Fleiri fréttir

Verðkönnun ASÍ: Algengasti munur 25-50%

Töluverður munur reyndist vera á nýjum jólabókum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 12 verslunum víðsvegar um landið í árlegri jólabókakönnun sinni síðastliðinn þriðjudag. Könnunin tók til verðs á 43 algengum bókatitlum og algengast var að fjórðungs til helmings munur væri á milli verslana.

Hundaræktarfélagið fagnar lagabreytingum um hjálparhunda

Hundaræktarfélag Íslands lýsir yfir ánægju með nýtt frumvarp sem Guðbjartur Hannesson lagði fram á Alþingi sem kveður á um að takmarkanir á hundahaldi í fjölbýlishúsum eigi ekki við þegar um hjálparhunda er að ræða.

Minna selt af kjöti

Sala á kjöti hefur dregist saman um ríflega 2% á síðustu tólf mánuðum. Í nóvember dróst salan saman um 2,7% og vegur þar þyngst 22,4% samdráttur í sölu lambakjöts og 4,2% samdráttur í sölu alifuglakjöts. Nær engar birgðir eru nú til af alifuglakjöti en þurft hefur að slátra stórum hópum kjúklinga vegna salmonellusýkinga. Fyrir aðeins tólf mánuðum voru til 350 tonna birgðir af alifuglakjöti.

Jóhanna Guðrún snýr aftur í Eurovision

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir snýr aftur í Eurovision þegar hún syngur lag Maríu Bjarkar Sverrisdóttur í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Jóhanna er öllum hnútum kunn í Söngvakeppninni, vann hana 2008 og fór með lagið Is It True? alla leið í annað sætið í Moskvu, sællar minningar.

Sérstakur saksóknari: Enginn vill leka upplýsingum

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, er líklega eini Íslendingurinn sem hefur það í starfstitli að vera sérstakur. Spurður af blaðamanni Skessuhorns hvort hann sé í raun svolítið sérstakur segir Ólafur: „Lögin segja að svo sé en ég held að þess utan sé ég nú frekar venjulegur." Stefnt er að því að þessu verkefni hans verði lokið árið 2014 og því verði hann ekki sérstakur eftir það.

22 fórust í flugslysi í Nepal

22 létu lífið, eða allir um borð, þegar flugvél af gerðinni DeHavilland Twin Otter hrapaði til jarðar í Nepal í gær.

Þrjú loðnuskip lönduðu 3.300 tonnum

Loðnuskipin Faxi, Börkur og Ingunn, lönduðu í gær samtals þrjú þúsund og þrjú hundruð tonnum , ýmist á Vopnafirði eða í Neskaupstað.

Réttað í máli Assange í dag

Fulltrúar frá sænska ríkissaksóknaranum munu kom fyrir rétt í London í dag til að reyna að koma í veg fyrir að Julian Assange stofandi Wikileaks verði látinn laus úr haldi bresku lögreglunnar gegn tryggingu.

Glæparannsókn hafin á strandinu við Jólaeyju

Áströlsk stjórnvöld hafa fyrirskipað glæparannsókn á tildrögum þess að skip hlaðið hælisleitendum strandaði við Jólaeyju í vikunni með þeim afleiðingum að 28 um borð fórust.

Tugir flóttamanna létust

Tugir flóttamanna, flestir líklega frá Írak og Íran, létu lífið þegar bátur fórst við klettótta strönd Jólaeyju í Indlandshafi. Íbúar eyjunnar fylgdust með sjóslysinu frá klettunum. Um borð í bátnum voru að minnsta kosti 70 manns á öllum aldri og fóru þeir allir í ólgandi hafið þegar skipið brotnaði í spón.

Þríþætt átak þarf til rafbílavæðingar

Írar eru langt komnir í rafbílavæðingu. Paul Mulvaney, framkvæmdastjóri ESB ecars á Írlandi, segir að til þurfi samstarf hins opinbera, bílaframleiðenda og orkufyrirtækja. Framfarir í þróun rafhlaðna ýta undir væntingar um stóraukna notkun rafbíla.

Raðmorðingi í New York-borg

Lögreglan í New York-borg í Bandaríkjunum óttast að raðmorðingi gangi þar laus eftir að fjögur illa útleikin lík fundust á strönd við Long Island um 60 kílómetrum frá borginni. Beinagrind fannst á laugardag en þrjú lík til viðbótar á mánudaginn.

Neyðarútgangurinn skrúfaður fastur

„Svona umbúnaður öryggismála á samkomustað flokkast hreinlega undir glæpsamlegt athæfi,“ segir Þorbjörn Haraldsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, um það hvernig allar flóttaleiðir á skemmtistaðnum Sjallanum voru ófærar þegar húsinu var lokað fyrr á þessu ári.

Fáir flokkar hafa skilað ársreikningi

Fæstir stjórnmálaflokkanna hafa skilað Ríkisendur­skoðun ársreikningum vegna ársins 2009 en skilafrestur þeirra var til 1. október í ár. Í ársreikningum kemur fram hvaða fyrirtæki hafa styrkt flokkana, hversu miklum fjármunum þeir hafa úr að spila og svo framvegis. Lárus Ögmundsson hjá Ríkis­endur­skoðun segir að flokkarnir eigi yfirleitt erfitt með að skila á réttum tíma.

Ábyrgar þorskveiðar við Ísland vottaðar

Veiðar Íslendinga á þorski í íslenskri fiskveiðilögsögu hafa hlotið vottun sem byggist á ströngustu kröfum sem settar eru á alþjóðavettvangi. Vottunin staðfestir ábyrga fiskveiðistjórnun og góða umgengni um auðlindir sjávar.

Borða níu milljónir mandarína um jólin

Íslendingar borða um níu milljónir mandarína í kringum hátíðarnar. Á tímabilinu frá lokum nóvember og fram til áramóta verða flutt um 800 tonn af mandarínum inn til landsins og er það töluvert meira en í fyrra.

Aukið eftirlit verður með gjafasendingum

Starfsmenn tollstjóra munu hafa aukið eftirlit með póstsendingum til landsins sem sagðar eru innihalda gjafir, og tilkynna erlendum tollayfirvöldum vakni grunur um að Íslendingar erlendis sendi vörur til landsins og merki ranglega sem gjafir.

Allt stefnir í ofveiði

Noregur og Evrópusambandið (ESB) hafa tilkynnt að Norðmenn ætli að taka sér 183 þúsund tonn af makríl á næsta ári en að ESB taki sér 401 þúsund tonn. Samtals eru þetta 584 þúsund tonn en ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) hljóðar upp á 646 þúsund tonn.

Bætur vegna frelsissviptingar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða manni skaðabætur að upphæð 100 þúsund krónur vegna ólögmætrar frelsissviptingar.

Ætla að ráða fleiri forritara

„Þetta er stórkostlegt og gefur okkur færi á að ráða einn forritara og halda áfram með það sem við gerum,“ segir Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir, framleiðandi hjá tölvuleikjafyrirtækinu Locatify.

Frelsisher Kosovo seldi líffæri

Frelsisher Kosovo myrti fjölda almennra borgara sem teknir höfðu verið til fanga og seldi úr þeim líffærin eftir að stríðinu í Kosovo lauk árið 1999. Þetta kemur fram í rannsóknarskýrslu svissneska þingmannsins Dick Marty, sem er kunnur fyrir rannsókn Evrópuráðsins á fangaflugi bandarísku leyniþjónustunnar CIA.

Baráttan um tímann dregst á langinn

Ofmælt væri að segja að hörð átök geisi milli þriggja hópa um það hvernig klukkan er stillt miðað við sólarganginn á Íslandi. Engu að síður hafa umræður um hvort breyta eigi klukkunni ítrekað sprottið upp, og takast þar á þrjár fylkingar sem ekki gefa neitt eftir.

Atkvæði greidd um fjárlög á morgun

Þriðju umræðu um fjárlagafrumvarp næsta árs lauk á tólfta tímanum í kvöld. Hafði umræðan þá staðið yfir frá því um miðjan dag í dag. Samkvæmt dagskrá Alþingis á morgun er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðsla um fjárlagafrumvarpið hefjist skömmu eftir að þingfundur byrjar klukkan hálfellefu.

Uppljóstrarinn vildi halda heimilisfanginu leyndu

Julian Assange, stofnandi uppljóstrarasíðunnar WikiLeaks, vildi ekki að heimilisfang hans yrði gert opinbert í réttarsal í gær þegar að dómari úrskurðaði að honum skyldi veitt lausn úr varðhaldi gegn tryggingu.

Danir furða sig á vinsældum Franks og Caspers á Íslandi

Klovn: The Movie verður frumsýnd í Danmörku í kvöld og það ríkir mikil eftirvænting meðal Baunverja hvernig þeim Frank og Casper reiðir af á hvíta tjaldinu. Dreifingaraðili myndarinnar telur Klovn vera nýjustu útflutningsvöru Danmerkur.

Íbúasamtök styðja Kitty von Sometime

Stjórn Íbúasamtaka miðborgar lýsir yfir ánægju með framtak listakonunnar Kitty von Sometime og veitingastaðarins Bakkusar að reyna að bæta dansmenningu miðborgarinnar með því að efna til dansleiks sem lýkur um miðnætti. Kitty sendi frá sér tilkynningu þar sem fólk er hvatt til þess að mæta á Bakkus þann 16.september næstkomandi en dansleikurinn hefst klukkan átta og lýkur klukkan eitt eftir miðnætti.

Tvær nýjar ríkisstofnanir í stað gamalla

Ögmundur Jónasson samgönguráðherra lagði fram frumvörp á Alþingi í dag um stofnun tveggja ríkisstofnana. Önnur þeirra mun heita Farsýslan og hin mun heita Vegargerðin.

Tóku 117 lítra af smygluðum vodka

Umtalsvert magn af smyglvarningi fannst við leit tollgæslu í skipi sem var að koma frá Ameríku í gær. Alls voru 117 lítrar af vodka og bílavarahlutir teknir við leit tollvarða í skipinu. Málið telst upplýst, að því er fram kemur á vef Tollstjórans í Reykjavík.

Yfir 30 starfsmenn ráðnir án auglýsinga

Yfir 30 manns hafa verið ráðnir til starfa í ráðuneytum frá nóvember í fyrra. Þetta kemur fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins.

Segist vera nauðbeygður til að banna fosfat í saltfiski

Sjávarútvegsráðherra kveðst hafa neyðst til að láta undan hótunum Eftirlitsstofnunar EFTA þegar hann ákvað að banna notkun fosfats í saltfiski. Óskað hefur verið eftir því að sjávarútvegsnefnd Alþingis verði kölluð saman í vikunni vegna málsins.

Íbúar fá að búa áfram að Sólheimum

Íbúum Sólheima í Grímsnesi verður tryggð þar áframhaldandi þjónusta þótt forsvarsmenn Sólheima dragi sig út úr rekstrinum. Í sameiginegri yfirlýsingu frá félagsmálaráðherra, sveitarfélaginu Árborg og þingmönnum Suðurkjördæmis segir að samkomulag um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaganna tryggi óbreytt rekstrarfé til Sólheima líkt og annarra sjálfseignarstofnana á næsta ári.

Tékkneskar pappalöggur gera allt vitlaust

Tékknesk lögregluyfirvöld fengu hugmynd á dögunum sem þeir sjá sennilega eftir í dag. Hugmyndin gekk út á að setja upp pappalöggur við akbrautir til þess að draga úr umferðaróhöppum. Hugmyndin er reyndar ekki ný af nálinni því þetta var reynt á Íslandi í tíð Sólveigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra. Hefðu Tékkarnir vitað af því hefðu þeir sennilega ekki farið út í ævintýrið en það endaði reyndar enn verr fyrir þá en hér á landi.

Tæpar 400 þúsund krónur nægja ekki fyrir framfærslunni

Öryrki og einstæð móðir með nærri fjögur hundruð þúsund krónur í tekjur frá Tryggingastofnun kveðst ekki hafa efni á jólunum. Að minnsta kosti 75 prósent vinnandi fólks í landinu er með minna á milli handanna eftir skatta.

Þrír kannabisræktendur handteknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá karlmenn í gær vegna gruns um að þeir hafi staðið að kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 10 kannabisplöntur. Þremenningarnir voru þá í óða önn að klippa niður afraksturinn og voru þeir komnir með 350 grömm af marijúana þegar að var komið.

Hryðjuverkaógn tefur póstsendingar til Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnvöld hafa hert öryggiskröfur vegna pósts sem sendur er til Bandaríkjanna. Í tilkynningu frá Póstinum segir að ástæðan fyrir þessu sé bréfasprengja sem send var frá Jemen fyrr á árinu. „Þessar auknu kröfur leiða til tafa á bréfum og pökkum þyngri en 500 gr. sem koma frá Evrópu, þar á meðal Íslandi, til Bandaríkjanna.“

Ráðherra gerir ráð fyrir óbreyttum rekstri Sólheima

„Ég skil ekki þessa nálgun þeirra,“ segir Guðbjartur Hannesson félagsmálaráðherra um þá ákvörðun fulltrúaráðs Sólheima að heimila framkvæmdastjórn heimilisins að segja upp þjónustu við fatlaða.

Hangikjötið vinsælast á jóladag - hamborgarhryggur á aðfangadag

Tæp 73% Íslendinga ætla að borða hangikjöt á jóladag og tæp 53% borða hamborgarhrygg á aðfangadag. Þetta leiðir ný könnun markaðsrannsóknafyrirtækisins MMR í ljós en fyrirtækið kannaði hvað Íslendingar ætluðu að borða sem aðalrétt jólin 2010.

Berlusconi man vel eftir Þingvallakirkju

Silvio Berlusconi kom til Íslands árið 2002 og heimsótti meðal annars Þingvelli þar sem Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra, tók á móti honum.

Sjá næstu 50 fréttir