. Gervihnötturinn er tuttugu ára gamall og var honum ætlað að kanna efri hluta andrúmsloftsins sem umlykur jörðina.

Vinnuslys við Búðarhálsvirkjun

Vinnuslys varð í Búðarhálsvirkjun í dag. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli skart starfsmaður þar við vinnu sína. Lögregla of sjúkralið fór á staðinn en maðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður.

Borgarafundur í Iðnó um stjórnarskrármálið

Hreyfingin stendur fyrir borgarafundi á mánudagskvöldið um tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Á fundinum verður spurt: „Viljum við að þjóðin fái að kjósa um tillöguna áður en Alþingi taki hana til efnislegrar meðferðar, svo vilji þjóðarinnar fari ekki á milli mála?“

Þolinmæði lögreglumanna vegna kjaramála á þrotum

Fjölmennur félagsfundur Lögreglufélags Suðurnesja var haldinn í gær en tilefni fundarins var að ræða veika kjaralega stöðu lögreglumanna. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum er vakin athygli á því að lögreglumenn hafi verið kjarasamningslausir í 281 dag. Það sé með öllu óviðunandi.

Fundu landaverksmiðju í Kópavogi

Lögreglan uppgötvaði í morgun stóra landaverksmiðju í iðnaðarhúsnæði í Kópavoginum þegar glöggur lögreglumaður rann á lyktina af landanum. Um þúsund lítra af gambra var að ræða og 300 lítra af tilbúnum landa. Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir ekki algengt í seinni tíð að verksmiðjur af þessu tagi finnist.

Chomsky fjallar um heimsmálin í Háskólabíó

Bandaríski málvísindamaðurinn og samfélagsrýnirinn dr. Noam Chomsky, öndvegisfyrirlesari Hugvísindasviðs, flytur í dag tvo fyrirlestra á vegum Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Chomsky kom til landsins í gær. Chomsky fundaði í morgun með Jóni Gnarr borgarstóra og eiginkonu hans en á hádegi flutti hann fyrirlestur á námskeiði um áhrif hugmynda hans á rannsóknir og umræðu í mannlegum fræðum. Námskeiðið er kennt á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Fyrirlestur dr. Chomskys fjallaði um málfræði og nefnist „The ´Generative Enterprise´: Its origins, goals, prospects" að því er fram kemur í tilkynningu frá Háskólanum.

Nota Facebook við rannsókn sakamála

Dæmi eru um að lögreglan hafi nýtt sér upplýsingar af samskiptavefnum facebook við lausn sakamála. Lögreglan hefur haldið úti facebook síðu í hátt í ár með góðum árangri.

Svigrúm til aðgerða þrengra en þegar skuldavandinn kom upp

Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir þörf á kraftmikillri samvinnu til að bæta stöðu skuldsettra þjóða. Hópur sjö helstu iðnríkja heims mun hittast í Frakklandi um helgina til að vinna að samstilltu átaki.

Ekki alvarlega slasaður

Ökumaður mótórhjóls var fluttur á slysadeild eftir að hann missti stjórn á hjóli sínu á Nauthólsvegi í Reykjavík um klukkan níu í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn að taka fram úr þegar hann missti stjórnina á hjólinu. Hann lenti á ljósastraur og kastaðist út á götu. Vakthafandi læknir á slysadeild segir að maðurinn sé ekki alvarlega slasaður en verður þó í rannsóknum í dag á spítalanum.

Fíkniefnahundurinn Lúna fann spítt og gras

Tvö fíkniefnamál komu upp í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Þar voru tveir piltar um tvítugt teknir með fíkniefni þegar þeir komu með ferjunni Baldri, sem leysir nú Herjólf af.

Alþjóðleg handtökuskipun gefin út á hendur Gaddafi

Alþjóðalögreglan, Interpol, hefur gefið út handtökuheimild fyrir Gaddafi, fyrrverandi leiðtoga Líbíu, Saif al-Islam, son hans, og aðaleinkaspæjara hans. Á vef BBC segir að Alþjóðaglæpadómstóllinn hafi nú þegar fengið handtökuskipunina. Ekki er vitað hvar mennirnir eru.

Eldur í gaskút

Minnstu munaði að mikil sprenging varð í gagnvari Verne á Ásbrú í Reykjanesbæ í morgun þegar eldur kom upp í gaskúti. Slökkviliðið var kallað til og náði að ráða niðurlögum eldsins en súrefnisflaska sem var við hlið gaskútsins var orðin sjóðandi heit og hefði getað sprungið. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. Vel gekk að ráð niðurlögum eldsins, sem var ekki mikill. Enginn slasaðist og engar skemmdir urðu á húsnæðinu.

Fyrrum sambýlismaður Sivjar neitar sök

Þorsteinn Húnbogason, fyrrverandi sambýlismaður Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns, segist saklaus af ákærum um brot á friðhelgi einkalífsins og brot á fjarskiptalögum. Ákæra gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Sjá næstu 50 fréttir